Morgunblaðið - 18.11.1993, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1993
Bændur
kynna korn
í Kringlunni
ÍSLENSKIR kornbændur frá
Austur-Landeyjum ætla að
kynna gestum og gangandi í
Kringlunni íslenskt og trefja-
ríkt korn í neytendaumbúðum
í dag frá hádegi og fram eftir
degi. Kynningin er á vegum
Akrafóðurs hf. í Landeyjum
og verður á boðstólum íslenskt
bigg og hafrar. Islenskt korn
er ekki á almennum neytenda-
markaði eins og er, en fæst
stöku sinnum í Kolaportinu.
Að sögn Magnúsar Finnboga-
sonar bónda að Lágafelli verður
íslenska komið boðið í hálfs og
eins kílóa pokum á 100 kr. og 180
kr. og verður gestum auðvitað
boðið að smakka. Magnús hóf
kornrækt fyrir 12 árum, og segir
að nýmalað ferskt íslenskt korn
sé mjög gott í gróf brauð og sem
morgunkorn út á súrmjólk eða vel
ristað á pönnu eða í ofni.
Liður í endurræktun
Um 60 bændur stunda
kornrækt á Suðurlandi sem
hliðargrein með öðrum búskap.
„Kornræktin verður að vera liður
í endurræktun á túnum og ökrum.
Athuganir sýna að hreinleiki
kornsins er mikill enda notum við
engin eiturefni við ræktunina. Við
sáum síðla apríl eða byijun maí
og uppskerum frá miðjum
september fram í miðjan október.
Ef illa fer þurfum við að geta
nýtt kornið sem skepnufóður í lé-
legu árferði og hálmurinn nýtist
sem rotmassi í svepparækt og í
skreytingar.
Sl. sumar var að sumu leyti
gott til kornræktar og að sumu
leyti ekki. Það korn, sem náði
þroska, var vel þroskað í ár, en
hluti skemmdist í frosti í byijun
ágúst og var nýtt í skepnufóður,"
segir Magnús. ■
T
VERÐKÖNNUN
v •m VIKUNNAR •
Það borgar sig að
hringja beint til útlanda
Ef hringt er beint til Danmerkur, Færeyja, Noregs, Svíþjóðar eða
Þýskalands kostar hver mínúta 58 kr., en ef númerið er pantað
í gegnum 09, talsamband við útlönd, kostar hver mínúta 30 kr.
meira, eða 88 kr. samtals. Skv. upplýsingum frá Pósti og síma
er það afgreiðslugjald fyrir handvirka þjónustu.
Gjaldflokkar Pósts og síma eru
alls átta og kostar hver mínúta frá
58 kr. og upp í 225 kr. í sjálfvirku
vali til útlanda og frá 88 kr. og
upp í 328 kr. í gegnum 09 skv.
dagtaxta. Með öðrum orðum nem-
ur gjald fyrir handvirka þjónustu
30 kr. á mínútu í öllum gjaldflokk-
um nema í 8. flokki, en í þeim
flokki er afgreiðslugjald helmingi
hærra, 60 kr. mínútan. Sem dæmi
um lönd í þeim verðflokki má
nefna Alaska, Angóla, Barbados,
Egyptaland, Mexíkó, Saudi-Arab-
íu, Kenýa og Indland. Allar tölur
eru með virðisaukaskatti og einnig
skal tekið fram að minnsta gjald
í handvirka kerfinu eru 3 mín.
Með öðrum orðum er aldrei af-
greitt minna en 3ja mínútna sam-
tal til útlanda þó aðeins sé talað
í eina mínótu.
Daglegt líf gerði könnun á 10
mín. símtölum til og frá íslandi
og náði hún til átta landa, sem
öll eru í sitt hveijum verðflokkin-
um héðan.
Sigríður Jónsdóttir, deildar-
stjóri, segir að Póstur og sími semji
sérstaklega við símastjórnir ann-
arra landa um gjöld og leiðir sím-
talanna. Sigríður segir að fjarlægð
landanna skípti ekki öllu, heldur
kerfí og stefna viðkomandi síma-
stjórna. „Hin svokölluðu þriðja
heims lönd eru gjarnan með mjög
dýr kerfí og þurfa þau því að fá
meira fyrir sína þjónustu heldur
en önnur lönd. Hagstæðast er að
hringja til þeirra landa, sem við
höfum beint gervihnattasamband
við, t.d. til Norðurlandanna, Bret-
lands, Þýskalands og Bandaríkj-
anna.“
Að sögn Sigríðar hafa símtöl
héðan til útlanda farið stiglækk-
andi á undanförnum árum og því
má segja að Póstur og sími sé að
verða samkeppnisfær við önnur
Evrópulönd og Ameríku. í nóvem-
ber 1990 lækkaði gjaldskráin til
útlanda um 15% auk þess sem þá
kom inn sérstakur næturtaxti, sem
ekki hafði verið áður. í febrúar
1991 hækkaði gjaldskráin um
3,5%. 10% lækkun varð í júlí 1992
og þann 1. maí sl. lækkaði taxtinn
Hvað kostar
lOmínútna
samtalið
innanlands?
Dagtaxti, mán- fsstud. w. aoo-moo"
Lflokkur 8,30
2. flokkur 41,50
3. flokkur 62,30
KvÖldtaxti, mán-föstud. kl. 18,00-23.00
Lflokkur 4,20
2. flokkur 27,60
3. flokkur 41,50
Nætur- og helgartaxti
Lflokkur 4,20
2. flokkur 20,80
3. flokkur 31,20
um 5% til flestra landa.
