Morgunblaðið - 20.03.1997, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
IUI Yl\l DBÖN D/KVIKM YN Dl R/ÚTVARP-S JÓN VARP
GEIMVERUR hafa alltaf kallað á tæknibrellur. Þessi fljúgandi
diskur er í „Forbidden Planet“ frá árinu 1956.
Tæknibrellur
færast í aukana
LEIKARAR og teiknimyndafígúrur
deildu hvíta tjaldinu í „Who Framed
Roger Rabbit?“ (1988).
ÞEGAR fjallað er um Ósk-
arsverðlaunin beinist athygl-
in fyrst og fremst að leikur-
unum og leikstjórunum. Allir
velta fyrir sér hvaða mynd
fái titilinn sú besta.
Þó að þessar myndir veki
athygli eru þetta ekki mynd-
irnar með mesta aðdráttar-
aflið. Það sem dregur flest
fólk í bíó upp á síðkastið er
nefnilega ekki stjörnuleikur
heldur sífellt flottari tæknib-
rellur. í ár eru útnefndar
„Independence Day“,
„Twister“ og „Dragonhe-
art“.
Tölvutæknin þróast hratt
og þegar tæknibrellur síðustu ára
eru bornar saman við eldri tilraunir
hlær fólk oft og finnst gömlu til-
raunirnar hallærislegar. Samt getur
gamalt líka verið gott. Hvirfilbylur-
inn í „The Wizard of Oz“ (1939)
er t.d. ótrúlega sannfærandi og
vekur í raun meiri skelfingu en
tölvustormurinn í „Twister" (1996).
Óskarsverðlaunin hófu göngu
sína í lok þriðja áratugarins en það
var ekki fyrr en árið 1940 að sér-
stök verðlaun fyrir tæknibrellur
voru veitt. Þetta var ekki vegna
þess að tæknibrellur vantaði í
myndir fyrir þennan tíma. Tækni-
brellur hafa verið hluti af kvik-
myndagerð frá upphafi. Einn af
upphafsmönnum kvikmyndalistar-
innar, Frakkinn George Melies,
byggði t.d. kostulegar myndir sínar
sem mest á ýmsum brellum.
Tæknibrellur hafa samt þótt eitt-
hvað ófínni en Ieikarar og handrita-
skrif. Það var fyrst fyrir tveimur
árum að Akademían kom á fót sér-
stakri deild fyrir tæknibrellur. Nú
er það eingöngu fólk sem hefur
atvinnu af gerð tæknibrellna sem
kýs hvaða mynd vinnur í þessum
fiokki.
Tæknibrellur fengu byr undir
báða vængi þegar „Star Wars“-
myndirnar komu á markaðinn fyrir
20 árum. Síðan þá hefur hver
tæknibrellusmellurinn fylgt öðrum
og ótrúlegum fjárhæðum er eytt í
þennan hluta kvikmyndagerðar.
Tölvubrellur í kvikmyndum í dag
eru samt mikið til gamlar lummur
í nýjum búningi. í „Independence
Day“ er t.d. notað atriði úr „War
of the Worlds" (1953) og „Earth
vs. the Flying Saucers“(1956).
Mynd Tim Burons „Mars Attacks!"
byggist einnig á þeirri síðarnefndu.
Nú velta sumir fyrir sér hvort
kvikmynd framtíðarinnar verði að
öllu leyti unnin á tölvu og leikarar
verði óþarfir. Ef sú verður raunin
þá verða líklega eingöngu tveir
flokkar við Óskarsverðlaunaaf-
hendinguna: Besta mynd og
Tæknibrellur.
Peysudagar í fLHSH
Fimmtudag, föstudag og
LAUGARDAG
30%
AFSLATTUR AF
PEYSUM
Stuttar, þröngar
VÍÐAR, SÍÐAR.
Verð FRÁ 1.990
Laugavegi 54
MYWDBÖWP
Krefjandi listaverk
Skriftunin____________________
(Le Confessional)
Drama
★ ★ ★ ★
Framleiðendur: Denise Robert,
David Puttnam, Philip Carcasonne.
