Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988
Tveir bátar &ra
til síldarleitar
TVEIR bátar, Heiðrún EA og
Arnþór EA, frá Árskógsströnd í
Eyjafirði fára trúlega til sUdar-
leitar í kvöld, að sögn Gylfa Bald-
Hafiiarfiörður:
Á hraðferð í
hádegismat
HafnarQarðarlögreglan
stöðvaði mann á bifhjóli í
hádeginu á mánudag. Hann
hafði ekið um Reykjavíkur-
veg með 104 kílómetra
hraða.
Maðurinn bar því við að hann
væri að flýta sér heim í mat.
Hann var færður á lögreglustöð
og sviptur þar ökuleyfí til
bráðabirgða.
vinssonar skipstjóra á Heiðrúnu.
„Við ætlum að skoða ÞistUQörð
og Bakkafjörð á leiðinni austur
á Bakkaflóadýpið. Við verðum
trúlega komnir austur á Bakka-
flóa á fimmtudagskvöldið. Við
fengum 3,50 krónur fyrir kUó-
grammið af síld til bræðslu á
•Norðfirði í fyrra,“ sagði Gylfi í
samtali við Morgunblaðið.
Krossanessverksmiðjan í Eyja-
fírði bræðir síldina sem Heiðrún
EA og Amþór EA veiða. „Sfldin fer
í fískeldismjöl sem er aðallega selt
til Bretlands, Frakklands og Finn-
lands," sagði Geir Zoega forstjóri
Krossanessverksmiðjunnar. „Við
erum ekki búnir að ákveða hvað
við greiðum fyrir sfldina. Við ætlum
að bfða og sjá til hvað hinar verk-
smiðjumar gera. Við þurfum um 3
þúsund tonn af síld eða loðnu í
þessum mánuði til að geta staðið
við fyrirframsölur á fískimjöli en
Krossanessverksmiðjan getur brætt
10 þúsund tonn á mánuði," sagði
Geir Zoéga.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Skákhátíð íKringlunni
Skáksamband íslands og Kringlan hafa tekið
höndum saman um að halda skákhátíð í Kringl-
unni og stendur hátíðin fram á næsta sunnudag.
Hluti af hátíð þessari er hraðskákmót, svokallað
Borgarskákmót, sem haldið var í gær og tóku
40 skákmenn þátt f þvl. Á myndinni sést Davíð
Oddsson, borgarstjóri, heQa mótið með því að
leika fyrsta leik fyrir Hannes Hlífar Stefánsson.
Davíð Ólafsson, andstæðingur Hannesar Hlífar,
fylgist með af athygli, sem og aðrir skákmenn.
t
I
VEÐUFT
Kvikniyndin Meffi:
1/EÐURHORFUR í DAG, 27. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Yfir Grænlandi er 1020 mb hæð, en 980 mb lægð
austur við Noreg þokast norðaustur. Um 900 km suösuðvestur af
Vestmannaeyjum er heldur vaxandi 990 mb lægö á leið austur.
Kalt verður áfram.
SPÁ: Norðanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Él norðanlands
og austan en bjart veröur að mestu á Suöur- og Vesturiandi.
Næturfrost víða um land, en 2ja-5 stiga hiti sunnanlands á morgun.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæð yfir Grænlandi en lægð austur viö
Noreg. Hæðarhryggur nálgast líklega landið á fimmtudag.
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðanátt. Éljagangur norðaustanlands
en bjart verður að mestu sunnanlands og vestan. Hiti um eða rétt
yfir frostmarki að deginum en víða talsvert næturfrost. Svipað
veður á fimmtudag, en lægir þó heldur og dregur úr éljum á Norð-
ur- og Austurlandi.
TÁKN:
•G Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * r * Slydda
/ * /
* * *
* # * * Snjókoma
* * *
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
[ <f Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
hhl veður
Akureyri 1 alskýjað
Reykjavík 3 léttskýjað
Bergen 12 skýjað
Helsinki 13 skýjað
Kaupmannah. 15 súld
Narssarssuaq 6 heiðskirt
Nuuk 1 léttskýjað
Ósló 14 skýjað
Stokkhólmur 10 rigning
Þórshöfn 7 skúr á s. klst.
