Morgunblaðið - 20.03.1997, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRUMSYNING: FYRSTU KYNNI
★ ★★
A.l. Mbl
□□Dolby
DIGITAL
mmim
u u U n u
BUÐU ÞIG UNDIR FRAMTIÐINA
Sýnd kl. 6.50, 9 og 11.15. B. i. 12 ára
-ST.A.rS-EFTIR
“'DACA
EFTIR CTAP
DAGA WARS
r • i
HÁSKÓLABÍÓ
SIMI 552 2140
Gott 1>
Háskólabíó
FORSALA HAFIN I
SKÍFUNMI OG HÁSKÓLABÍÓI
FRUMSYNING
Tilnefnd til Óskarsverðlauna - Besta erlenda myndin
Sjáðu
Kolya
★★★ 1/2
★«* 1
Á. Þ. Dagsljós
★ ★★l
A. S. Mbl
Golden Globe
1997-
Besta erlenda
myndin
KO L YA
„Kolya er bæði óvenju vel skrifuð og leikin mynd." SV. MBL.
„Leikur Chalimon í nlutverki Kolya er einstakur og má segja að hann
eigi allar taugar áhorfenda frá því hann byrtist við dyrnar hjá Louka"
Hilmar Karlsson DV
„Þessi mynd er galdur sem dáleiðir þig, nær þér gjörsamlega á sitt
band og þú óskar þess að hún megi aldrei hætta."
Ásgrímur Sverrisson (Land og synir, rit kvikmyndagerðarmanna)
„Hjartastyrkjandi perla sem hlýtur að fá erlenda Óskarinn"
Þorfinnur Ómarsson (Land og synir)
Sýnd kl 5, 7, 9 og 11.10.
K$0Sl
... Jvk IjQtarHs Jvil
Dagana 18-26 mars
HVÍTLAUKSRISTAÐUR SMOKKFISkllR í
STEIKT TINDABYKKJUBQRÐ- MEÐ CAPtna ||
BAKAÐ GEIRNYT Á GULRÓTARSOSU•KÚFSKE
LANGHALI í KARTÖFLUHJ.ÚP • GRÍLLAÐUR
HEITREYKTUR HÁVUR • REYKT ÁLATERRI^®
FRÖNSK FISKISÚPA-HVALUR
HNÍSA
PÓSTI/E
SVANNI
Stangarhyl 5
Pósthólf 10210,130 Reykjavík
Kennitala 620388 - 1069
Sími 567 3718 Fax 567 3732
VORVÖRURNAR KOMNAR
fallegir litir - glæsilegt úrval
Sendum pöntunarlista út á land, sími 567 3718
Opið virka daga frá kl. 10-18 & laugardaga 10-14 út maí.
Skemmtanir
■ GAUKUR Á STÖNG Hljómsveitin Sól
Dögg leikur fimmtudagskvöld. Hljómsveitin
hefur verið t stúdíói að undanfömu að taka
upp nýtt efni og mega gestir Gauksins eiga
von á að heyra eitthvað nýtt frá henni. Á
föstudags- og laugardagskvöld leika hinir
síungu Hálft ! hvoru.
■ SKlTAMÓRALL leikur á Iðnskólaballi á
Astró fimmtudagskvöld og á föstudags-
kvöldið leikur hljómsveitin á Hótel Mæli-
felli, Sauðárkróki. Á laugardagskvöld ligg-
ur svo leiðin í Hlöðufell á Húsavík.
■ HARMONIKUBALL á vegum Lions-
klúbbsins Muna verður haldið föstudags-
kvöld ! Lionsheimilinu Lundi, Auðbrekku
25, Kópavogi og verður húsið opnað kl. 21.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur sjá
um tónlistina og fer allur ágóði af skemmtun-
inni í líknarsjóð klúbbsins. Aðgangseyrir er
1.000 kr.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtudags-
kvöld leika Regína Ósk og hljómsveit og á
föstudags- og laugardagskvöld leikur svo
gleðihjómsveitin Papar. Á laugardagskvöldið
kl. 20 ætlar Kaffi Reykjavik að bjóða öllum
fyrirsætum sem hafa starfað við módelstörf
meira eða minna sl. 30 ár að mæta á stað-
inn. Allir þeir sem hafa áhuga á að sýna sig
og sjá aðra og rifja upp gamlar minningar
frá liðnum árum eru velkomnir. Sigrún Eva
og h(jómsveit leika svo á sunnudagskvöldið
en á mánudagskvöld leikur Sigrún Eva ásamt
Stefáni Jökulssyni. Rcgína Ósk og Birgir
leika svo þriðjudagskvöld. Á miðvikudags-
kvöld er opið til kl. 3 en þá leikur hljómsveitin
Karma.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudagskvöld er
lokað. Á laugardagskvöld verður fram haldið
sýningunni Braggablús, söngbók Magnús-
ar Eiríkssonar. Flytjendur: Pálmi Gunnars-
son, Bjarni Arason, Ellen Kristjánsdóttir
og Iris Guðmundsdóttir. Tónlistarstjórn er
! höndum Gunnars Þórðarsonar. Flutt
verða Brunaliðslög, Mannakornslög o.fl. Þrí-
réttaður kvöldverður. Að sýningu lokinni
skemmta Milljónamæringarnir ásamt
Bjarna Arasyni á dansleik til kl. 3.
