Morgunblaðið - 18.11.1993, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 18. NOVEMBER 1993
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Evrópu-
meistarar
Dana úr leik
LÁNIÐ lék við Ira í gærkvöldi.
Þeir náðu jafntefli gegn Norð-
ur-írum í Belfast og komust
áfram þar sem þeir gerðu fleiri
mörk en Danir, sem máttu
sætta sig við 1:0 tap gegn
Spánverjum í Sevilla, þrátt fyrir
að vera einum fleiri nær allan
leikinn. Evrópumeistararnir
sitja því eftir með sárt ennið,
en írar mæta í aðra lokakeppn-
ina í röð.
Þegar átta mínútur voru liðnar
af leik Spánveija og Dana fékk
Andoni Zubizarreta, markvörður
Spánar, að sjá rauða spjaldið fyrir
að bijóta á Michael Laudrup rétt
utan vítateigs. Zubizarreta gaf á
samheija sinn hjá Barcelona og
Laudrup, einn gegn einum, ætlaði
að leika á félaga sinn með fyír-
greindum afleiðingum. Töluverð
harka færðist í leikinn, en fátt var
um fína drætti. Danir náðu ekki að
nýta sér liðsmuninn og Femando
Hierro sendi þá útí kuldann um miðj-
an seinni hálfleik, þegar hann skall-
aði í netið eftir horn frá Juan Goiko-
etxea. Peter Schmeichel virtist eiga
greiða leið að boltanum á undan
Hierro við fjærstöng, en danska
markverðinum brást bogalistin.
Danir sóttu stíft í byijun seinni
hálfleiks, en dæmið gekk ekki upp.
Spánveijar náðu tökum á miðjunni
Kosta-
dinov
sökkti
Frökkum
EMIL Kostadinov gerði út
um vonir Frakka um að
komast upp úr 6. riðli er
hann skoraði sigurmark
Búlgara, 2:1, á síðustu mín-
útunni í París, en Frökkum
hefði dugað jafntefli.
Kostadinov, sem gerði einnig
jöfnunarmarkið eftir að
Eric Cantona hafði komið Frökk-
um yfir, skoraði sigurmarkið með
þrumuskoti frá vítateigshomi —
efst í vinkilinn. Þessi úrslit voru
mikið reiðarslag fyrir Frakka á
Parc des Princes-leikvanginum
því þeir töpuðu einnig gegn ísra-
el á síðustu mínútu leiksins fyrir
mánuði síðan.
„Þetta kvöld er það slysaleg-
asta sem hægt er að ímynda sér
í knattspyrnunni," sagði Houllier,
þjálfari Frakka, eftir leikinn.
„Búlgarar áttu ekki eitt færi
milii þess sem þeir gerðu þessi
tvö mörk. Eg mjög vonsvikinn
fyrir hönd leikmannanna, þeir
hafa unnið mjög vel í fimmtán
mánuði. Ég held að þessi ótrúlegi
endir gegn ísrael hafí grafíð
undan sjálfstraustinu í liðinu.
Þetta er svolítið óréttlátt. Heppn-
in brosti svo sannarlega ekki við
okkur,“ sagði Houllier.
„Ég lék sjálfur þrívegis í úr-
slitakeppni HM sem leikmaður
en þetta verður sú fyrsta sem
þjálfari," sagði Dimitar Penev,
þjálfari Búlgaríu. „Ég er mjög
ánægður með sigurinn. Ég vissi
að Frakkar yrðu hræddir og það
kom berlega í ljós á vellinum.
Við lékum eins og við vomm
búnir að ákveða fyrirfram," sagði
þjálfarinn.
og sendu Evrópumeistarana sneypta
heim með jafn mörg stig og írar en
lakari markatölu.
Kiko Narvaez fékk tækifæri til
að bæta öðru marki við fyrir Spán-
veija þremur mínútum fyrir leikslok,
en Schmeichel sá við honum.
Skömmu áður bjargaði Jose Caniz-
ares, sem lék mjög vel í þessum
fyrsta landsleik sínum, varði meist-
aralega eftir bakfallsspymu frá Bent
Christensen.
Javier Clemente, þjálfari Spánar,
var að vonum ánægður. „Þrátt fyrir
slæma byijun stóðum við okkur vel.
