Skógræktarritið - 15.05.2012, Side 96
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201294
Gróðursetning nýrra
trjátegunda í skógarskjóli
Höfundur Ólafur Sturla Njálsson
1. mynd. Eplatré gróðursett í sumarbústaðaland. Undir-
búningur jarðvegs fyrir svona dýrgripi þarf að vera mjög
góður, einnig frágangur eftir gróðursetningu og upp-
binding er bráðnauðsynleg fyrstu 3 árin. Búið var til pláss
fyrir eplatrén í blágreniskógi sem var grisjaður mikið, en
haldið eftir þéttum skógarvegg á móti austri og norðri til
að hindra kælandi vind inn á svæðið og viðhalda hlýlegum
aðstæðum í skjólinu. Skógarbotninn er iðulega ekki alveg
nógu næringarríkur fyrir kröfuharðari trjátegundir, en
bæta má úr því eins og sýnt er í myndaröðinni.
2. mynd. Fyrst þarf að fjarlægja torfið eða þá gróðurþekju
sem er til staðar og nóg er yfirleitt af jarðraski einhvers
staðar nálægt sem má þekja með þessu. Algengt er að torf-
inu sé snúið á hvolf og sett ofan á moldina í kringum tréð
eftir gróðursetningu, en ég mæli ekki með því, þar sem
grasvöxtur verður óstjórnlegur þrátt fyrir það og nýtur
áburðargjafarinnar sem tréð fékk.
3. mynd. Betra er að grafa meira en nógu stóra holu heldur
en of nauma! Góð regla er að hafa holuna minnst 60 cm
breiða og langa, og einnig 60 cm djúpa, eða eins og mögu-
lega er hægt á hverjum stað. Á myndinni sést að frekar
stutt er niður í jökulurð og kom því mikið upp af grjóti.
Grjótið var sett til hliðar, en mold og annar jarðvegur í
aðra hrúgu. Grjótið er gott að eiga einhvers staðar í hrúgu
til seinni tíma brúks, til dæmis sem undirlag í vegagerð og
stígagerð, jafnvel í hleðslur. Sé mjög grunnt niður á fast,
vinnur maður holuna ennþá breiðari til að koma nógri
næringu fyrir til hliðanna í staðinn.
Í skógarskjóli er hlýrra heldur en á bersvæði og
freistandi að auka tegundafjölbreytni, gróðursetja
eik, beyki, linditré, álm, hlyn, silfurþin, eðalþin, svar-
telri, ask, hvítþin, hrossakastaníu, perutré, plómu-
tré, kirsuberjatré, eplatré og margt, margt fleira.
Skógarbotninn er ið ulega ekki alveg nógu næring-
arríkur fyrir kröfuharðari trjátegundir, en bæta má
úr því eins og sýnt er í myndaröðinni. Þegar skógar-
trén hafa vaxið í 10–20 ár, eru þau að nálgast 2–4
metra hæð, stundum meira ef vel er gefið af næringu
frá byrjun og undirbúningur er góður fyrir gróður-
setningu. Á bersvæði er alltaf vindur, bara mismik-
ill. Sums staðar leggst vindur í strengi og skógartrén
eru lengur að tosast upp og mynda skjól. Það er allt-
af mikil ánægjutilfinning sem maður upplifir, þegar
maður hefur náð upp skógi og skógarskjóli í bar-
áttunni við vindguðinn hann Kára! Að heyra í vind-
inum gnauða í trjátoppunum, en finna bara andvara