Morgunblaðið - 17.06.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17.JÚNÍ 1994 31
HAFIMARMAL HORNFIRÐINGA
arra úrræða. Hugmyndir hans eru
á þá leið að byggð verði ný höfn
í Hornsvík. Hún verði fyrst og
fremst ætluð stærri skipum. Þessa
nýju höfn vill Ástvaldur tengja
höfninni á Höfn með skurði um
Skarðsfjörð utan við Mikley, en
hún yrði fyrir smærri báta. Til að
bæta skilyrðin vill Ástvaldur jafn-
framt loka með görðum úr Oslandi
út í eyjuna Helli og þaðan yfir á
Austurfjörur. Hugmyndin með
þessu er að hefta sandrót úr vestri.
Skarðsfjörð mætti síðan móta sem
dokk.
Ástvaldur hefur verið á sjó meira
og minna í hálfa öld. Lengst af
var hann á skipum gerðum út frá
Hornafirði og gjörþekkir því stað-
hætti. Hann hefur margan hildinn
háð við Hornafjarðarós og telur
nú mál að linni. Hann hefur safnað
saman upplýsingum um sjóslys
sem orðið hafa síðastliðin sextíu
ár á u.þ.b. fjögurra fermílna svæði
utan við ósinn, frá Sveinsboða að
Borgeyjarboða og frá Hvanney út
fyrir Hvanneyjarsker. Ástvaldi
telst til að á þeim tíma hafi tveir
tugir manna orðið ægi að bráð.
Hann segir öll slys á þessum slóð-
um eiga sama aðdraganda, átök
aðstraumsins í ósnum við úthafs-
ölduna.
Ástvaldur ræður ráðamönnum
alfarið frá því að halda áformum
sínum til streitu og bend- -------
ir á að fleiri möguleikar
gætu verið í boði. Hann
segist upphaflega hafa
gert tillögu um að Horns- ________
vík yrði rannsökuð með
tilliti til hafnarframkvæmda árið
1990. Hún hlaut ekki hljómgrunn
meðal ráðamanna. Þetta segir Ást-
valdur dapurlegt því nú gætu rann-
sóknir á Hornsvík legið fyrir hefði
verið ráðist í þær strax. Hann tel-
ur samt seint betra en aldrei. „Nú
hef ég undir höndum sjómælingar
frá bandaríska sjóhernum af þessu
svæði. Þær gefa góðar vísbending-
ar um að hægt sé að gera þarna
framtíðarhöfn," segir Ástvaldur og
bendir á, að í línunni á milli Stokks-
ness og Hafnartanga sé dýpið á
níunda metra á stórstraumsfjöru.
„Víkin er vel varin fyrir öllum átt-
um nema austanátt, eins og Þor-
lákshöfn. En þar eru bara byggðir
brimvarnargarðar sem siglt er á
milli. Það er ein fjölfarnasta höfn
við landið.“
„Virðing
fyrir náttúru-
öflunum.“
Fastir í viðjum vanans
Ástvaldur er engan veginn sátt-
ur við framvindu mála. Hann dreg-
ur enga dul á að honum þykir við-
horf ráðamanna einstrengingslegt.
„Þeir eru fastir í viðjum vanans
og virðast ekki sjá aðra mögu-
leika.“ Samkvæmt hans hugmynd-
um myndu garðar aðskilja Horna-
fjörð og Skarðsfjörð og sandrótið
að vestan myndi því ekki hafa
nein áhrif. „Hornafjarðarós hefði
þá sína hentisemi í takt við nátt-
úruöflin og áhyggjur af honum
væru úr sögunni.“
„Þó nú sé verið að reyna að
halda rennunum úr ósnum djúpum
og greiðum, vitum við að þessi
innsigling svarar aldrei kröfum
tímans. Hún verður bara fyrir lítil
og grunnskreið skip,“ segir Ást-
valdur og álítur það slæmt fyrir
Höfn. Hann bendir á að þótt loðn-
an gangi árvisst upp að Suðaustur-
ströndinni myndi engum detta í
hug að reisa nýtísku loðnuverk-
smiðju á Höfn þar sem einungis
minnstu skipin komist inn á Horna-
fjörð og þau séu óðum að úreldast.
