Skógræktarritið - 15.05.2012, Síða 76

Skógræktarritið - 15.05.2012, Síða 76
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201274 að koma á samstarfi franskra og íslenskra aðila um mögulega varðveislu erfðamengis lerkis úr háfjöllum Frakklands uppi á Íslandi, en talsverð hætta er talin á að lerkið á þessum slóðum muni verða illa úti í yf- irvofandi loftslagsbreytingum. Evrópulerkið kallast Mélèze d´Europe upp á franska tungu. Stefnan var sett á tvö Alpahéruð Frakklands, Savoie í norðri og Hautes-Alpes í suðri. Í bænum Chamonix (rétt norðan við Mont-Blanc) hittum við fyrir Gabriel leiðsögumann og túlk, eft- ir snarpan akstur austan úr mið Sviss, m.a. gegn- um vínræktina í Martigny en þar var uppskeruvinna að hefjast með látum. Gabriel er góður í ensku og vel slarkfær á íslensku enda hefur hann starfað í tvö sumur hjá Skógræktarfélagi Íslands við kort- lagningu og á auk þess íslenska unnustu. Ekið var með Gabriel suður í Grenoble borg þar sem áð var og svipast um í bókabúðum bæjarins eftir bókum á ensku um náttúru eða skóga í frönskum Ölpum en án árangurs að mestu. Fyrsti áfangastaður til næturgistingar í Frakk- landi var bærinn Briançon en þangað er 2 ½ klst. akstur í austur frá Grenoble. Briançon er frá fornu fari í þjóðleið til Ítalíu (Torino) og hefur mörg hild- urin verið háð á þeim slóðum í baráttu þjóðanna um yfirráð og tollheimtu. Síðustu alvarlegu átökin á þessu svæði voru undir lok síðari heimsstyrjaldar þegar Þjóðverjar voru að hopa frá Ítalíu en þá voru mörg fjallaþorp lögð í rústir. Á leiðinni austur var ekið um Lautaret skarð (Col du lautaret) í yfir 2.000 m hæð en þar í skarði er merkilegur Alpa-grasagarður sem til stendur að skoða nánar síðar. Skammt austan skarðsins stopp- uðum við og gátum ekki stillt okkur um að lesa köngla af fallegum lerkitrjám í vegkantinum í um 1.900 m hæð. Ásýnd lerkisins virtist nokkuð frá- brugðin því sem augað mundi frá Sviss, krónan breiðari og greinar lengri og gildari. Þarna uppi var bergfuran lík því sem við þekkjum en það átti eftir að kveða við annan tón í þeim efnum síðar. Við tók- um eftir mikilli sauðfjárbeit í dölum beggja vegna skarðsins og augljós ofbeit var víða og virkt jarð- vegsrof í fullum gangi. Gist var í Briançon og kvöldið notaði Gabriel til að leiða mörlanda í allan sannleik um ágæti franska eldhússins á veitingastað í miðbænum. Cerviérs - Col d´Izoard - La Casse – Abriés- Cimé du Mélézet Í svellköldu morgunsári tók leiðsögumaður dags- ins á móti okkur. Þetta var maður að nafni Michel Sappia frá frönsku skógstjórninni (ONF). Sappia er skógarvörður á þessu svæði; Cerviérs þjóðgarðinum. Sappia, sem státaði af sérlega myndarlegu yfirvara- skeggi, hoppaði upp í bílinn og ók upp í þorpið Cer- viérs í um 1.600 m hæð þar sem hann fræddi okkur um búsetusögu svæðisins. Þarna hefur verið stund- uð kvikfjárrækt í a.m.k. 5.000 ár og skógar allir eru mjög mótaðir af beit húsdýra. Samfélagsbreytingar síðastliðin 50-60 ár hafa leitt til 80-90% fækkun- ar fólks í sveitaþorpum Queyras og víðar í fjallahér- uðum sem þessu. Augljóslega eru auraráð þorpsbúa ekki hin sömu og hjá stallsystrum og bræðrum í sviss- neskum þorpum, en ferðaþjónusta er eini nýi vaxtar- Gólfborð úr sembrafuru. Á innfelldu myndinni er kistill úr sembrafuru verðlagður á €950. Mynd: SKÞ. Jarðvinnsla í lerkiskógi til að hvetja sjálfsáningu. Mynd: Sighvatur Jón Þórarinsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.