Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.2016, Qupperneq 69

Læknaneminn - 01.04.2016, Qupperneq 69
Fr óð le ik ur 69 Frumu greining getur gefið til kynna hvort um góðkynja eða illkynja mein sé að ræða en gefur ekki alltaf til kynna undirflokk eða gráðu æxlis og ekki er auðvelt að framkvæma sérrannsóknir á slíkum sýnum. Almennt má segja að aðferð frumumeinafræði sé minna inngrip og því æskilegra fyrir sjúklinginn, en aðferð vefjameinafræði hefur það fram yfir að gefa meiri upplýsingar um meinið. Meðhöndlun sýna á meinafræðideild Öllum sýnum þarf að lýsa út frá því sem sést með berum augum. Einföldum sýnum og litlum sýnum sem ekki þarf að skera úr er lýst af lífeindafræðingum. Mörgum stærri sýnum, þar með talið krabbameinssýnum, er lýst af deildarlæknum (mynd 1). Öll lítil sýni, svo sem speglanasýni, grófnálarsýni og húðstansar eru rannsökuð in toto og krefjast því ekki úrskurðar en úr stærri sýnum þarf að skera valdar sneiðar, það er sneiðar sem sýna æxli eða önnur möguleg mein, skurðbrúnir, eitla og svo framvegis. Í krabbameinssýnum, svo sem úr ristli, er að sjálfsögðu mikilvægt að skoða eitla nákvæmlega og er ristilfitan gjarnan sett í sérstaka lausn sem leysir upp fituna þannig að auðveldara sé að finna eitlana. Minni sýni eru tilbúin til áframhaldandi meðhöndlunar samdægurs en hvað stærri sýnin varðar þá líða almennt einn til tveir dagar áður en frekari vinnsla fer fram. Ef um beinsýni er að ræða þá þarf að afkalka sýnið í sýru eftir herðingu og getur það tekið nokkra daga eftir því hver stærð sýnisins er. Ef skurðbrúnir sýnisins skipta máli þá er sýnið gjarnan blekmerkt áður en skorið er í það. Blekið kemur vel fram á vefjasneiðum og gefur nákvæmlega til kynna hvar brúnin á sýninu raunverulega er. Ef um brjóstamein er að ræða og greining var gerð útfrá kalkhóp á brjóstamyndatöku þarf að taka röntgenmynd af sýninu til að ákvarða hvar meinið er því slík mein sjást oft ekki með berum augum. Öll sýni eru sett í sérstök hylki sem síðan eru afvötnuð í þar til gerðu tæki yfir nótt. Næsta dag eru sýnin steypt inn í paraffínkubba, sýnin síðan skorin í þunnar sneiðar og sett á gler og að lokum lituð og er þessi vinna framkvæmd af lífeindafræðingum. Öll sýni eru lituð með hematoxylin og eosin. Smásjárskoðun Þá er komið að því að meta glerin undir smá- sjánni. Við matið byggir meina fræðing urinn fyrst og fremst á reynslu sinni en einnig skipta klínískar upplýsingar miklu máli. Eftir því sem meinafræðingurinn hefur meiri upp- lýs ingar um sjúklinginn og klínísk einkenni, þeim mun líklegra er að rannsóknin verði árangursrík og leiði til réttrar niðurstöðu. Ýmsa þætti verður að meta við greiningu á krabbameini: • Er sýnið nægilega gott til að byggja greiningu á? • Eru þær breytingar sem til staðar eru nægilega miklar til að unnt sé að greina illkynja vöxt með fullri vissu? • Hvernig krabbamein er um að ræða og þarf að undirflokka meinið? • Hver er æxlisgráðan? Oftast er ekki vandkvæðum bundið að svara þess um spurningum og oft dugar þessi fyrsta smásjár skoðun til að full greina æxli. Grein ingin byggir þá á því hvort nægi- legur frumu breyti leiki (e. pleomorphia) sé til staðar til að greina krabba mein og/eða hvort