Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 11

Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 11
9SKÓGRÆKTARRITIÐ 2012 fyrsta íslenska timburhúss og voru þar með beinir þátttakendur í Ári skóga á Íslandi. Þann 14. ágúst var messa í Skálholti tileinkuð Ári skóga. Var hún sérstaklega helguð þakklæti til Norðmanna fyrir ýmsar góðar gjafir sem þeir hafa fært skógræktarfólki og kirkju á Íslandi bæði fyrr og síðar. Sótti hópurinn frá Hörðalandi messuna og þáði kirkjukaffi að henni lokinni í Skálholtsskóla. Í ljós kom að í norska hópnum var sonur hjóna sem gáfu tvo útskorna stóla til Skálholtskirkju fyrir um 50 árum. Jók það á hátíðleika og vinarþel þessarar Skálholtsheimsóknar. Þann 22. október var ráðstefnan Heimsins græna gull haldin í Kaldalónssal Hörpunnar í Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar var að fá yfirlit um ástand og horfur í málefnum skóga á Evrópu- og heims- vísu. Fyrirlesarar voru Mette Wilkie Löyche, deild- arstjóri skógræktardeildar FAO, Jan Heino, fyrrv. skógræktarstjóri Finnlands, Monika Stridsman, skógræktarstjóri Svíþjóðar, Aine Ni Dhubháin, skógfræði prófessor við Dublin-háskóla og Þröstur Eysteinsson, sviðstjóri þjóðskóga á Íslandi. Fram kemur í svonefndum lykiltölum sem FAO hefur gef- ið út í meira en 60 ár, að þrátt fyrir að árið 2010 séu skógar í vexti í tempraða beltinu og á norðlægum slóðum (evrópskir skógar hafa vaxið um 800 þús. ha/ári síðustu 20 ár), þá er enn umtalsverð skóg- areyðing í hitabeltinu. Þá hefur plágum af völdum skordýra fjölgað á meðan dregið hefur úr tjóni af völdum skógarelda. Á síðustu 20 árum hefur skiln- ingur á mikilvægi skóga fyrir líffræðilega fjölbreytni vaxið. Þannig hefur þeim svæðum fjölgað umtals- vert á heimsvísu sem er sinnt vegna þessarar áherslu. Skilningur hefur einnig vaxið á fjölþættu gildi skóga og þeim margvíslegu ógnum sem steðja að skógar- vistkerfum jarðar. Þessar áherslur leiddu m.a. til ályktunar Allsherjarþings Sþ um að lýsa árið 2011 Alþjóðlegt ár skóga, til að ítreka markmið og gildi margskonar yfirlýsinga og samþykkta allt frá ráð- stefnu Sþ árið 1992, m.a. um umhirðu, vernd og sjálfbæra nýtingu allra skógargerða. Segja má að þrír fjórðu hlutar skóga heimsins lúti nú ýmsum al- þjóðlegum skuldbindingum, sem aftur hafa áhrif á lagasetningar og þróun skógarmála á viðkomandi svæðum og löndum. Á júnífundi evrópskra skógar- málaráðherra í Osló 2011 var t.d. samþykkt fram- tíðarsýnin Evrópuskógar 2020 og sett á fót samn- inganefnd 8 ríkja sem ætlað er að undirbúa lagalega bindandi samkomulag um Evrópuskóga sem kynnt Evrópuskógar 2020 - framtíðarsýn: • þar sem undirstrikað er mikilvægi allra skóga í Evrópu við að þjóna fjölþættum markmið- um sjálfbærrar þróunar • þar sem velferð manna er höfð að leiðarljósi og heilbrigt umhverfi • þar sem skógar leggja sitt af mörkum til efna- hagsþróunar í Evrópu og um heim allan • þar sem augljóst þykir að skógar leggi sitt af mörkum til hagsbóta fyrir samfélagið, s.s. í að styðja grænt hagkerfi, bæta lífsviðurværi, draga úr loftslagsbreytingum, viðhalda líf- fjölbreytni náttúrunnar, bæta gæði vatns og í baráttunni gegn eyðimerkurmyndun. verður árið 2013, en Jan Heino er einmitt formaður þeirrar nefndar. Í máli skógræktarstjóra Svíþjóðar kom fram að Svíar settu sér skógarstefnu fyrir 17 árum. Þar eru framleiðslu- og umhverfismál lögð að jöfnu og stefn- Úr 150 ára skógi í Stend, rétt utan við Bergen. Mynd: Arnór Snorrason.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.