Morgunblaðið - 08.12.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR/KIRKJUSTARF
AKRANESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Stúlknakór Akraneskirkju
syngur. Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra.
AKUREYRARKIRKJA | Vígsla kapellu
Sjúkrahússins á Akureyri fer fram 14. des-
ember kl. 10.30 og er öllum opin. Að
henni lokinni gefst kostur á að skoða kap-
elluna, muni hennar og aðstöðu trúar-
legrar þjónustu. Kapellan er öllum opin, til
bæna og/eða til að njóta kyrrðar í erli
dagsins.
Aðventuguðsþjónusta kl. 11 með þátttöku
sunnudagaskólabarna. Leikhópur úr
Brekkuskóla syngur lög úr söngleiknum
„Kraftaverk á Betlehemstræti“. Súpa og
brauð í Safnaðarheimilinu eftir guðsþjón-
ustuna.
ÁRBÆJARKIRKJA | Jólastund sunnudaga-
skólans og Fylkis er kl. 11. Leikhópurinn
Perlan með helgileik. Jólaball Fylkis og Ár-
bæjarkirkju í safnaðarheimili kirkjunnar á
eftir. Aðventuhátíð safnaðarins kl. 20.
Ræðumaður kvöldsins Sigmundur Ernir
Rúnarsson fréttamaður. Kirkju- og barna-
kór kirkjunnar syngja jólalög.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón hafa Elías og Hildur Björg. Messa kl.
14. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. Kaffi og hressing eftir
messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson þjónar ásamt starfsfólki sunnu-
dagaskólans. Bjartur Logi Guðnason
organisti leiðir lofgjörðina.
BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.30. Aðventusamkoma kl. 18.
Meðal efnis: Einsöngur, helgileikur barna
og jólasaga. Kirkjukór Borgarness syngur
undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. Al-
mennur söngur. Ritningarlestur og bæna-
gjörð.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | 150
ára afmælishátíð Brautarholtskirkju í Fólk-
vangi kl. 14. Helgistund í umsjón sókn-
arprests, barnakór Klébergsskóla og
Karlakór Kjalnesinga syngja. Erindi um
sögu kirkjustaðarins. Tónlistarflutningur:
Egill Ólafsson, Jónas Þórir og Hjörleifur
Valsson. Veitingar.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Gerðubergskórinn
syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar.
Þátttakendur í félagsstarfinu í Gerðubergi
lesa ritningarlestra og bænir. Að lokinni
messu verður kaffisala til styrktar Líkn-
arsjóði Breiðholtskirkju í safnaðarheim-
ilinu. Athugið breyttan messutíma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna með söng
og fræðslu. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Ungmennahljómsveit spil-
ar undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
prédikar og þjónar ásamt sóknarpresti,
kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Re-
nötu Ivan. Molasopi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús B. Björnsson, organisti Kjartan
Sigurjónsson, kór Digraneskirkju A-hópur.
Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma.
Stoppleikhúsið með Jólin hennar Jóru.
Aðventuhátíð í umsjá æskulýðsfélagsins
Meme kl. 20, ræðumaður er Erla Guðrún
Arnmundardóttir, æskulýðsfulltrúi Háteigs-
kirkju. Kaffisala til styrktar mæðrastyrks-
nefnd. www.digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Aðventuhátíð barnanna í
umsjá sr. Þorvaldar Víðissonar. Börn úr
Vesturbæjarskóla syngja undir stjórn
Nönnu Yngvadóttur. Einnig syngur Dóm-
kórinn, organisti er Marteinn Friðriksson.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Aðventuhátíð kl. 17. Söngur, jólaminn-
ingar, helgileikur o.fl. Kyrrðarstund má-
nud. 10. des. kl. 18.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur er sr. Guðmundur K.
Ágústsson. Kór Fella-og Hólakirkju leiðir al-
mennan safnaðarsöng undir stjórn Guð-
nýjar Einarsdóttur, félagar úr Leikni kveikja
á aðventukransinum. Sunnudagaskóli á
sama tíma í umsjá Þóreyjar Jónsdóttur.