ífarandi vöxtur sé greini legur. Í minni sýn- um er oft ekki unnt að meta hvort vöxtur sé ífarandi og byggir greiningin þá alfarið á frumu breytileika. Í sumum tilvikum getur matið hins vegar verið erfitt og leitar meinafræðingurinn þá gjarnan eftir áliti annarra meinafræðinga. Einnig er hægt að beita sérrannsóknum í því skyni að komast að réttri greiningu. Í einstaka tilfellum er þó ekki unnt að svara öllum þessum spurningum, en meinafræðingurinn verður alltaf að gæta þess að fullyrða ekki meira en hann getur staðið við. Náin samvinna og samráð við klínísku læknana skiptir einnig miklu máli, sérstaklega ef um erfið tilfelli er að ræða. Æxlisgráðan er mikilvæg þar sem hún segir til um horfur sjúklinga og aðstoðar við val á meðferð. Æxlisgráðan er metin við smásjár- skoðun og er yfirleitt um þrjár gráður að ræða (gráða 1 = vel þroskað, gráða 2 = meðal- vel þroskað, gráða 3 = illa þroskað). Metnir eru þættir eins og frumubreytileiki, drep og fjöldi kjarnadeilinga. Yfirleitt er um fremur óhlutlægt mat að ræða en í sumum tilvikum eru æxli metin eftir vel skilgreindum reglum. Dæmi um slíkar flokkanir eru Nottingham kerfið sem notað er við mat á brjóstakrabbameini og Gleason gráðunarkerfi í blöðruhálskirtilskrabbameini. Mikilvægt er að rugla æxlisgráðu ekki saman við stig æxlis, en stig táknar útbreiðslu æxlis við greiningu. Frystiskurðir geta skipt verulegu máli í tengslum við greiningu krabbameina. Með frystiskurði er átt við að sýni úr sjúklingi sem er í skurðaðgerð er sent með hraði á meinafræðideildina og snöggfryst í fljót- andi köfnunarefni og litað og síðan skoðað af meina- fræðingi. Yfirleitt er hægt að fá frysti skurðarsvar á innan við hálftíma og er skurð- lækninum gefin niður staðan sím leiðis inn á skurð stofuna. Frystiskurðir eru í dag til dæmis notaðir í tengslum við skoðun varð eitla (e. sentinel node) hjá konum með brjóstakrabbamein. Geisla- virku efni og/eða litarefni er sprautað í brjóstið nálægt æxlinu og er í að gerðinni þannig hægt að bera kennsl á varðeitilinn, sem er sá eitill sem liggur næst æxlinu. Eitillinn er sendur í frystiskurð og ef meinvarp greinist í honum við rannsóknina eru aðrir holhandareitlar einnig fjar lægðir. Ef eitillinn reynist hins vegar vera nei kvæður er talið að aðrir eitlar verði það líka. Þá er ekki frekar aðhafst í tengsl um við hol höndina og er þannig komist hjá óþarfri holhandaraðgerð. Aðrar algengar orsakir fyrir frysti skurðum í tengslum við krabbamein er mat á skurð brúnum, til dæmis mat á brúnum þvag leiðara í tengslum við brott- nám þvag blöðru. Þar sem gæði frysti skurðar- sneiða eru ekki eins góð og gæði paraffín innsteyptra sneiða á ekki að nota frystiskurði nema nauðsyn krefji. Því á ekki að óska eftir frystiskurði nema niðurstaðan breyti því hvernig skurðaðgerðin er framkvæmd. Einnig er rétt að hafa í huga að ef um lítið sýni er að ræða þá getur verið misráðið að biðja um frystiskurð þar sem hætt er við því að eftir frystiskurðinn verði lítið eftir af sýninu til að búa til paraffín innsteyptar sneiðar. Mynd 1. Deildarlæknar skera úr sýni. Til vinstri er Rebekka Guðrún Rúnarsdóttir og til hægri er Gígja Erlingsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.