Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Side 28
Systkinin frá Sunnuhvoli á Norðfirði frá v: Eiríkur, Aldís, Stefán, Svanbjörn, Unnur Stefanía, Ása og
Guðni Þór.
þá í húsinu Hlíf. Hann var þá að vinna við beitningar eins og títt var
á þessum árum. Aldís kláraði vistina hjá kaupfélagsstjórahjónunum
á tilsettum tíma og þá fóru þau Aldís og Steini, eins og hann var
oftast kallaður, að búa hjá foreldrum hans. Fluttu sig svo úti í húsið
Skuld en það er nú Snæfellsás 15. Þau bjuggu á fleiri stöðum á
Hellissandi meðal annars í Lárusarhúsi og einnig á Uppsölum sem
Aldís kallaði reyndar ekki hús heldur kofa. Steini og Aldís byggðu
svo seinna Skólabraut 2 en það var 105 m2 hús byggt 1957 og svo
byggðu þau Naustabúð 12 árið 1967 og það var um 160 m2 en
þá voru þau búin að eignast níu börn á fjórtán árum. Fyrsta barn
þeirra var Sólveig en hún fæddist 1951 á heimili foreldra Aldísar á
Norðfirði.
Stefán Jóhann æðsti templar
„Eg hafði gaman af að vera í félgsmálum þótt ung væri og ég
hafði kynnst stúkustarfinu á Norðfirði og það fylgdi mér vestur á
Hellissand. Meira að segja strax eftir aðgerðina í Reykjavík er ég
var fimmtán ára þá var ég boðuð á stúkufund í Reykjavík og var
gerð þar að kapelán en það var maður sem þekkti mig og vildi fá
mig á fundinn. Þar var kominn maður sem hét Sigurdór Brekkan en
hann stjórnaði stúkunni heima. Einnig voru tvær jafnöldrur mínar
úr Vorperlunni á fundinum. Ég man að á fundinum þá var ég í gifsi
frá úlnlið og alveg upp að olnboga og ég varð að fá manninn við
hliðina á mér til að fletta blöðunum í bókinni en þetta var þykk bók
sem ég varð að halda á með annari hendinni en náði ekki að fletta
með hinni hendinni. Þetta var svolítið skondið. Ég gekk í stúkuna
hérna og þar var Stefán Jóhann æðsti templar þótt ungur væri en
hann átti þá heima á Hellissandi og var svo sannarlega duglegur
maður. Við fórum í nokkur skipti til Ólafsvíkur á fund og þá vorum
við keyrð inn að Enni og svo gengum við fyrir það í fjörunni sem
er eftirminnilegt. Þegar við fórum til Ólafsvíkur þá var Kristín kona
Matthíasar Péturssonar orðinn æðsti templar en hann var þá
kaupfélagsstjóri á Hellissandi og Sigmundur og fjölskyldan flutt
suður. Mér er minnisstætt fólkið í Ólafsvík sem við hittum en það
voru meðal annars Þorgils Stefánsson og Inga kona hans og Guðni
Sumarliðason og Sumarliði bróðir hans. Þá man ég líka eftir Eyjólfi
Snæbjörnssyni en þetta fólk var allt í stúkunni í Ólafsvík. Guðni var
mikill trúmaður og sagði sögur og það var gaman að honum."
Erfiðleikar í atvinnumálum
„Eftir að ég hætti hjá Sigmundi vorið 1950 þá förum við Steini
saman til Keflavíkur að vinna en á þessum árum fóru margir frá
Hellissandi til að vinna þar. Ég man meðal annars eftir að bæði
Cýrus og Gugga voru líka að vinna þar en það voru erfiðleikar í
atvinnumálum á Hellissandi á þessum árum. Eftir að við komum
frá Keflavík þá fór Steini að vinna við beitningar hjá Friðþjófi í Rifi.
Ég reyndi samt að hlífa mér í vinnu og vann ekki mikið og gegndi
því sem læknirinn sagði og tók það alvarlega. Fór samt um tíma
í skelina hjá Ragga Ólsen í Rifi meðan hún var og þá gátu eldri
börnin passað. Heimilisstörfin tóku talsvert á mig til dæmis að þvo
þvottinn og bleytan sem því fylgdi gerði það að verkum að ég varð
að vera með bindi á úlnliðnum."
Vesturhrauni 1-210 Garðabæ Sími 535 5850 - www.framtak.is
FRAMTAK
BLOSSI ehf
Túrbínur
Viðgerðir - Sala
•«Fi
WWR"
Spíssar, glóðarkerti og
annar búnaður fyrir
eldsneytiskerfi dieselvéla
26