Algarve 26 heiðskírt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 25 heiðskfrt
Chicago 12 skýjað
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 20 hólfskýjað
Glasgow 13 skúr á 8. klst.
Hamborg 15 rígning
Las Palmas vantar
London 17 rigning
Los Angeles 16 iéttskýjað
Lúxemborg 14 skýjað
Madrfd 26 heiðskfrt
Malaga 25 mistur
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal 10 léttskýjað
New York 14 heiðskfrt
París 19 hálfskýjað
Róm 24 heiðskirt
San Diego 18 alskýjað
Winnipeg 9 alskýjað
Nýtt handrit á lítið
skylt við upphaflegt
- segir Þorvarður Helgason í
úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs
„STYRKURINN var veittur út á ákveðið handrit, Meffi, en svo kemur
til nýtt handrit eftir erlendan höfund. Það á lítið skylt við hið upphaf-
lega, næstum ekki neitt. Þar með eru forsendur brostnar," sagði
Þorvarður Helgason, sem sæti á f úthlutunarnefiid Kvikmyndasjóðs,
um ástæður þess að Bfó hf. var svipt 10 milfjón króna skyrki til að
gera kvikmyndina Meffi.
Aðspurður sagði Þorvarður að í
þessari ákvörðun fælist ekkert álit
á þvf hvort síðara handritið væri
lakara en hið fyrra. „En það er ekki
Meffí. Þetta er nýtt handrit eftir
útlending og heitir Black Eyes. Það
er bara folsun að tala um Meffí.
Meffí er ekki til. Ekki nema sem
eitthvað sem hefur verið horfíð frá.
Þessi sjóður er íslenskum kvik-
myndasjóður til að styrkja íslenskar
myndir en ekki til að styrkja erlenda
afþreyingarframleiðslu eins og þetta
seinna handrit er,“ sagði Þorvarður.
Hann sagði að úthlutunamefndin og
sjóðsstjómin hefðu verið algjörlega
einhuga um þessa afgreiðslu máls-
ins.
Þorvarður var spurður hvort ekki
væri alsiða að handrit tækju miklum
breytingum frá upphaflegri gerð þar
til kvikmýnd væri tilbúin. „Það er
allt annað mál," sagði hann. „Hand-
rit geta breyst en þetta er allt annað
efni, verið að fást við allt aðra hluti.
Það vita það allir sem vilja og þekkja
til að Meffí er ekki lengur á dag-
skrá."
Aðspurður hvort samkvæmt þessu
kæmi til greina að veita hinni nýju
mynd styrk, sagði Þorvarður að sjóð-
urinn veitti ekki styrk til erlendra
kvikmynda, sem skrifaðar eru af
erlendum mönnum heldur væri hlut-
verk hans að styðja við bakið á inn-
lendri framleiðslu, helst góðri
íslenskri framleiðslu ef því er til að
dreifa. Um hvort þessi ákvörðun
boðaði strangara aðhald úthlutunar-
nefndar með gerð mynda, sem
styrktar hefðu verið, vildi Þorvarður
ekkert segja. Hann sagði að 2,5
milljónir hefðu verið greiddar vegna
Meffí. Um hvort það fé væri endur-
kræft sagði Þorvarður: „Það má
kannski deila um það en ég vildi
helst að þetta yrði endurgreitt. Þess-
ir peningar hafa farið í súginn að
okkar mati.“
Þorvarður Helgason sagði að 2
milljónir hefðu verið veittar til upp-
haflegrar handritsgerðar. „Þeir pen-
ingar eru ekki lengur til umræðu. í
rauninni erum við enn mjög jákvæð-
ir gagnvart Meffí. Sú mynd er bara
ekki á borðinu."
Morgunblaöið/Bjami
Hægt er að skila tómum gosdósum í Foldaskóla, Breiðholtsskóla,
Ölduselsskóla, Laugarnesskóla, Fríkirkjuveg 11 og allar félagsmið-
stöðvar í Reykjavík frá klukkan 14 til 17 næstkomandi laugardag-
Fyrir hverja dós eru greiddar 2 krónur.