Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1911, Page 96

Skírnir - 01.01.1911, Page 96
96 íslaud 1910. um land til þess aS mótmæla aðförum landsstjómarinnar í »banka- málinu«. Var hinn fyrsti af þeim fundum haldinn í Skagafirði 8. janúar fyrir forgöngu þingmanna þess kjördæmis, er baðir höfðu þó verið fylgismenn stjóruarinnar á þingi. Var þar skorað á ráð- herra, að kveðja til aukaþings næsta sumar, til þess að ráða fram úr vandræðunum. Sú áskorun var síðan samþykt á fjölda sams- konar funda til og frá um land. Loks var raðherra færð 4. júní, af forsetum alþingis, áskorun um aukaþingshald frá 21 alþingis- manni. En hann neitaði að verða við kröfunni. Bíður svo málið aðgerða reglulegs þings á þessu ári. Tvö önnur »bankamál« hafa og verið mjög tíðrædd á þessu ári; er annað kallað »franska bankamáliö«, en hitt »enska banka- ,málið«. Hið fyrra varð svo til, að fólag myndaðist í Reykjavík seint á árinu 1909 með því markmiöi, að koma á fót fasteigna- banka fyrir franskt fé. 1 ráðum með þessu fólagi var franski kon- súllinn í Reykjavík, og kvaðst hann geta útvegað féð með ýmsum skilyrðum, er sett væru. En ekkert varð þó úr neinum fram- kvæmdum í þessa átt, eða er ekki orðiö enn sem komið er. Sama er að segja um »enska málið«. Fjármálamaður frá Englandi var í Reykjavík tíma úr sumrinu í þeim erindagerðum, að kynna sér skil- yrði fyrir því, að ávaxtaö yrði hér enskt fó með bankastofnun, eða á annan hátt. Enskt félag, sem stóð í sambandi við hann, ætlaöi að byrja stóra verzlun í Reykjavík < haust sem leiö. En alt fórst þetta fyrir, og hefir ekkert orðið úr eun. Stjórnin skipaði í haust nefnd manna til þess að athuga fjármál landsins, rnest með tilliti til framboðs á fó frá útlöndnm, en sú nefnd starfaði stutta stund. Silfurbergsnámurnar í Helgustaöafjalli við Reyðarfjörð voru í sumar leigðar af landsstjórninni til 10 ára nokkrum íslenzkum mönnum, og var Guðmundur Jakobsson trésmiður formaður þeirra. En þeir hafa síðan, með samþykki ráðherra, selt róttindi sín til inámarekstursins frakknesku félagi fyrir allmikla upphæð. Þ. G.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.