Læknaneminn - 01.04.2016, Síða 130

Læknaneminn - 01.04.2016, Síða 130
Fr óð le ik ur Ra nn só kn ar ve rk ef ni 3 . á rs n em a 130 Rannsóknar ­ verkefni 3. árs nema Alexander Gabríel Guðfinnsson 130 Gjöf blóðþrýstingslækkandi lyfja í útæðaleggi Alma Rut Óskarsdóttir 130 Anticoagulation variability in relation to occurrence of thromboembolism and clinically relevant bleeding in patients on warfarin monitored with either Fiix-prothrombin time or Quick-prothrombin time Arna Björt Bragadóttir 131 Lifun brjóstakrabbameinsfruma úr grófnálarsýnum Ása Unnur Bergmann Þorvaldsdóttir 132 Alvarleg gula hjá nýburum: Tíðni og áhættuþættir Ása Ísafold Jónasardóttir 132 Æxli í miðtaugakerfi barna á Íslandi árin 1981-2014. Tegundir, einkenni, meðferð og lifun Berglind Anna Magnúsdóttir 132 Hvernig er að greinast með Alzheimer sjúkdóminn? Björn Hjörvar Harðarson 132 Tengsl grunnbólgusvörunar einstaklinga við verkjanæmi Bríet Einarsdóttir 133 Vöxtur minnstu fyrirburanna á Íslandi 1988-2012 Daníel Alexandersson 133 Árangur LASIK sjónlagsaðgerða á Íslandi Davíð Þór Jónsson 133 Algengi kæfisvefns og svefngæði barna í þýði Heilsuskóla Barnaspítalans Einar Axel Helgason 134 Gigtráður: Klínískt líkan hefur forspárgildi í mælingu sjálfsofnæmismótefna Einar Logi Snorrason 134 Langtímahorfur einstaklinga með bráða kransæðastíflu 2006 Elín Óla Klemenzdóttir 134 Mat á lifun sjúklinga með Marfan heilkenni Ellen Dagmar Björnsdóttir 134 Tengsl BMP9 boðleiðarinnar og EGFL7 nýæðamyndun Eva Fanney Ólafsdóttir 135 Stökkbreytingar í FLNC og NKX2-5 valda útvíkkunarhjartavöðvakvilla á Íslandi Freyja Sif Þórsdóttir 135 Krabbamein í legbol á Landspítalanum 2010-2014 Hallbera Guðmundsdóttir 135 Transcriptional Effects of mTOR Inhibitors on Vascular Smooth Muscle Cells Hallfríður Kristinsdóttir 136 Greining alvarlegra meðfæddra hjartagalla á Íslandi 2000-2014 Hannes Halldórsson 136 Horfur sjúklinga sem gangast undir skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins á Íslandi hafa batnað Haukur Einarsson 136 Hjartabilun meðal eldri Íslendinga Heiðar Örn Ingimarsson 137 Barnaslys í Reykjavík 2010-14 alvarleiki og orsakir Helga Björk Brynjarsdóttir 137 Árangur aðgerða við ósæðargúlum í brjóstholi á Íslandi 2000-2014 Hjálmar Gunnlaugur Ingólfsson 137 Lokastigsnýrnabilun: Ættlægni og erfðir Gjöf blóðþrýstingshækkandi lyfja í útæðaleggi Alexander Gabríel Guðfinnsson1, Guðrún María Jónsdóttir2, Hjalti Már Björnsson1,3 1Læknadeild Háskóla Íslands; 2Svæfinga- og Gjörgæsludeild Landspítala, 3Bráðadeild Landspítala Inngangur: Við meðferð bráðveikra sjúklinga er tafarlaus gjöf blóðþrýstingshækkandi lyfja oft nauðsynleg. Leiðbeiningar mæla með gjöf blóðþrýstings hækkandi innrennslislyfja í HÆL (holæðaleggi), en almennt hefur verið talið að gjöf þeirra í útlægar æðar fylgi hætta á vefjadrepi. Stundum getur reynst nauðsynlegt að gefa blóðþrýstingshækkandi lyf í ÚÆL (útæðaleggi), þar sem það er tímafrekara að koma fyrir HÆL og slíkt inngrip ekki á færi allra lækna. Við