Goðasteinn - 01.09.2013, Page 108
106
Helga Pálsdóttir á Grjótá í Fljótshlíð, var fædd að
Arngeirsstöðum í sömu sveit, 27. apríl 1877. Átta ára
gömul flyst hún að tungukoti, sem var lítið kot í Arn-
geirsstaðalandi. Frá sautján ára aldri fór hún að vinna
fyrir sér. lengst af var hún á Grjótá, einnig um tíma
vinnukona í teigi og litla-Kollabæ og 1959 lá leiðin
aftur að Grjótá, þar sem hún var búsett til æviloka.
Helga ólst upp í sárri fátækt og var skólaganga
hennar aðeins örfáar vikur við erfiðar aðstæður. Þess
má geta að kennslan fór fram í kirkjunni í teigi. Börn-
in lágu á hnjánum á gólfinu og voru kirkjubekkirnir
nýttir sem skólaborð. Slíkur var oft kuldinn í kirkjunni
að blekið fraus í byttunum. Stutt skólaganga kom ekki í veg fyrir að Helga náði
fljótt einstökum tökum á móðurmálinu, eins og sjá má á ljóðagerð hennar.
Eftir hana liggur allmikið ljóðasafn um margvíslegt efni. Hún orti mikið af
erfiljóðum fyrir og í orðastað vina og sveitunga sinna. lítið hefur birst eftir
hana á prenti, hún á þó ljóð í bókunum: ljóð Rangæinga, Vængjatök- hugverk
Sunnlenskra kvenna og í Goðasteini. Hér á eftir birtast eftir hana fjögur ljóð.
Þess má einnig geta hér að Helga vann sér frægðarorð fyrir hagleik og list-
fengi í tóvinnu, kembdi og spann af mikilli list, hárfínt band, sem tvinni væri.
Hún heklaði og prjónaði úr því fram í háa elli og féll aldrei verk úr hendi.
Helga giftist ekki og var barnlaus. Alla tíð vann hún öðrum af óeigingirni
og mikilli samviskusemi.
Helga lést 1. janúar 1973.
Helga Pálsdóttir á Grjótá
Ásta Þorbjörnsdóttir, Grjótá, Fljótshlíð
Ásta Þorbjörnsdóttir