■ NELLY’S CAFÉ Á föstudagskvöld verða
leikin lög frá fyrri hluta áttunda áratugarins.
Á laugardagskvöldinu er svo diskótekið á
fullu og á sunnudagskvöld kl. 20.30 verður
haldið ljóðakvöld í minningu Saffóar. 15 Ijóð-
skáld lesa eigin verk. Á miðvikudagskvöld er
opið til kl. 3 þar sem D.j. Hlynur þeytir sklf-
um.
■ KÚREKAKVÖLD í STAPANUM Á
laugardagskvöld verður haldið kúrekakvöld í
Veitingahúsinu Stapa í Njarðvík. Meðal
skemmtikrafta kvöldsins verða Ómar Ragn-
arsson, Jóhann kántrí-kennari, Snörurnar,
hljómsveitin Farmals og kynnir kvöldsins
verður Bjarni Dagur. Húsið opnað kl. 19.30
og kvöldverður snæddur kl. 20. Kúrekadansar
verða að því loknu kynntir og skemmtiatriði
flutt. Að því búnu leikur Farmals fyrir dansi.
Ath. óformlegur klæðnaður.
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld leikur
dúettinn Briijantín og á föstudags- og laug-
ardagskvöld leika Stefán P. og Pétur dans-
lög til kl. 3. Á sunnudagskvöld leikur og syng-
ur Halli Reynis.
■ KRINGLUKRÁIN Á fimmtudags-, föstu-
dags-, laugardags- og sunnudagskvöld leikur
hljómsveitin í hvítum sokkuni gömul og ný
lög ! bland. Á föstudagskvöldið leikur svo
Viðar Jónsson í Leikstofunni og verður hann
einnig á laugardagskvöldinu.
■ RÚNAR ÞÓR og hljómsveit leika á Sir
Oliver fimmtudagskvöld og á Oddvitanum,
Akureyri, föstudags- og laugardagskvöld.
■ ÓPERUKJALLARINN Föstudagskvöld
diskótek. Laugardagskvöld Óperubandið
ásamt Stebba Hilmars og Bjögga Hall-
dórs. Opið til ki. 3.
■ SIR OLIVER Á fimmtudagskvöld leika
Rúnar Þór og h(jómsveit og á föstudags-
og laugardagskvöld skemmta þeir Björgvin
Franz og Laddi. Ath. breyttan opnunar-
tíma. Opið frá kl. 16-1 alla virka daga auk
sunnudaga og kl. 16-3 föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ NAUSTKRÁIN Á föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur hljómsveitin Sunnan tveir.
Á fimmtudags- og sunnudagskvöld leika svo
Garðar Karlsson og Kristbjörg Löve.
■ KÁNTRÝKLÚBBURINN KÚREKINN
Hamraborg 1-3 (norðanmegin), Kópa-
vogi stendur fyrir dansæfingu föstudags-
kvöldið kl. 21. Þess má geta að Kúrekinn
er með sýningarhóp.
■ CAFÉ ROMANCE Enski píanóleikarinn
Neal Fullerton leikur og syngur fyrir gesti
staðarins alla daga vikunnar nema mánu-
daga. Einnig mun hann
leika fyrir matargesti veit-
ingahússins Café Óperu.
■ FEITI DVERGURINN
Á föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur Rúnar
Júlíusson. Veitingahúsið er
opið frá kl. 13.30 föstudag,
laugardag og sunnudag.
Snyrtilegur klæðnaður.
