Læknaneminn - 01.04.2016, Page 112
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
112
Spurning 7
33 ára karlmaður er með verki í
hægri síðu og mjóbaki sem koma
í bylgjum. Hann er allur á iði og á
erfitt með að vera kyrr vegna verkja.
Þú ákveður að verkjastilla hann og fá
tölvusneiðmynd. Hvað sýnir myndin?
a. Botnlangabólgu
b. Nýrnastein
c. Rof á görn
d. Hryggbrot
Spurning 8
Enn og aftur ertu staddur í héraði. Þú tekur þessa röntgenmynd af bóndanum á næsta bæ
sem fór að fá mikla kviðverki í dag ásamt aukinni mæði. Hvað er í gangi?
a. Frítt loft í kviðarholi
b. Peribronchial íferðir
c. Hjartabilun
d. Hiatus hernia
Að skrifa góða röntgen beiðni
getur reynst mörg um erfitt.
Mikilvægt er að hafa í huga að
góð röntgen beiðni eykur næmi
rann sóknar innar. Það sem
mestu máli skiptir er skýr og
hnitmiðuð sjúkra saga, lýsing
einkenna og stað setningar
teikna við líkams skoðun.
Dæmi: 72 ára kk msu COPD
kemur inn með 3ja daga
sögu um hósta með grænum
uppgangi og hita. Bankdeyfa
apicalt yfir vinstra lunga og
gróf öndunarhljóð.
Spurning: Lungnabólga?
Spurning 6
Þú ert í héraði og til þín er fluttur maður sem lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi. Um meiriháttar
fjöltrauma er að ræða og þú hringir strax eftir þyrlunni en áætlað er að það taki hana 45
mínútur að koma til þín. Lyons klúbburinn gaf héraðsspítalanum nýlega glænýtt TS tæki
og þú ákveður að nýta tímann og keyra traumaskann. Hvað biður þú geislafræðinginn um?
a. Tölvusneiðmynd af höfði og hálsi án skuggaefnis og tölvusneiðmynd af brjóstholi og
kviðarholi með skuggaefni
b. Tölvusneiðmynd af höfði, hálsi, brjóstholi og kviðarholi, allar með skuggaefni
c. Tölvusneiðmynd af höfði, hálsi, brjóstholi og kviðarholi, allar án skuggaefnis
d. Tölvusneiðmynd af höfði og kviðarholi auk röntgen af hrygg og lungum
Spurning 5
5 ára stúlka kemur í fylgd móður á slysadeild eftir að hafa dottið úr hárri klifurgrind. Við
komu er hún mjög slöpp og kastar upp. Þú biður akút um TS af höfði til þess að útiloka
blæðingu. Myndin sýnir eftirfarandi:
a. Subarachnoidal hemorrhage (SAH)
b. Epidural hematoma
c. Extracranial hematoma
d. Subdural hematoma
e. b og c er rétt