Skógræktarritið - 15.05.2012, Qupperneq 73
71SKÓGRÆKTARRITIÐ 2012
Þriðji fjallahringur: Interlaken– Genthal
Um nóttina hafði gránað niður í ca 1.600 m og
var veður svalt og hráslagalegt. Ákveðið var að nota
daginn til að skoða sig um á láglendi og kíkja til
fjalla milli élja. Farið var niður í bæinn Interlaken
með viðkomu á verslunarplani þar sem skoða mátti
margar útgáfur af hinum furðulegustu heyskapar-
vélum Svisslendinga enda ekki fyrir neinar venju-
legar vélar að fóta sig á snar-snar-bröttum túnum
bænda.
Síðdegis var skotist að nýju áleiðis upp í Susten-
pass en snúið af leið upp í Genthal til að forvitn-
ast um aðstæður og trjávöxt þar í hæstu hæðum.
Skemmst er frá því að segja að við enda vegar í rúm-
lega 1.800 m hæð gaf á að líta föngulegan sembra-
furuskóg. Komin var snjóföl og erfitt að finna köngla
á jörðu og því varð afrakstur ekki mikill en gaman
að rölta um í „mistýsku“ kafaldi innan um tröll-
auknar og sumar ævafornar sembrafurur. Sembra-
furan virtist þarna algerlega einráð við skógarmörk.
Við rákumst einnig á svartylli (Sambucus nigra) og
úlfareyni (Sorbus x hostii) sligaðan af berjaklösum.
Á bakaleið niður dalinn var sérstaklega skyggnst
eftir fræi á garðahlyn sem virðist aðal trjátegundin
í norð-vestur hlíð dalsins (sólarmegin) en lítið eða
ekkert um fræ á trjám fyrr en niðri í 1.500 m hæð.
Ferðin um Sviss var fyrst og fremst skoðunarferð
og fræsöfnun ekki aðal atriði en hugsuð til að geta
þó prufað einhver sýnishorn. Ef fræ væri gott mætti
ætla að nokkur hundruð plöntur fengjust af hverju
kvæmi. Þótt vafalítið megi kaupa fræ af Svisslend-
ingum úr efstu mörkum skóga þá má reikna með
að það sé ekki vafningalaust enda er ólíklegt að inn-
fæddir séu að sækja þangað mikið af fræi nema þá
fyrir plöntun í svipaðri hæð og fræþroski er vafalít-
ið stopull og fjarri því árviss. Í það heila söfnuðum
við félagarnir rúmum tveimur kg af sembrafurufræi
í Sviss en annars var eftirtekjan eins og í töflu 1.
Undirrituðum fannst merkilegt að gera sér grein
fyrir að bergfuran sem við erum að nota í skógrækt á
Íslandi er hreint ekki dæmigerð fyrir bergfuruna sem
Tafla 1. Sviss
Sýni nr. Tegund Staður N A H. m y.s.
Sv-4 Sembrafura P.cembra Furkapass 46°33´38,8” 08°21´49,7” 1.890
Sv-6 Sembrafura P.cembra Furkapass 46°33´50,1” 08°21´30,5” 1.940
Sv-9 Sembrafura P.cembra Flüelapass 46°47´14,4” 09°55´04,5” 1.980
Sv-10 Sembrafura P.cembra Flüelapass 46°49´24,3” 09°55´59,8” 2.090
Sv-15 Sembrafura P.cembra Genthal 46°46´25,0” 08°20´36,6” 1.850 fræ gr.
Sv-4 Evrópulerki L. decidua Furkapass 46°33´38,8” 08°21´49,7” 1.890 54
Sv-5 Evrópulerki L. decidua Furkapass 46°34´06,3” 08°22´16,1” 1.800 <5
Sv-10 Evrópulerki L. decidua Flüelapass 46°46´24,6” 09°56´04,9” 2.090 <5
Sv-13 Evrópulerki L. decidua Ofenpass 46°39´48,9” 10°12´20,0” 1.800 40
Sv-14 Evrópulerki L. decidua Julierpass 46°27´46,8” 09°46´35,95” 2.040 7
Sv-2 Bergfura P.uncinata Sustenpass 46°43´58,0” 08°24´57,1” 1.980 11
Sv-6 Bergfura P.uncinata Furkapass 46°33´50,1” 08°21´30,5” 1.940 14
Sv-11 Bergfura P.uncinata Ovaspin 46°40´24,6” 10°10´03,3” 1.820 3
Sv-12 Bergfura P.uncinata Ofenpass 46°38´22,9” 10°17´31,6” 2.150 85
Sv-1 Rauðgreni P.abies Sustenpass 46°44´15,74” 08°23´41,16” 1.570 7
Sv-3 Rauðgreni P.abies Sustenpass 46°44´39,0” 08°30´28,4” 1.650 10
Sv-5 Rauðgreni P.abies Furkapass 46°34´06,3” 08°22´16,1” 1.800 51
Sv-9 Rauðgreni P.abies Flüelapass 46°47´14,4” 09°55´4,5” 1.980 <10