■ GRAND HÓTEL
v/Sigtún. Á fimmtudags-,
föstudags- og laugardags-
kvöld frá ki. 19-23 leikur
og syngur Gunnar Páll
Ingólfsson perlur dægurla-
gatónlistarinnar fyrir gesti
hótelsins.
■ HÓTEL SAGA Á Mím-
isbar er opið fimmtudags-
og sunnudagskvöld frá kl.
19-1 og frá kl. 19-3 föstu-
dags- og laugardagskvöld en þá koma fram
þeir Stefán Jökulsson og Ragnar Bjarna-
son. í Súlnasal föstudagskvöld er einkasam-
kvæmi en á laugardagskvöld verður sýning-
unni Allabaddarí haldið áfram og er upp-
selt á hana. Á opnum dansleik eftir kl. 23.30
leika Aggi Slæ og Tamlasveitin ásamt
Sigrúnu Evu. Á miðvikudagskvöld verður
aukasýning á Allabaddarí, nokkrir miðar eft-
ir.
■ HITT HÚSIÐ Á síðdegistónleikum föstu-
dag kl. 17 leika hljómsveitirnar Örkuml og
Gaur. Örkuml hefur nýlokið upptökum á
breiðskífu sem væntanleg er innan skamms.
Hljómsveitin er Qögurra manna og hafa þeir
verið iðnir við tónleikahald seinustu tvö árin
og staðið fyrir útgáfu fjölda sjötomma. Gaur
er ung og efnileg hljómsveit úr Garðabæ
skipuð þremur ungum mönnum og tóku þeir
þátt ! Músíktilraunum 1997.
■ RÓSENBERG Á fimmtudagskvöld leikur
hljómsveitin Stillborn frá kl. 22. Upphitunar-
hljómsveit er nýrokksveitin Virskífa.
■ TODMOBILE leikur á tveimur dansleikj-
um um helgina. Á föstudagskvöldið leikur
sveitin á Hótel Húsavík og er aldurstak-
mark 16 ár. Á laugardagskvöld liggur svo
leiðin á Hótel Borgarnes.
■ HUNANG leikur á föstudagskvöld á Café
Amsterdam og á laugardagskvöld í Ing-
hóli, Selfossi. Þennan sama dag verður
Helgi Björnsson í SSSól með sitt árlega
kaffisamsæti ! Litlu kaffistofunni og hyggj-
ast Hunangsdrengir kippa Helga með á leið-
inni austur og sameina hann bandinu um
kvöldið.
■ AMMA í RÉTTARHOLTI Á sunnudags-
kvöld verður haldið svokallað Englakvöld þar
sem fram kemur tónlistarfólk, magadans-
mær, skáld o.fl.
■ GULLÖLDIN Á föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur Kiddi Rós fyrir dansi.
■ CAFÉ AMSTERDAM Á föstudagskvöld
leikur hljómsveitin Hunang og á laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Glamúr sem er
skipuð þeim Birgi Jóhanni Birgissyni, Haf-
steini Hafsteinssyni og Rúnari Þór Guð-
mundssyni.
■ LUNDINN, VESTMANNAEYJUM
Hljómsveitin Gloss leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
■ MÚSÍKTILRAUNIR TÓNABÆJAR
Fjórða og síðasta Músíktilraunakvöld Tóna-
bæjar verður haldið fimmtudagskvöld og
hefst kl. 20. Hljómsveitirnar sem leika á
þessu tilraunakvöldi eru 10 talsins: Þórgunn-
ur nakin frá Selfossi/Hólmavík, Pistada
Bada úr Reykjavík, Soðin Fiðla úr Kópa-
vogi, Kóngulóarbandið frá Egilsstöðum,
Mamma hestur frá ísafirði, Lagleysa úr
Reykjavík, Roð frá Húsavík, Innvortis frá
Húsavík, 0101 frá Blönduósi og Vatn frá
Stykkishólmi. Gestur kvöldsins er Páll Óskar
og gestasveit er Stjörnukisi, sigurvegari
Músíktilrauna 1996. Úrslit Músíktilrauna
verða síðan föstudaginn 21. mars þar sem
gestahljómsveit er Botnleðja.
■ HÓTEL KEA Á laugardagskvöld leikur
sveiflukóngur íslands, Geirmundur Valtýs-
son, ásamt hljómsveit.
■ CATALÍNA Á föstudags- og laugardags-
kvöld leikur Guðmundur Haukur.
SKÍTAMÓRALL leikur á Hótel Mælifelli, Sauðárkróki,
föstudagskvöld og í Hlöðufelli, Húsavík, laugardagskvöld.