Við skomðum o gDanir áttu ekki
svar. Frábært."
Spánn: Andoni Zubizarreta, Albert Ferrer,
Francisco Camarasa ( Jose Canizares 10.),
Rafael Alkorta, Miguel Nadal, Femando
Giner, Femando Hierro, Juan Goikoetxea,
Julio Salinas ( Francisco Narvaez „Kiko“
52.), Jose Bakero, Luis Enrique.
Danmörk: Peter Schmeichel, Jacob Friis
Hansen, Mark Rieper, Lars Olsen, Henrik
Larsen, Brian Steen Nielsen (Jes Hoegh
46.), John Jensen, Kim Vilfort, Flemming
Povlsen (Bent Christensen 70.), Michael
Laudrup, Brian Laudmp.
írum dugði jafntefli
Norður-írar höfðu undirtökin í
Belfast, en tókst ekki að skora fyrr
en stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Glæsilegu marki Jimmy Quinn var
vel fagnað, en mínútu síðar sló þögn
á áhorfendur, þegar varamaðurinn
Alan McLoughlin jafnaði.
írar aftur í úrslitakeppnina
Reuter
IRAR verða eina liðið frá Bretlandseyjum á HM í Bandaríkjunum. Þeir fagna hér eftir jafntefli í Belfast í gærkvöldi;
Denis Irwin, bakvörður frá Manchester United, faðmar samheija sinn Roy Keane (6) og til hægri er Pat Bonner, mark-
vörður.
Grikkir urðu efstir
Grikkir urðu í fyrsta sæti í 5. riðli, sem íslendingar léku í. Þeir unnu
Rússa í Aþenu í gærkvöldi að viðstöddum 55 þúsund áhorfendum,
með marki Nikos Mahlas á 68. mínútu. Þetta er í fyrsta sinn sem Grikk-
ir komast í lokakeppni HM. „Þessi sigur sýnir að við eigum fyllilega heima
í úrslitakeppninni og getum sigrað hvaða Evrópuþjóð sem er,“ sagði Alket-
as Oanagoulias þjálfari Grikkja eftir leikinn. „Þetta var frábært kvöld og
ég lofa grískum knattspyrnuáhugamönnum fleiri slíkum í úrslitakeppninni.
Komnip áfpam á HM í Bandaníkjunum
KAMERUN
NÍGERÍA
MAROKKÓ
ASÍA
SUÐUR-KÓREA
SAUDI ARABÍA
Arg'éntínunnenn og
Astralir kepptu í nótt um
siðasta sætið í lokakeppninni
Rutherford/
Piscataway,
N.J.
. Orlando/
,ÉK" Kissimmee-
St. Cloud
RUSSLAND
GRIKKLAND
NOREGUR
SVÍÞJÓÐ
HOLLAND
ÍTALÍA
SVISS
BELGÍA
RÚMENÍA
BÚLGARÍA
SPÁNN
ÍRLAND
BRASILÍA
KÓLUMBÍA
BÓLIVÍA
MEXÍKÓ
FOLK
■ ÍTALIR unnu Portúgali í 1. riðli
og héldu fyrsta sætinu en þjóðimar
voru jafnar að stigum fyrir leikinn.
Dino Baggio gerði eina mark leiks-
ins á 86. mínútu við mikinn fögnuð
86.000 áhorfenda.
M ÍTALIR hafa ekki tapað lands-
leik í knattspymu í Mílanó í 68 ár.
Leikið var á San Siro vellinum þar
í borg í gærkvöldi.
■ AHORFANDI á leik Wales og
Rúmeníu, aldraður Wales-búi, lést
er hann varð fyrir flugeldi undir lok
leiksins. Flugeldinum var skotið frá
því svæði þar sem rúmensku áhorf-
endumir voru, fór yfir völlinn og í
manninn, með þessum afleiðingum.
■ DICK Advocaat mun mun lík-
legast ekki stjórna Hollendingum í
úrslitakeppninni. „Það var um það
rætt fyrir tveimur árum að Johan
Cruyff myndi taka við liðinu fyrir
úrslitakeppnina þannig að ég er alls
ekki vonsvikinn. Hollendingar eiga
möguleika í úrslitakeppninni en við
erum með mjög ungt lið og framtíð-
in er því björt,“ sagði Advocaat eft-
ir. sigurinn á Póllandi.
