Morgunblaðið - 20.03.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997 29
ILISTIRI
íris
Erlingsdóttir
Einsöngs-
tónleikar
í Noræna
húsinu
ÍRIS Erlingsdóttir sópran og Iwona
Jagla píanóleikari halda eisöngstón-
leika í Norræna
húsinu í Reykja-
vík í dag,
fimmtudaginn
20. mars, kl.
20.30. Tónleik-
arnir eru lokaá-
fangi burtfarar-
prófs írisar frá
Söngskólanum í
. Reykjavík.
Á efnisskránni
er m.a. ljóða-
flokkurinn Frauen liebe und leben
eftir Schumann, ljóðasöngvar eftir
Grieg, íslensk sönglög eftir Sigfús
Einarsson, Karl 0. Runólfsson og
Þórarin Guðmundsson, og óperuar-
íur eftir Hándel, Boito og Puccini.
Iwona Jagla píanóleikari er kenn-
ari við Söngskólann í Reykjavík.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Kvartett
Tómasar R.
hjá Múlanum
KVARTETT Tómasar R. Einarsson-
ar verður með jazztónleika á vegum
jazzklúbbsins Múians á Jómfrúnni
föstudaginn 21. mars kl. 21.
kastamikill laga- TómasR.
smiður á liðnum Einarsson
árum, en oftast
haft blásara eða söngvara í for-
grunni í tónlist sinni. Að þessu sinni
ýti hann bassanum framar á sviðið
ef svo megi segja í nýjum lögum
eftir sjálfan sig. Þeir sem skipa kvart-
ettinn ásamt honum eru píanóleikar-
inn Eyþór Gunnarsson, trommuleik-
arinn Gunnlaugur Briem og saxófón-
leikarinn Óskar Guðjónsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er
miðaverð kr. 1.000, kr. 500 fyrir
ellilífeyrisþega.
Söngtónleikar
á Hvolsvelli
STEINUNN Ósk Kolbeinsdóttir
mezzosópran og Agnes Löve píanó-
leikari halda tónleika i sal Tónlistar-
skóla Rangæinga á Hvolsvelli í dag
fimmtudaginn 20. mars kl. 21.
Flutt verður fjölbreytt dagskrá
með lögum eftir ýmsa höfunda, inn-
lenda og erlenda.
Steinunn Ósk er kennari að mennt
og starfar sem slíkur við Grunnskól-
ann á Hvolsvelli. Hún er nemandi við
söngdeild Tónlistarskóla Rangæinga
og stefnir að því að taka 7. stig
næsta haust. Kennari hennar er Jón
Sigurbjörnsson óperusöngvari.
Þetta eru þriðju einsöngstónleikar
skólans sem haldnir eru nú í vor en
þeir eru liður í 40 ára afmælishaldi
Tónlistarskólans og er aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Strengjasveitar-
tónleikar
TÓNLEIKAR verða haldnir á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík föstu-
daginn 21. mars nk. kl. 20.30 í Ás-
kirkju. Strengjasveit yngri deildar
undir stjórn Rutar Ingólfsdóttur flyt-
ur Sinfóníu nr. 3 í G-dúr eftir An-
tonio Vivaldi, Concerto grosso í D-
dúr op. 6 nr. 5 eftir Georg Fr. Hánd-
el, Piéces en Concert eftir Francois
Couperin, Konsert í a-moll BwV
1041 eftir Johann Sebastian Bach
og nokkur pólsk þjóðlög í útsetningu
W. Lutoslawski.
Strengjasveit yngri deildar skipa
Aldís Pálsdóttir, fiðla, Ari Þór Vil-
hjálmsson, fiðla, Elín Steinarsdóttir,
fiðla, Guðný Guðmundsdóttir, fiðla,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, fiðla, Jón
Árni Helgason, fiðla, Ólöf Júlía
Kjartansdóttir, fiðla, Sigríður Vala
Gunnarsdóttir, fiðla, Sólrún Mel-
korka Maggadóttir, fiðla, Stefanía
Ólafsdóttir, fiðla, Þorgerður Hulda
Reynisdóttir, fíðla, Margrét Árna-
dóttir, selló, Axel Steinarsson, selló,
Gréta Rún Snorradóttir, selló, Bjarni
Benedikt Björnsson, kontrabassi.
Einleikarar á tónleikunum eru Ólöf
Júlía Kjartansdóttir, fiðla, Ari Þór
Vilhjálmsson, fiðla og Margrét Árna-
dóttir, selló, auk þess leikur Margrét
María Leifsdóttir, fiðlusmiður með á
víólu.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Aöalfundur
Hins íslenska
kvikmynda
fræðafélags
Aðalfundur Hins íslenska kvik-
myndafræðafélags verður haldinn
fimmtudaginn 20. mars kl. 20.15 á
Kornhlöðuloftinu. Viðfangsefni
fundarins eru hefðbundin aðalfund-
arstörf.
Sýningu Nönnu
Ditzelaðljúka
SÝNGINGU danska hönnuðarins
Nönnu Ditzel á húsgögnum, vefnaði
og skartgripum í Ráðhúsi Reykjavík-
ur lýkur sunnudaginn 23. mars.
í kynningu segir, að sögn Nönnu,
er þetta ein besta sýning hennar og
salurinn vel til falinn að sýna hluti
hennar.
VIÐ LEYSUM VANDAMÁLIN
Kynning verður á hinum margverðlaunuðu
ELANCYL vörum sem bjóða upp á
mismunandi meðferð við ŒLLULITE
í dag: LYFJA, Lágmúla 5, kl. 14-18
Ií||
A morgun: INGOLFSAPOTEK,
Kringlunni, kl. 14-18
Gjöf fyigir
Komið og fáið faglega ráðleggingu. kaupum
Qpegar tslemki osturinn er kominn á
ostabakkann, jiegar hann kórónar matamerdina
- brreddur eda Bfúpsteiktur - eða er einfoa '
settur beint í munninn
- há er íiátíðl
oðdenskur (átyketa
í krjjddoTíu
Frábær með fersbu salati
og sem snarl.
áUðala Uá'ric
Á ostababhann og með
bexi og ávöxtum.
oMascarpone
Góður einn og sér og
tilvalinn í matargerðina.
dUftónda (Ufirie
Með bexinu, brauðinu og
ávöxtunum. Mjög góður
djúp- eða smjörsteibtur.
(éplvítur kasta/i
Með fershum ávöxtum
eða einn og sér.
(Utyónuwstue
Á hexið, brauðið,
í sósur og ídýfur.
k
Uóúxusijc/a
Mest notuð eins og hún bemur fyrir
en er einbar góð sem fylling í bjöt- og
fishrétti. Bragðast mjög vel djúpsteiht.
■^nor.i -UUðímon
Ómissandi þegar vanda
á til veislunnar.
tur
tyaamembert
Einn og sér, á ostababbani
og í matargerð.
Qport (Usa/ul
Bestur með ávöxtum, brauði
og hexi.
w
Tilvalinn til matargerðar - í súpur,
sósur eða til fyllingar í hjöt- og
fiskrétti. Góður einn og sér.
(Qptvíttauks ofðrie |
Kærhominn á f
ostabahhann, með hexi,
brauði og ávöxtum. §
oPepperoneostur
Góður í ferðalagið.
ÍSLENSKIR
OSTar^
^eina sta
l
I