Ástvaldur telur það fásinnu að
eyða stórum fjárupphæðum í hafn-
arbætur þar sem hafnarskilyrði séu
ef til vill ekki til framtíðar og
mannslíf séu sífellt í hættu. ,iÞess-
ar fyrirhuguðu framkvæmdir hafa
_________ engin áhrif á mesta
hættusvæðið," segir
hánn og leggur þunga
áherslu á, að aðrir
möguleikar varðandi
“““““ hafnaraðstöðu séu skoð-
aðir vandlega áður en lengra er
haldið.
Enginn tími
Ari Jónsson, formaður hafnar-
nefndar á Höfn, segir hugmyndir
Ástvaldar að mörgu leyti góðra
gjalda verðar. Þær séu í það
minnsta vel þess virði að þeim sé
nánari gaumur gefinn. Hann segist
þó gera sér fullkomna grein fyrir
því að það verði ekki gert í nán-
ustu framtíð. Skortur á tíma og
íjármagni geri þar útslagið. Hann
viðurkennir að kannanir á aðstæð-
um í Hornsvík hafi aldrei verið
gerðar en kveðst hallur undir þann
möguleika. Þrátt fyrir að engin
kostnaðaráætlun liggi fyrir varð-
andi hafnargerð í Hornsvík segir
Ari ljóst, að um dýra framkv.æmd
sé að ræða. Ekki síst í samanburði
við þær framkvæmdir sem fyrir-
hugaðar eru við ósinn.
Ari bendir á, að ef af hafnar-
framkvæmdum í Hornsvík yrði
myndu þær taka langan tíma.
Þetta þykir honum brýnt að tekið
sé með í reikninginn. „Það mun
líða langur tími frá því að undir-
búningsvinna hefst og þar til not-
hæft mannvirki hefur risið." Ari
segir ljóst, að hafnarmál Hornfirð-
inga geti ekki verið í biðstöðu
meðan á þeim framkvæmdum
stendur. „Hér ríkti neyðarástand
fyrir 1990 og við því varð að bregð-
ast. Það var enginn tími til þess
að bíða.“ Hann segir úrbæturnar
við ósinn enga endanlega lausn en
brýnt sé þó að ljúka við þær áður
en lengra er haldið. Að því loknu
megi síðan fara að velta öðrum
möguleikum fyrir sér í rólegheit-
um.
Sturlaugur Þorsteinsson, bæjar-
stjóri á Höfn, tekur í sama streng
og Ari hvað varðar skort á tíma
og fjármagni. Hann segir þó að
endurbætur á núverandi hafnarað-
stæðum útiloki engan veginn fram-
kvæmdir á öðrum stað, s.s. Horns-
vík, síðar meir. Sturlaugur leggur
þó áherslu á að framkvæmdir á
þeim slóðum gætu haft allt að því
tífaldan kostnað í för með sér. Á
þessari stundu segist bæjarstjórinn
því standa heilshugar að baki þeim
framkvæmdum sem fyrirhugaðar
eru við ósinn.
Draumórar
Ólafur Björn Þorbjörnsson hefur
verið skipstjóri á Höfn í 25 ár og
hefur auk þess átt sæti í hafnar-
nefnd um nokkurra ára skeið.
Hann gefur ekki mikið fyrir hug-
myndir um höfn í Hornsvík. „Það
eina sem við höfum hug á er að
laga innsiglinguna þar sem siglt
hefur verið inn í tugi ára. Hún er
mjög góð. Það verður bara að bera
virðingu fyrir náttúruöflunum.“
Hann segir sjóvarnargarðinn á
Suðurfjörunni hafa skilað sínu
hlutverki og leggjast áframhald-
andi framkvæmdir vel í hann.
„Þetta er okkar höfn og við erum
bara að laga hana til. Hugmyndir
um höfn í Hornsvík eru bara
draumórar." Ólafur segir höf-
uðmarkmiðið vera að veijast út-
hafsöldunni og fagnar tilkomu
upplýsingakerfisins, sem geri sjó-
mönnum mun auðveldara um vik.
