Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 123
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
123
Eftir að dagvinnu lýkur tekur vaktin við. Þá bregður
þú þér í hlutverk bráðalæknis og sinnir öllu bráðu
sem upp kemur í héraðinu. Þú ferð í útköll með
sjúkraflutningamönnum, sinnir bráðum veikindum
og áverkum. Þú lærir að vera mjög sjálfstæður
í vinnubrögðum. Meðal annars þarft þú að læra
sjálfur að leggja gips og sauma með nálahaldara
með innbyggðum skærum því það er enginn til að
klippa á sauminn fyrir þig.
Á vaktinni sinnir þú einnig legudeild sjúkrahússins
og gengur þar stofugang um helgar. Á legudeildina
leggjast inn sjúklingar á öllum aldri með mjög
fjölbreytt vandamál. Sjúklingarnir eru yfirleitt
einir á herbergi og aldrei þarf neinn að liggja á
göngunum. Þeim er svo sinnt af alúð af mjög
hæfum hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum,
sjúkraþjálfurum og öðru starfsfólki deildarinnar.
Þú sinnir einnig fæðingadeildinni í góðri samvinnu
við ljósmæðurnar á staðnum og ert viðstaddur allar
fæðingar sem verða á þinni vakt. Þá aðstoðar þú
einnig ef framkvæma þarf keisaraskurð.
Það kemur oft fyrir að þú lendir í aðstæðum þar
sem reynsla þín og þekking sem læknanemi dugir
ekki til. Þá getur þú treyst á að fá aðstoð reyndra
lækna samstundis hvenær sem er sólarhringsins.
Læknarnir kvarta aldrei undan því að vera kvaddir
til aðstoðar. Þvert á móti telja þeir mikilvægt að þú
hikir ekki við að leita eftir aðstoð til að sjúklingarnir
fái bestu þjónustu sem völ er á.
Mötuneytið á sjúkrahúsinu er afar gott. Þú færð íbúð
þér að kostnaðarlausu og Land Cruiser til afnota
á vöktunum. Á staðnum eru góðir veitingastaðir,
kvikmyndahús og góð aðstaða til að stunda íþróttir
og útivist.
Af framangreindu má ljóst vera að starfið er
einstaklega fjölbreytt og krefjandi en þú nærð
auðvitað ekki að koma þér upp sérþekkingu á neinu
afmörkuðu sviði. Starfið á þessum stað reynir hins
vegar á alla þá þekkingu og færni sem þú hefur
tileinkað þér sem læknanemi, auk þess sem þú lærir
líklega nánast jafn mikið á einu sumri og þú lærðir á
síðastliðnum fimm árum í læknisfræðinni.
Þessi staður er reyndar til. Hann heitir Ísafjörður!
Þar vann ég síðastliðið sumar. Ég tek það fram að
ég hef engin tengsl við Vestfirðina fyrir utan að
vera algjör landsbyggðar lúði sem horfir á Landann
á RÚV.
Undirritaður við vaktbílinn.Jónas Aðalsteinsson, sjötta árs læknanemi, á vaktinni.
Jónas Aðalsteinsson, sjötta árs læknanemi, nýtur veðurblíðunnar i hádegismatnum.
Leitið ekki að
C. difficile í saur
til að staðfesta
lækningu á
ristilbólgu hjá
sjúklingum
sem eru orðnir
einkennalausir.
Klínískt nef