Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1911, Side 39

Skírnir - 01.01.1911, Side 39
Alheimsmál. 39 ur menning en þýsk, ensk og frönsk, þá stefnir alt að því, að menn yrðu, ef vel ætti að vera, að bæta við sig rússnesku, spönsku o. s. frv. Hitt er öðru máli að gegna, að tungumálakenslan hefir sérstakt uppeldis- og menta- gildi í sér fólgið; að því leyti ber heuni sæti á bekk með náttúrufræði og sögu. Að svo vöxnu máli er ekki að kynja, þótt mönnum hafi verið það áhugaefni að finna tungumál, sem verða mætti sameign allra kynkvísla jarðarinnar. En löngum hefir rekið út í öfgar í því efni, því verður ekki neit- að; menn gerðu sér það að markmiði að bægja á burtu þjóðtungunum og setja eitt allsherjarmál í staðinn. En því fer nú varla nokkur framar á flot. Mönnum er orðið það Ijóst, að annað lilutverk ber ekki að ætla allsherjar- máli ókominna tíma en að vera aðstoðarmál, jafn- hliða þjóðtungunum, það mál sem nema skal næst móð- urmálinu. Tvær leiðir að markinu eru hugsanlegar. Önnur sú, að nota til þessa eitt af nútíðarmálunum, hin, að búa til mál og bjargast við það. Þriðja leiðin, sem bent hefir verið á, að taka upp latínu eða grísku, má þegar að óreyndu teljast ófær. Hvað heitir telegraf, telefon, auto- mobil á latínu? Með öðrum orðum: úr því yrði mál, þar sem mikill þorri orðanna væri nýgervingar, og auk þess svo flókið í málfræðislegu tilliti, að fiestum stæði stugg- ur af. Að því er til nútíðarmálanna kemur er um tvent að velja. Það annað — er þykir liggja næst — að taka upp einhverja af höfuðtungum heimsins: ensku, þýsku, frönsku (eða rússnesku?). Því verður ekki neitað, að ýmsa kosti hefði það í för með sér að fara þessa leiðina, hjá því að nota tilbúið mál. Þar væri til 1 i f a n d i máls að seilast, með auðugar bókmentir að baki; og málfræðisvafasemd- unum væri þá fyrirfram ráðið fram úr. En ein ástæða er því til fyrirstöðu, að einhver þjóð- tungan, t. d. enska, geti orðið alheimsmál; og hún nægir. Það er afbrýði annarra þjóða. Eða getur nokkur ímynd-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.