„Straumurinn og myrkrið er okkar
versti óvinur þegar hvasst er.“
Hann telur að sjóslys séu ekkert
algengari við Hornafjarðarós en
annars staðar og leggur áherslu á
að innsiglingin sé yfirleitt ekki
hættuleg þótt hún geti verið erfið.
Að mörgu að hyggja
Gísli Viggósson segir hugmyndir
um nýja höfn í Hornsvík ekki nýj-
ar af nálinni og kveðst meðvitaður
um að þær njóti nokkurs fylgis,
en að mörgu sé að hyggja. „Tækni-
lega séð er mögulegt að byggja
höfn í Hornsvík. Víkin er hins veg-
ar svo grunn að hún er ekki nægi-
lega gott var,“ segir Gísli og bend-
ir á að hún sé meðal annars opin
fyrir norðaustanátt, sem ósinn sé
ekki. Hann- segir ennfremur, að
skip hafi aldrei leitað vars í Horns-
vík fyrir suðvestanátt.
Gísli leggur áherslu á, að svipað
dýpi sé í ósnum og Hornsvík. Til
þess að hafnarskilyrði í Hornsvík
tækju skilyrðunum í ósnum fram
yrði að færa höfnina talsvert utar.
Til þess þyrfti að byggja brimvarn-
argarða og slíkar framkvæmdir
yrðu afar kostnaðarsamar. Gísli
segist einnig hafa efasemdir um
skipaskurð á Skarðsfirði. „Ef við
færum í hafnargerð í Hornsvík
geri ég ráð fyrir að höfnin yrði
alfarið þar.“ Gísli segir að ýmislegt
sé hægt en hér sé verið að ræða
um óraunhæfar framkvæmdir.
„Við gerum okkur grein fyrir að
aðstæður utan við Hornafjarðarós
eru mjög erfiðar. Við teljum okkur
því skylt að leita að hagkvæmustu
lausninni og hún er að bæta skil-
yr^ðjn yjfl psipn," , ,
Vorum að taka upp
meiriháttar sumartöskur, skart, slæður o.fl.
Frábært verS frá kr. 2.985 - 3.900
snyrti- og gjafavöruverslun,
Miðbæ, Háaleitisbraut.
Til hamingju með lýðveldisafmælið
Minnum á:
Sérstakan blaftaauka um Island i blaðinu i dag!
I mánudagsblaðinu:
-íþróttir
I þriðjudagsblaðinu:
-Tiska
I miðvikudagsblaðinu:
-Hvab er á fjölunum og skemmtanir
I fimmtudagsblaðinu:
-Heilsa og vísindi
I föstudagsblaðinu:
-Ferbalög og fritími
I laugardagsblaðinu:
-Listir og fjármál
Auk þessara föstu liba skrifar blaftið daglega um: vi&buröi,
listir, vísindi, viðskipti, verslun, stjórnmál,efnahagsmál, mat,
tísku, kvikmyndir, leikhús, bækur, ferbalög, bridge, skák
o. fl. o.fl.
Heimsþekktir dálkahöfundar og Pulitzerver&launahafar
skrifa reglulega í Herald Tribune.
Fáanlegt samdægurs á íslandi í lausasölu í helstu bákabúöum
og á feröamannastööum um allt ísland e&a í áskrift
i síma 621029.
Vekjum sérstaka athygli á að blaðið fæst í kvöldsölunni á Laugalæk 2,
(opið til 23.30 alla daga].
Samdægurs á íslandi.
ÍÍeralbSKSribune
ISWhh.-.! VlAh IV V« VvV llm.' ...H V I»M
FJOR
Vt 7.
KOLAPORTIÐIDAG
Laugardag kl. 13
SKEMMTILEGIR VINNINGAR
2
LSITip ,
KOLAPORTSFJARSJOÐNUM
Sunnudag kl. 14
SKEMMTILEGIR VINNINGAR
Hátt í 200
seljendur verða
með f jölbreytta
vöru á
markaðs-
torginu.
Opið laugardag kl. 10-16
og sunnudag kl. 11-17
Svanborg hf.
verður með
körfubolta-
keppnir og
skiptimarkað
á körfubolta-
myndum
báða dagana.
SKEMMTILEGIR
VINNINGAR
KOLAPORTIÐ
-fyrirþá sem erfalandið