Skógræktarritið - 15.05.2012, Síða 80

Skógræktarritið - 15.05.2012, Síða 80
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201278 hefur hjarað einangraður á þessu þurra svæði í þús- undir ára. Við komuna til Briançon kom til móts við okkur André Prochasson frá ONF en hann er höfuðpaur og upphafsmaður hugmyndar um að vista erfðaefni franskra fjallaskóga uppi á Íslandi (The French-Ice- landic forestry partnership, eins og hann kaus að kalla verkefnið). Um kvöldið var þingað um það efni á veitingahúsi í bænum og enn frekar bragðað á frönsku hnossgæti. André hefur varið síðustu 20 árum á þessu svæði og einkum fengist við verndun skóga og jarðvegs og sýslað með skriðu- og snjóflóðavarnir. Hann er þeirrar skoðunar að beit sé stærsti einstaki þátturinn í því hvar skógar- og trjámörk eru á hverjum tíma en þessi mörk hafa í gegn um tíðina rólað 400-600 m upp og niður. Col du Galibier – Bonnenuit – Lanslevillard – Bramas Nú var aftur haldið í vesturátt upp í Lautaret-skarð en snúið til norðurs upp í enn hærra skarð Col du Galibier án þess að gefa okkur tíma til að skoða grasagarðinn í neðra skarðinu. Á leiðinni upp stöðv- aði André oft för til að sýna okkur hvað væri við að fást í verndun skóga og jarðvegs í háfjöllum. Þarna sáum við augljós merki ofbeitar og stórar fjárhjarðir gengu til beitar. Víða var enginn skógur nema stöku reynitré og virtust þau eiga erfiða tíma. Lítið var af elri og það ræfilslegt. Hér erum við komnir norður í Savoie hérað í svokölluðum Rón Ölpum og í þorpinu Bonnenuit (nafnið þýðir góða nótt) hittum við fyrir skógar- vörð svæðisins Harvé Lopez og Chantale Faure skógtækni (Forest, wood and energy regional service). Þarna var tekinn drjúg kennslustund í fallegum lerki skógi og fræðst um líf- og erfðafræði tegundarinnar, jarðvegsástand og hvað það sé í líf- eðlisfræði og vistfræði lerkis og sambýlissveppa sem geri lerkið að þessari lykiltegund í skógunum. André fræddi okkur um jarðfræði þessa héraðs sem er all skrautleg, afar mismunandi jarðvegssamsetn- ing allt eftir því hvernig berglög leggjast (fellinga- fjöll) og hvar setlög eru og hvernig efni úr þeim dreifist niður hlíðar. André er reyndar þeirrar skoðunar að til að lerk- ið skipi þennan sess í beitarskógum og skógarnir séu í e.k. jafnvægi sé hæfileg beit nauðsynleg í um- setningu næringarefna, enda eru skógar af þessari gerð beinlínis til orðnir sem sérstakt vistkerfi gegn- um a.m.k. 5.000 ára beit búfjár. André virtist telja nautgripi einkar þýðingarmikla í þessu hlutverki (at- hyglisvert í samanburð við þá skoðun Skota að þung húsdýr geti skaðað rótarkerfi trjáa). Megin tilgangur eða stefna í skógræktinni þarna er margs konar til- brigði af því sem kalla mætti beitarskóg. Sylvopast- Timbur er í gríðarlegri sókn sem byggingarefni í Frakk- landi og hvers konar not eru fundin upp og prófuð. Öll vegrið sem bar fyrir augu okkar í fjallahéruðum voru gerð úr bergfurubolum. Mynd: Brynjólfur Jónsson. Bergfuran er álitin gríðarlega mikilvæg og öflug til að binda jarðveg í rýru brattlendi, vegköntum og skriðum. Mynd: SKÞ.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.