heimildaleit höfunda fundust engar rannsóknir sem fjalla um algengi þessara fylgikvilla. Hér á landi er vel þekkt að gefa lægri skammtar í útlæga bláæðaleggi. Markmið rannsóknarinnar er að meta hversu oft blóðþrýstingshækkandi innrennslislyf eru gefin í ÚÆL á Landspítala og hversu algengt er að slík gjöf valdi fylgikvillum. Efniviður og aðferðir: Leitað var í sjúkraskrár­ kerfum Landspítala að sjúklingum sem höfðu fengið blóðþrýstingshækkandi innrennslislyf á legudeildum Landspítala öðrum en gjör gæslu deildum á tímabilinu 2009­2014. At hug að hvaða lyf var gefið, í hvaða skammti, hversu lengi og íkomu leið metin. Leitað var að skráðum tilvikum þar sem vefja drep eða aðrir bráðir fylgi kvillar komu fram við lyfja gjöfina. Þá voru ástæða innlagnar og lyfja gjafar og heilsufars saga metin. Gögn voru dul kóðuð og slegin inn í Excel og t­prófi og kí­ kvaðrat prófi beitt við úrvinnslu gagnanna í R Studio®. Niðurstöður: Alls voru 227 skráð tilfelli hjá 110 sjúklingum þar sem blóðþrýstingshækkandi innrennslislyf var gefið á legudeildum á rann sóknar­ tímabilinu. Þegar teknar höfðu verið út lyfjagjafir undir húð, lyfjagjafir í HÆL og tví tekning skráðra fyrirmæla reyndust til fellin vera 102 hjá 92 sjúklingum. Lyfjagjafir voru flestar dópamín eða ísó próterenól og var meirihlutinn gefinn í ÚÆL í hand leggjum, en einungis fundust tvö tilfelli um gjöf blóðþrýstings­ hækkandi lyfja um ÚÆL í rist. Engir fylgi kvillar vegna gjafar blóðþrýstings hækkandi lyfja í ÚÆL fundust. Alls voru 95% sjúklinganna með ÚÆL og 10% með HÆL, og voru karlmenn 67% sjúklinganna. Í legunni létust 21,5% sjúklinganna. Ályktanir: Gjöf dópamíns og ísópróterenól í ÚÆL í handlegg virðist ekki fylgja mikil hætta á stað ­ bundu vefja drepi. Frekari rannsókna er þörf áður en hægt er að breyta ráðleggingum og al mennt gefa blóðþrýstingshækkandi lyf í ÚÆL. Anticoagulation variability in relation to occurrence of thromboembolism and clinically relevant bleeding in patients on warfarin monitored with either Fiix-prothrombin time or Quick- prothrombin time Alma Rut Óskarsdóttir1, Brynja R. Guðmundsdóttir1,2, Páll Torfi Önundarson1,2 1University of Iceland, faculty of medicine, 2Landspítali, department of hematology Introduction: Anticoagulation with vitamin K antagonists (VKA) requires monitoring of their effect, traditionally with the Quick­prothrombin time (PT) that is affected by VKA influence on coagulation factors (F) II, VII and X. Rapid fluctuations in factor VII, which has a short half­life, contribute to the PT (INR) variation but not to the antithrombotic effect that depends mainly on reductions of FII and FX. This was lately confirmed by the Fiix­trial that showed that monitoring warfarin with Fiix­PT (affected only by FII and FX) improved anticoagulation stability. Here, we assessed anticoagulation variability in relation to the occurrence of thromboembolism and bleeding in patients monitored with Fiix­PT or PT.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.