Læknaneminn - 01.04.2016, Page 120
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
120
Vorið 2015 var auglýst að
losnað hefði samningur
um að fara í skipti til
Möltu. Ég hafði aldrei velt
því fyrir mér að fara í skipti
áður en ákvað að sækja um
samninginn og fékk hann
að lokum. Við tók pappírs -
vinna á öðru hundrað inu
þar sem ég var að þessu mun seinna en vana legt
var. Hjúkrunar fræðingar og lífeinda fræðingar voru
svo í verk falli sem auð veldaði ekki ferlið þar sem ég
þurfti bæði blóð prufur og bólu setningar. Mér tókst
að lokum að skila öllu af mér
tveimur vikum fyrir brott för
sem var í raun alltof seint. Þá
fékk ég fyrst að kynnast því
hversu afslappaðir Malt verjar
eru. Ekkert mál, allt klárt fyrir
komuna.
Tveimur vikum seinna lenti
ég á Möltu. Á meðan ég ráf-
aði um flug völlinn til að
reyna að finna fólkið sem
ætlaði að sækja mig heyrði
ég spreng ingar. Í fyrstu hélt
ég að það væri verið að gera
hryðjuverkaárás en þetta voru
bara fyrstu kynni mín af malt neskum flug eldum
sem stund um eru bara sprengingar hljóð. Maltverjar
sprengja mikið af flugeldum í tengslum við bæjar-
hátíðirnar sínar og það er alltaf bæjar hátíð einhvers-
staðar svo maður venst þessum sprengingum fljótt.
Mér var svo skutlað í íbúðina mína ásamt tveimur
öðrum skipti nemum. Við bjugg um sex í einni
íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur
baðherbergjum. Íbúðin var staðsett í um það bil 10
mínútna göngu fjarlægð frá spítalanum og rétt við
stórar strætó stoppistöðvar sem var mjög hentugt
upp á að ferðast um eyjuna.
Spítalavistin var mjög þægileg. Ég var á hjarta- og
lungna skurðdeild með öðrum skiptinema, spænskri
stelpu. Við vorum settar undir ákveðinn lækni sem
við fylgdum oftast en hann var líka duglegur að fá
aðra lækna til að taka við okkur ef hann var að sinna
einka sjúklingum eða vinna pappírsvinnu. Dagarnir
byrj uðu á fundi klukkan 8
sem var mis áhugaverður milli
daga og við máttum ráða
hvort við mættum á þennan
fund. Síðan fylgdum við
lækn inum á göngu deild eða
í skurð aðgerðir. Á göngudeild
fengum við að skoða sjúk linga
og vorum beðin um að túlka
hjarta línurit, eitt hvað sem ég
kunni ekk ert á þar sem ég var
bara búin með tvö ár í Lækna -
deild en lærði hell ing af.
Oft ast var dag urinn búinn
milli eitt og tvö, þá fóru lækn-
arnir á einka stofur. Það ber samt að taka öllum tíma-
setningum á Möltu með fyrirvara og þar er spítalinn
engin undantekning, þeir eru ekki mikið að stressa
sig á því að vera seinir. Sérstaklega virðast strætó-
bílstjórar láta tímasetningar sem vind um eyru þjóta.
Kannski koma þeir á réttum tíma, kannski hálftíma
Strendur, sól
og spítalinn
Signý Malín Pálsdóttir
þriðja árs læknanemi 2015-2016
„Á Möltu eru
það til dæmis
sérfræðilæknar
sem sjá um að
taka blóð prufur á
meðan hjúkrunar
fræðingar taka til
á skrifborðunum
þeirra.“