Skírnir - 01.01.1911, Blaðsíða 82
82
Frá útlöndum.
Almenningur í Portúgal er sagður mjög fáfróður. En stjórnar-
fyrirkomulag er þar frjálslegt. Kosningaróttur er bundinn við 21’
árs aldur, við lágt skattgjald og svo við það, að hlutaðeigandi
kunni að lesa og skrifa. En síðasta skilyrðið útilykur þó fjölda
manns frá kosaingaréttinum. Almenningur er fátækur og landið
illa ræktað. Af ræktuðu landi eru 40 % graslendi, 23 °/o akurlendi-
hitt er ávaxtagarðar, skógar, vínlönd og jurtagarðar. ljz hluti
landsbúa býr í borgum. Margir lifa á fiskiveiðum. Málmtekja er
ekki mikil, og er þó landið ríkt að málmum.
Þingið í Portúgal hefir verið klofið í marga smáflokka, en tala
þingmanna er 155. Aðalflokkarnir eru vinstrimenn og hægrimenn,
eða framfaramenn og íhaldsmenn (regeneradores). Svo eru lyð-
veldismenn o. s. frv. Eftir konungsmorðið 1908 var mynduð sam-
steypustjórn af ymsum flokkum þingsins og var hertoginn af
Amaral þar aðalmaðurinn. En þeirri stjórn var steypt 22. des.
1908, og komu þá hægrimenn til valda. En ekki stóð það i bráð
nema til 7. apríl 1909. Þá tók vinstrimaður aftur við, en hélt
ekki völdum nema rúman mánuð, og mynduðu hægrimenn aftur
stjórn 13. maí 1909. Hún sat við völd til 22. des. sama ár. Þá
komst aftur vinstrimaður til valda og sat til 22. júní síðastliðið
sumar. Tók þá við annar af sama flokki, Teixeira de Sousa, og
var hatin við völd þar til í október, er byltingin gerði enda á
valdadögum hans. Manúel konungur hafði viljað afsala sér völd-
um i júní síðastliðið sumar, en vinstrimenn réðu því þá, að hann
gerði það eigi. í ágúst í sumar fóru fram kosningar og fekk
stjórnarflokkurinn þar meiri hluta, og hann ekki lítinn. Lýðveldis-
menn höfðu áður skipað að eins 7 sæti í þinginu, en náðu nú 14.
Þingið var sett 23. september og í hásætisræðu konungsins var þá
lofað miklum framfarafyrirtækjum. Svo var fundum þingsins
frestað, eftir konungsúrskurði, til áramóta.
At þessu stutta yfirliti geta rnenn fengið nokkra hugmynd
um, í hverri ringulreið stjórnmálin í Portúgal hafi verið á undan
byltingunni. Lýðveldismenn, sem byltinguna gerðu, höfðu haft
langan viðbúnað. Sumarið 1910 bárust út þær fregnir hvað eftir
annað, að til stæði, að Portúgal yrði lýðveldi. Og það er fullyrt,
að byltingin hafi verið gerð með ráði eða leyfi Englendinga, að
lýðveldismenn hafi fyrir fram fengið loforð ensku stjórnarinnar um,
að þaðan skyldi ekki verða tekið í taumana. Sagan segir, að lýð-
veldismenn hafi sent tvo af foringjum sínum til Lundúna snemma
í ágúst og hafi þeir skýrt ensku stjórninri frá, að það stæði til>