Leikstjóri: Robert Lepage. Hand-
ritshöfundur: Robert Lepage. Kvik-
myndataka: Alain Dostic. Tónlist:
Sacha Puttnam. Aðalhlutverk:
Lothaire Blutheau, Patric Coyette.
110 mín. Kanada. Háskólabíó 1997.
Útgáfudagur: 18. Mars. Myndin er
bönnuð bömum innan 12 ára.
„í FÆÐINGARBORG minni ber
fortíðin nútíðina eins og barn á
öxlum sér.“ Þetta eru upphafsorð
myndarinar „Skriftunarinnar", sem
gerist árið 1989 og segir frá leit
bræðra að sannleika um uppruna
annars bróðurins, en sannleikurinn
felst í árinu 1952 og kvikmynd
Hitchcocks „I
Confess". Þarna
eru þrjár sögur
fléttaðar saman
með öllum þeim
brellum sem
kvikmyndalistin
hefur uppá að
bjóða og hvers-
dagsleg sagan
verður í höndum
leikstjórans og handritshöfundarins
Lepage að listrænu meistaraverki.
Þetta er ekki einföld mynd, svo
það er tæpast hægt að mæla með
henni sem dæmigerðu myndbanda-
fóðri. Ég sjálfur myndi taka myndir
á borð við „Clueless" eða „Hard
Boiled" fram fyrir hana, ef ég væri
að leita að afþreyingu. En ef ég vildi
sjá einhveija gefandi mynd, sem
myndi sitja eftir í huga mér löngu
eftir að hún væri búin, þá væri
„Skriftunin“ ofarlega á lista. Hver
einasti myndrammi hennar er hlað-
inn merkingu og við hverja áhorfun
kemur fram eitthvað nýtt, sem var
hulið áður. Lepage hefur aðallega
fengist við leikþús til þessa og virð-
ist kvikmyndamiðillinn liggja af-
skaplega vel fyrir honum. Skiptingin
á milli nútíðar og fortíðar er gerð á
snilldarlegan hátt, sem minnir helst
á „Villtu jarðarberin" hans Berg-
mans, og notkunin á mynd Hitch-
cocks í framrás sögunnar er frábær-
lega af hendi leyst, þ.e. notkunin á
kaþólsku kirkjunni í „I Confess" og
í „Skriftuninni" með megináherslu
á þagnareið prestanna. Leikaramir
standa sig allir með prýði, sérstak-
lega Coyette, sem bróðirinn í leit
að sjálfum sér.
Myndir eins og „Skriftunin" sýna
fram á það að kvikmyndin er alveg
jafnmikilvægur listrænn miðill og
bókmenntir, leikritun, málaralist
o.fl. Hæsta einkunn fyrir hágæða-
mynd.
Ottó Geir Borg
Margfaldur___________________
(Multiplicity)
Gamanmynd
★ ★’A
Framleiðandi: Columbia Pictures.
Leikstjóri: Harold Ramis. Handrits-
höfundar: C. Miller, M. Hale, Ra-
mis, L. Ganz og B. Mandei. Kvik-
myndataka: Laszlo Kovacs. Tónlist:
George Fenton. Aðalhlutverk: Mic-
hael Keaton og Andie MacDowel.
113 mín. Bandaríkin. Colombia
Tristar Home Video/Skífan 1997.
Útgáfudagur: 19. mars.
DOUG hefur allt of mikið að
gera í vinnunni, og getur engan
veginn sinnt fjölskyldunni. Þegar
hann er alveg að fara yfír um, hitt-
ir hann erfðafræðing sem býðst til
að gera af honum annað eintak,
og gefa honum þar með tækifæri
til að njóta áður óþekkts frelsis.