„Yfirleitt er alls staðar tekið
gjald fyrir handvirka þjónustu, en
þó mismikið eftir löndum. Einnig
eru flest lönd með þriggja mínútna
lágmark á símtölum milli landa í
handvirka kerfinu. Með því er
m.a. verið að hvetja fólk til þess
að nota sjálfvirku þjónustuna
meira enda
er hún mun
ódýrari,“
segir Sig-
ríður. ■
Jóhanna
Ingvarsdóttir
Hvað kostar 10 mínútna samtal?
Dagtaxti frá íslandi gildirkl. 8.00-23.00 sjálfvirkt handvirkt (09) Næturtaxti frá íslandi gildir kl. 23.00-8.00 sjálfvirkt handvirkt (09) Dagtaxti til íslands sjálfvirkt handvirkt (09) '§F w‘ m Næturtaxti til íslands sjálfvirkt handvirkt (09)
Danmörk 580 880 435 735 640 1.005 640 1.005
Holland 610 910 455 755 678 810 452 584
Bretland 680 980 510 810 742 1.095 636 1.095
Bandaríkin 860 1.160 645 945 719-957* 932-1.383’ 574 787-1.000*
Kanada 980 1.280 735 1.035 989 1.384 519 914
Ástralía 1.500 1.800 1.125 1.425 1.333 1.716 1.333 1.716
Namibía 2.010 2.310 1.505 1.805 2.040 2.040 2.040 2.040
Kenýa 2.250 2.850 1.685 2.285 3.281 3.281 3.281 3.281
* í Bandaríkjunum er gjaldskráin eilítið lægri fyrir heimili en fyrir stofnair og fyrirtæki.
Tölurnar eiga við heimilisgjaldskrá símafyrirtækisins AT&T, sem skiptir deginum upp
í þrjá verðflokka. Frá 7.00-13.00 kostar 10 mín. símatal til íslands 719 kr„ frá
13.00-20.00 kosta 10 mín. 957 kr og frá 20.00-7.00 574 kr.
símstöð og númerið pantað, leggjast 213 kr. ofan á, en 426
ákveðnum viðmælenda á hinn endann.
Sé farið í gegnum
kr. óski maður eftir
<uölcL
INORRÆNA HUSINU
í tilefni af útkomu síðara bindis Ódysseifs eftir
James Joyce í þýðingu
Sigurðar A. Magnússonar
Föstudaginn 19. nóvember kl. 20.30
Gestur kvöldsins: Ken Monaghan frá James
Joyce Cultural Centre í Dyflinni. Ken flytur
spjall sem hann nefnir James Joyce og rætur
hans í Dyflinni. Lesið verður úr þýðingunni
og sýndar skyggnur frá sögusviði Ódysseifs.
Erindið verður flutt á ensku.
Veitingar
Aðgangur ókeypis - allir velkomnir
______rihhiHih________
HEIMSBÓKMENNTAKLÚBBUR
Máls & menningar
Verslunin Bónus býður
ódýrara Mackintosh en F & A
FYRIR nokkru olli miklu fjaðra-
foki þegar verslunin F&A bauð
viðskiptavinum upp á ódýrara
Machkintosh en fæst í fríhöfn-
inni. Nú hefur Bónus náð samn-
ingum við innflytjendurna Danól
og selur konfektið í tveggja kílóa
dósum 56 krónum ódýrara en
F&A selur það núna eða á 1.587
krónur. Tveggja kílóa dós kost-
aði í gær 1770 kr. í Fríhöfninni.
Jóhannes Jónsson í Bónus segist
nú hafa gert hagstæðan samning
við innflytjanda og hafa keypt kon-
fektið í mjög miklu magni. „Það
skýrir hvemig ég get boðið við-
skiptavinum konfektið á þessu
verði.“
Breskt konfekt
Að sögn innflytjandans sem er
heildverslun Daníels Ólafssonar
flytja þeir sælgætið inn frá Haiifax
í Bretlandi en starfsemin flutti
þangað frá Frakklandi. Innihald er
svipað og það franska sem hingað
til hefur verið til hér. Hinsvegar
vantar 1-2 karamellur sem eftir
áralangar rannsóknir var ákveðið
að taka út og í staðinn eru tvær
nýjar tegundir og sumir konfekt-
molar hafa fengið nýtt útlit.
Þetta er nákvæmlega sama kon-
fekt og Friðrik G. Friðriksson hjá
F&A er að flytja inn. Ætlar hann
að lækka Mackinstoshið hjá sér?
„Mér finnst móðgun við neytend-
ur að geta á einni viku lækkað
konfektdós um heilar 1000 krónur.
Þeir hefðu getað selt á lægra verði
fyrr en við erum ánægðir með að
stuðla að lægra vöruverði. Ég tek
ekki þátt í verðstríði sem er von-
laust fyrirfram samanber litlu versl-
anirnar á Akureyri. Að svo komnu
lækka ég Mackintoshið ekki meira
og sel það ekki undir kostnaðar-
verði.
Konfektið hefur lækkað um
þúsund krónur
Daglegt líf fékk konfektdósir frá
F&A og Bónus og dagsetningin á
konfektinu frá Bónus er 28.02.95
en hjá F&A var dagsetningin
01.05.94. Stimplarnir voru ekki eins
að útliti. Dósirnar voru ekki alveg
eins, dósin frá F&A var átthyrnd
en sú frá Bónus kringlótt. Molarnir
voru eins nema einungis var einn
blár moli í allri Bónusdollunni.
Verðið hefur lækkað mikið í öðr-
um verslunum, hjá Nóatúni kostar
núna 2ja kílóa dós 1.699 kr. Hjá
Hagkaup var verðið í gær enn 2.595
kr. en hjá Fjarðarkaupum var verð-
ið komið niður í 1.630 krónur.
Tveggja kílóa dósir af Mackint-
osh hafa semsagt lækkað um þús-
und krónur á nokkrum vikum. a
grg