Skógræktarritið - 15.05.2012, Side 42

Skógræktarritið - 15.05.2012, Side 42
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201240 kynnast sögu garð- og skógræktar frá fyrstu árum 20. aldar. Gamli Gróðrarstöðvargarðurinn er núna tæplega 110 ára gamall. Mörg af elstu trjánum í garðinum eru orðin stofnfúin og á fallanda fæti. Áhugahópurinn um Gömlu Gróðrarstöðina hefur sem markmið að stofnað verði skóg- og trjáræktar- safn í garðinum milli verkfærahússins og Gróðrar- stöðvarhússins. Með þeim hætti telur hann að best verði haldið á lofti því brautryðjendastarfi sem hafið var í upphafi 20. aldar. Nauðsynlegt er að hafin verði endurgerð og stefnumótun fyrir garðinn og nánasta umhverfi. Nýlegt deiliskipulag sem Akureyrarbær gerði fyrir þetta svæði, Krókeyrarsvæðið, gerir ein- mitt ráð fyrir því að þar séu vaxtarmöguleikar fyrir ýmiskonar safnastarf til framtíðar. Innst í innbænum á Akureyri er fjölbreytt safna- og menningarsvæði, söfnin eru eins og perlur á bandi. Minjasafn um fyrsta spítala í bænum, Aðalstræti 14, safn um fyrstu stór- stúku á Íslandi, Aðalstræti 46, Nonnasafnið, Aðal- stræti 54 og Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58. Greið og góð gönguleið er á milli allra þessara safna. Nyrst á Krókeyrarsvæðinu er Iðnaðarsafnið í gamla verkfærahúsi Ræktunarfélagsins og nýlega opnaði mótorhjólasafn í nýbyggðu húsi austan við Iðnað- arsafnið. Innsta safnið á þessari perlufesti er Flug- minjasafnið á Akureyrarflugvelli. Veruleg ástæða er til að koma upp safni í Gömlu Gróðrarstöðinni sem gefur góða hugmynd um þá þróun sem orðið hefur bæði á verklegri og fræðilegri þekkingu í skóg- og trjárækt á Íslandi í rúma öld. Vandfundinn er staður sem hentar betur slíkri starfsemi en Gamla Gróðrarstöð Ræktun- arfélags Norðurlands. Sigurður Blöndal hefur sagt að skógarteigurinn í Gömlu Gróðr- arstöðinni sé einn hinn merkasti á Íslandi frá skógræktarsögulegu sjónarmiði3. Hugmyndir áhuga- hópsins eru að fyrst um sinn verði komið upp útisafni þar sem til sýnis yrðu tæki og tól sem enn eru til og tengjast skógrækt- arstarfinu. Gerður verði stígur um garðinn, gömul og merki- leg tré verði merkt og fróðleik miðlað með upplýsingaskiltum um ræktunarárangur einstakra trjátegunda. Garðurinn yrði opið almenningssvæði og fengi nýtt hlutverk sem tengist því upprunalega markmiði Ræktunarfélags Norðurlands að upplýsa og útbreiða þekkingu og áhuga á skógrækt meðal almennings. Heimildir 1. Árni Jónsson. 1951. Skýrslur tilraunastöðvanna 1947- 1951. Rit Landbúnaðardeildar A-flokkur Nr. 4. 10-34. Atvinnudeild Háskólans. 2. Bjarni E. Guðleifsson. 2002. Minjasafnsgarðurinn á Ak- ureyri. Skógræktarritið 2002 (2), 31-39. 3. Bjarni E. Guðleifsson og Helgi Þórsson. 2002. Eyfirskir frumkvöðlar í trjárækt. Í: (ritstj. Bjarni E. Guðleifsson) Ásýnd Eyjafjarðar. Skógar að fornu og nýju. Skógræktar- félag Eyfirðinga. 25-36. 4. Guðrún Þ. Björnsdóttir. 1918. Skýrsla yfir gróðurtil- raunir í gróðrarstöðinni sumarið 1918. Ársrit Ræktunar- félags Norðurlands 1917-1918, 64-71. 5. Jakob H. Líndal. 1911. Yfirlit um starfsemi Ræktun- arfélags Norðurlands frá ársbyrjun 1911 til aðalfundar 1912. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands 1911, 76-85. 6. Jakob H. Líndal. 1916. Um trjárækt. Ársrit Ræktunar- félags Norðurlands 1916, 28-77. 7. Páll Briem. 1903. Ræktunarfélag Norðurlands. Störf þess og verkefni. Ársskýrsla Ræktunarfélags Norður- lands 1903, 1-17. 8. Sigurður Sigurðsson. 1903. Stuttur leiðarvísir um gróð- ursetningu trjáa og runna í kringum hús og bæi. Árs- skýrsla Ræktunarfélags Norðurlands 1903, 31-38. 9. Sigurður Sigurðsson. 1909. Tilraunir með trjárækt á Norðurlandi. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands 1909, 58-80. 10. Stefán Stefánsson. 1913. Ræktunarfjelagið tíu ára. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands 1913, 27-49. 7. mynd. Gróðrarstöðvarhúsið umvafið gömlum trjágróðri um 2000. Mynd : Aðalsteinn Svanur Sigfússon
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.