Skírnir - 01.01.1911, Blaðsíða 93
ísland 1910.
93
egs og íslands, hætti í vor sem leið, en þó varð nokkurt framhald
á ferðunum. — Yms slys hafa orðið á árinu á þeim skipum, sem
samgöngunum hafa baldið uppi. »Laura« strandaði skamt frá
Skagaströnd 12. marz, og hafði hún verið í millilandaferðum »Sam.
gufuskipafél.« 30 ár. »Eljan«, eitt af skipum Wathnesfól.«, strand-
aði úti fyrir Reykjarfirði 28. júní. Vélarbáturinn »Harpa«, póst-
flutningabátur á Breiðafirði, strandaði 22. sept. á Hagabót við
Barðaströnd. Þar fórust 3 menn. Gufubáturinn »Hrólfur« frá
Seyðisfirði fórst 30. marz sunnan við land, en mönnum af bonum
hjargaði enskur botnvörpungur. Gufuskipið »Hadria«, milliferðaskip
verzl. »Edinborg«, fórst í Hafnarfirði 1 stórviðri aðfaranótt 28. des.
og druknuðu þar 5 menn, einn íslenzkur, en hinir norskir.
I kirkjumálum eru það helztu tíðindin, að samkv. lögum frá
síðasta alþingi vígði biskup landsins tvo vígslubiskupa, annan fyrir
Hólabiskupsdæmi hið forna, Geir Sæmundsson prófast á Akureyri,
og var hann vigður á Hólum 10. júlí, hinn fyrir Skálholtsbiskups-
dæmi hið forna, Valdimar Briem prófast á Stóranúpi, og var hann
vígður í Reykjavík 28, ágúst. — Kirkjufélag Islendinga í Vestur-
heimi hélt í sumar 25 ára afmæli sitt hátíðlegt í Winnipeg.
I heilbrigðismálunum hefir gerst sú nýung á árinu, að Heilsu-
hælið á Vífilsstöðum tók til starfa. Það var opnað snemma í sept-
ember og voru þar nú í árslokin 45 sjúklingar. Það er mjög vand-
að hús og útbúnaður allur í bezta lagi. Læknir er þar Sigurður
Magnússon. — Sjúkrasamlagsfélag var stofnað í Reykjavík snemma
á árinu.
Þessi eru hin helztu mannalát á árinu: Lárus E. Sveinbjörns-
son fyrv. dómstjóri (4. jan.), Einar B. Guðmundsson bóndi á Hraun-
um í Fljótum (1. febr.), Páll Melsteð sagnfræðingur í Rvík (9.
febr.), Brynjólfur Gunnarsson prestur á Stað í Grindavík (19. febr.),
Jón Halldórsson bóndi á Laugabóli í Isafj.s. (3. marz), Kristján
Jóhannesson verzlunarstj. á Eyrarbakka (8 febr.), frú Ragnh. Briem,
ekkja eftir síra 0. B. (18. marz), Bergur Helgason skólastjóri á
Eiðum (15. marz), Guðm. Þorláksson magister (2. apríl), Bryde
etazráð í Khöfn (13. apríl), Stefán Jónsson verzlunarstjóri á
Sauðárkróki (5. maí), frú Karítas Markúsdóttir, ekkja st'ra ísl.
Gíslasonar (28. apríl), Stefán Stefánsson bóndi frá Heiði (10.
maí), Sæmundur Sigurðsson hreppstjóri á Elliða í Staðarsveit
(11. maí), Magnús Brynjólfssou dbrm. á Dysjum á Álftanesi
(í maí), Jón Olafsson bóndi á Sveinsstöðum i Húnavatnssýslu
(í maí), Jón Guðmundsson bóndi á Efribrú í Grímsnesi (13. júlí),