■ RÆTT hefur verið um að Gra-
ham Taylor yrði látinn hætta sem
landsliðsþjálfari kæmist England
ekki í lokakeppnina. Hann neitaði
að tjá sig um það mál í gær.
Englendingar sHja heima
Englendingar verða ekki með í
úrslitakeppninni í Bandaríkj-
unum næsta sumar þrátt fyrir 7:1
sigur á San Marinó í síðasta leikn-
um. Þeir urðu að vinna með sjö
marka mun að því tilskildu að Pól-
veijar færu með sigur gegn Hollend-
ingum. Það varð ekki því Holland
vann 3:1 og möguleikar Englend-
inga því engir.
Það byijaði ekki gæfulega í Bo-
logna á Italíu þar sem leikurinn fór
fram því eftir aðeins tíu sekúndur
skoruðu heimamenn. Fyrirliði Eng-
lendinga, Stuart Pearce ætlaði að
gefa aftur til Davids Seamans en
sendingin var allt of stutt og Gualti-
eri náði knettinum og skoraði.
Englendingar léku ekki vel þrátt
fyrir sigurinn og voru heppnir að fá
ekki á sig annað mark þegar heima-
menn skutu í stöng.
Á sama tíma og enskir rembdust
við að sigra með átta marka mun
og vonast eftir sigri Pólveija skoraði
Dennis Bergkamp tvívegis í Póllandi
og kom Hollendingum í 2:0. „Hann
sýndi í kvöld hvers hann er megnug-
ur. Frábær leikmaður," sagði Dick
Advocaat þjálfari Hollendinga um
Bergkamp. Ronald de Boer gerði
þriðja markið undir lok leiksins og
því fylgja Hollendingar Norðmönn-
um til Bandaríkjanna úr 2. riðli.
Rúmenar fóru áfram
Belgía og Rúmenía komust áfram
úr 4. riðli, en Wales missti enn einu
sinni af lestinni. Belgar og Tékkar
gerðu markalaust jafntefli í Briissel,
en Rúmenar unnu 2:1 í Cardiff.
Gheorghe Hagi skoraði fyrir gestina
eftir hálftíma leik, en Dean Saund-
ers jafnaði um miðjan seinni hálf-
leik. Heimamenn fengu gullið tæki-
færi til að snúa leiknum sér í hag
tveimur mínútum síðar, sem hefði
nægt í lokakeppnina, en Paul Bodin
skaut í slá úr vítaspyrnu og Florin
Raducioiu, sem leikur með AC Milan,
gerði draum Wales að engu sjö mín-
útum fyrir leikslok. Þetta var níunda
mark hans í keppninni og Rúmenía
leikur í sjötta sinn í úrslitum.
Mikil spenna var í Cardiff, jafnt
innan sem utan vallar. Neville Sout-
hall, sem lék 71. landsleik sinn, hef-
ur oft verið traustasti hlekkurinn,
en hann átti fyrsta markið, missti
boltann undir sig. Ian Rush var ná-
lægt því að jafna í byijun seinni
hálfleiks, en skallaði rétt yfír. Þetta
hleypti samt lífi í heimamenn og
Saunders jafnaði eftir aukaspyrnu
frá Ryan Giggs, en lið Wales var
heillum horfið.
Síðasti leikur Tékkoslóvakíu
Varnarmaðurinn Philippe Albert
fékk að sjá rauða spjaldið eftir 50
mínútur, en Belgar héldu hreinu og
tryggðu sér sæti í úrslitum í fjórða
sinn í röð. Sigur hefði komið Tékk-
óslóvakíu áfram, en tapið þýðir jafn-
framt endalok liðsins — héðan í frá
koma Tékkland og Slóvakía í stað-
inn.
„Bandaríkin, Bandaríkin," sungu
belgískir áhorfendur í Ieikslok og
allt ljómaði í flugeldum. „Ég er svo
ánægður," sagði Paul Van Himst,
þjálfari Belga. „Þegar Albert fékk
rauða spjaldið var mér öllum lokið
— þetta var búið, hugsaði ég. Við
áttum ágæta spretti inná milli í fyrri
hálfleik, en Tékkarnir voru ákveðn-
ari.“