Hér er um að ræða farsakennda
gamanmynd, þar sem stund og
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Umsátrið á
Rubyhryggnum
(The Siege at Ruby Ridge) ★ ★
Draumur sérhverrar konu
(Every Woman’sDream) ★ ★*/i
Ríkharður þriðji
(Richard III) ★ ★ ★ ’/1
Bleika húsið
(La Casa Rosa) ★ ★
Sunset liðið
(Sunset Park) ★ 'h
I móðurleit
(Flirting with Disaster) ★ ★ ★
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(Dead Man) ★
Frú Winterbourne
(Mrs. Winterbourne) ★ ★ 'h
Frankie stjörnuglit
(Frankie Starlight) ★ ★ 'h
Dagbók morðingja
(Killer: A Journal ofMurder) 'h
Klikkaði prófessorinn
(The Nutty Professor) ★ ★ ★
Eyðandinn
(Eraser) ★ ★ 'h
Sporhundar
(Bloodhounds) ★
Glæpur aldarinnar
(Crime ofthe Century) ★ ★ ★ 'h
Próteus
(Proteus) ★
Svaka skvísa 2
(Red Blooded 2) ★ ‘h
Bardagakempan 2
(Shootfighter 2) ★
Ást og skuggar
(OfLove and Shadows) ★ ★
Stolt Celtic - liðsins
(Ceitic Pride) ★ ★ 'h
Töfrandi fegurð
(Stealing Beauty) ★ ★ ★
Eyja Dr. Moreau
(The Island ofDr. Moreau) ★ 'h
Ihefndarhug
(Heaven’s Prisoner) -k'h
Bull og
vitleysa
staður aðalper-
sónanna getur
skapað ýmsar
skemmtilega
uppákomur. Það
heppnast mjög
vel, myndin á
mjög góða
punkta, og er
stöðug skemmt-
un allan tímann.
Um hinar margvíslegu karlper-
sónur má hins vegar deila, þar sem
þær eru ansi miklar stereótýpur.
Eini karlmaðurinn sem gat mögu-
lega hugsað um heimilið er náttúru-
lega mjög kvenlegur, ef ekki
hommalegur. Hér er greinilega ver-
ið að deila á karlrembur, eigingirni
karla yfir höfuð og vanmat þeirra
á hinum svokölluðu kvennastörfum.
Eitthvað hefðu konur sagt ef gerð
hefði verið svipuð mynd um þær.
Michael Keaton er ansi góður,
og sýnir fram á fjölhæfni sína sem
leikari, þótt þroskahefta týpan sé
frekar fíflaleg, en það má réttlæta
það með því að þetta sé gaman-
mynd. Andie MacDowell er sæt og
fín og ósköp svipuð sér og í öðrum
myndin. Stúlkan þyrfti að komast
í eitthvað feitara til að fá að sýna
sig smávegis.
Þetta er sem sagt fínasta gaman-
mynd fyrir alla fjölskylduna, og
upplögð til áhorfs til að létta sér
lífsbölið og gera sér grein fyrir að
það er kannski ekki eins mikið og
maður vill láta vera.
Hildur Loftsdóttir
Vikan *| f| A ^
Nr. vor Log Flytjandi
1. (1) Remember me Btueboy
2. (4) Firewater burn Bloodhound gang
3. (-) Storing at the sun U2
4. (3) Song 2 Blur
5. (15) Locol god Everdear
6. (9) Erika Bady On and on
7. (3) Hedonism Skunk Ánonsie
8. (8) Karvel Björk
9. (20) Spin spin sugar Sneaker Pimps
10. (23) Toxygene 0RB
11. (-) Encore une fois Sash
12. (5) Da funk Daft punk
13. (10) Runaway Nuyorican soul & India
14. (-) Ready to go Republica
15. (-) Eye Smashing Pumpkins
16. (24) Mama Spice girls
17. (22) The theme Tracey Lee
18. (26) She's a star James
19. (12) l'm not feeling you Yvette Michel
20. (21) l'll be Foxy Brown & Jay
21. (11) The foundation X-zibit
22. (13) Dennis Leory Asshole
23. (-) Star people George Micheal
24. (18) Let me dear my throat D.J. Kool
25. (17) 1 will survive Cake
26. (19) 1 shot the sheriff Warren G
27. (6) Ain't talking'bout it Apollo 440
28. (7) Squealer Red
29. (-) Indestructable Alishn's altic
30. (-) Casual affair Tonic