Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Síða 67

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Síða 67
skoðuðum þetta betur. Mér fannst þetta merkilegt stykki og hefði viljað koma þessu i land en þessu var bara hent í sjóinn." Erfitt að blóðga ufsann „Jæja, þetta var níu daga túr hjá okkur og við fengum 150 tonn sem var landað í Ólafsvík 8. apríl. Ég var rosa ánægður er hluturinn var borgaður út en ég hafði aldrei séð svona mikla peninga. Þetta var góð afmælisgjöf því ég varð sautján ára í túrnum þann 4. apríl. Þessi túr gerði það að verkum að bílprófinu hjá Badda Jens seinkaði Verið að landa úr togaranum Má SH 127. Fiskurinn var í 60 I kössum og hífður upp með klöfum sem sjást hanga í krananum. aðeins því ég varð að mæta í skólann. En það kláraðist svo en mótorhjólaprófið tók ég hjá Guðráði Péturssyni, reyndar árið eftir. Mér líkaði vinnan um borð í Má mjög vel þrátt fyrir að erfitt væri að blóðga ufsann og úlnliðirnir loguðu alveg. En ég ætlaði ekki að leggja sjóinn fyrir mig því vinnan á vélunum kallaði á mig." Dekkin 2,5m á hæð „Eftir að iðnskólanum lauk þá fór ég, sautján ára, að vinna á jarðýtu föður míns við gerð vegarins fyrir Ólafsvíkurenni sem þá var verið að gera. Þar unnum við nánast allan sólarhringinn um sumarið á vöktum ég, pabbi og Ólafur Bjarnason. Það var ein fríhelgi sem tekin var en það var 17. júní. Sú helgi var notuð til að skipta um keðjur á jarðýtunni. Þannig fór nú sú helgi. í þessari vinnu vann ég undir stjórn þeirra Hagvirkismanna, Jóhanns Bergþórssonar og Svavars Ásgeirssonar en þeir voru með sín öflugu tæki m.a. stóru trukkana. Ekki búkollurnar heldur trukkana sem svo voru kallaðir en það voru mjög stórir bílar sem fluttu mikið. Sem dæmi þá voru dekkin á þessum bílum um 2,5m á hæð. Ég man að Haddi frændi var að gera við þessi dekk. Það var gaman að taka þátt í þessari miklu samgöngubót hér á okkar svæði," segir Svanur er hann ræðir um tilkomu vegarins fyrir Ólafsvíkurenni. Notaðir bara í hallæri En Svanur var ekki alveg hættur á sjónum og við starfsemi tengt sjónum. „Vertíðina 1985 ræð ég mig á Jóa á Nesi með Pétri Friðálfi Karlsyni en hann átti þá bátinn. Svo er það 1989, þá er ég með Sigurði Jónssyni en hann átti þá Egil SH. Þessar vertíðar eru báðar mjög minnisstæðar því á vertíðinni 1985 ferst Bervíkin og öll áhöfnin og 1989 ferst Sæborgin og með henni skipstjórinn Magnús Guðmundsson. Þetta voru mjög átakanleg slys og margir áttu um sárt að binda. Á þessum árum var bærinn með allan snjómokstur og því lítið að gera hjá okkurfeðgum. Við vorum aðallega að moka fyrir fyrirtækin t.d. Hróa, Bakka og Stakkholt úr hjöllunum sem þau öll voru með og eins líka að vinna fyrir einstaklinga. Það var gott að Það gat líka farið svona þegar heysið kom á bryggjuna. Allt um koll! Spurningar til sjómannskvenna ISIafn og starf: Guðrún Benediktsdóttir, aðstoðamaður tannlæknis. Hefur þú farið á sjó og á hvaða bát? Já, var á báti sem hét Sigurvon SH. Varstu sjóveik? Nei. Hlustar þú á óskalagaþátt sjómanna? Nei. Vildir þú fara í railý með manninum þínum? Já, væri til í það. Hver ætti að keyra? Maðurinn minn. Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Skandinaviskir sakamálmyndaflokkar. Ertu búin að sjá Mamma mia? Nei . Hvernig væri draumafrfið þitt? Langar mjög að fara til Thailands. Hver er munurinn á báti og skipi? Bátar eru minni en skip. Ertu á facebook eða tvitter og hvað áttu marga vini? Er á facebook og á eitthvað um 180 vini þar. Hver er uppáhaldsliturinn þinn? Blár. Gefur maðurinn þinn þér blóm á konudaginn? Nei, ekkert endilega. í hvað starfi væri maðurinn þinn ef hann væri ekki sjómaður? Einhvers konar iðnaðarmaður. Hvert er uppáhalds lagið þitt? Á svo mörg uppáhalds lög. Hver er aðal kosturinn að eiga sjómann? Að eiga góðan aðgang að fiski. En ókosturinn? Ókosturinn er að hann er ekki alltaf til staðar ef maður þarf á að halda vegna útilegu. Færðu koss frá bóndanum áður en hann fer á sjóinn? Já, alltaf. Mottóið er: Að vera alltaf ég sjálf. 65
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.