Kirkjuvörður/meðhjálpari er Kristín Ing-
ólfsdóttir.
FÍLADELFÍA | English service at kl. 12.30
pm Entrance – main door. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðum. Jón Þór Eyjólfs-
son, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Ald-
ursskipt barnakirkja, öll börn 1-13 ára
velkomin. Bein útsending á Lindinni eða á
www.gospel.is. Á sunnudagskvöldum kl.
20 á Omega er sýnd samkoma frá Fíladel-
fíu.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Hafdís Huld Þrastardóttir syngur lög
af nýjum geisladiski, Englar í ullarsokkum.
Aðventukvöldvaka kl. 20. Dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur hugleiðingu
kvöldsins. Fríkirkjukórinn syngur undir
stjórn Arnar Arnarsonar. Einsöngur Erna
Blöndal.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Fjölskyldu-
samkoma kl. 14. Barnastarfsmenn sjá um
samkomuna og munu m.a. sýna leikrit. Á
samkomunni verður einnig lofgjörð og fyr-
irbænir. Að samkomu lokinni verður kaffi
og samfélag.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Barnastarf í
umsjá Ásu Bjarkar, Móheiðar og Péturs
Markan kl. 14. Aðventukvöld kl. 20.
Ræðumaður er Geir Jón Þórisson. Lög-
reglukórinn syngur og einnig mun Eiríkur
Hreinn Helgason syngja. Anna Sigríður
Helgadóttir og Carl Möller sjá um tónlist-
ina.
FÆREYSKA sjómannaheimilið | Sam-
koma kl. 17, á Örkinni, Brautarholti 29.
Eftir samkomu er kaffi og spjall.
Orð dagsins:
Teikn á sólu og tungli.
(Lúk.21)
Morgunblaðið/Sverrir
Brautarholtskirkja Kjalarnesi.
Aðventutónleikar í
Skálholtsdómkirkju
Árlegir aðventutónleikar Skál-
holtskórsins verða í dag, laugard
kl. 15 og kl. 18, í Skálholts-
dómkirkju. Einsöngvarar með
kórnum verða Diddú, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sem sungið hefur á
aðventutónleikum kórsins mörg
undanfarin ár, og ungur tenór ætt-
aður úr Tungunum, Egill Árni Páls-
son. Einnig syngur Barna- og
Kammerkór Biskupstungna, stjórn-
andi tónleikanna er Hilmar Örn
Agnarsson dómorganisti og kantor
í Skálholtsdómkirkju. Jólalag Skál-
holts 2007 er samið af Hildigunni
Rúnarsdóttur tónskáldi en kórinn
hefur frumflutt a.m.k. eitt nýtt jóla-
lag ár hvert undanfarin ár.
Fjölskylduhátíð
í Hafnarfjarðarkirkju
Fjölskylduhátíð verður í Hásölum
Hafnarfjarðarkirkju kl. 11 og mun
hún taka mið af aðventu og kom-
andi jólum. Bjarni Gíslason fulltrúi
Hjálparstarfs kirkjunnar kynnir
viðfangsefni hjálparstarfsins og
jólasöfnun þess og sýnir myndir frá
erlendum vettvangi. Leiðtogar
sunnudagaskólanna leiða dag-
skráratriði hátíðarinnar ásamt sr.
Gunnþór Þ. Ingasyni sóknarpresti.
Barna- og unglingakór Hafn-
arfjarðarkirkju syngur undir stjórn
Helgu Loftsdóttur við undirleik
Önnu Magnúsdóttur. Hljómsveitin
Gleðigjafar leikur og syngur. Í lok-
in verður boðið upp á góðgæti í
Ljósbroti Strandbergs.
Ljósamessa
í Landakoti
Maríumessa á aðventu verður laug-
ardaginn 7. desember kl. 18. Að
þessu sinni verður vökumessa þess-
arar hátíðar haldin á aðfangadags-
kvöld. Samkvæmt gömlum hefðum
er sérstök messa haldin á aðventu
sem kölluð er „ljósamessa“. Slökkt
er á öllum rafmagnsljósum og
kirkjugestir eru með kerti í hendi
alla messuna. Að messu lokinni er
boðið upp á heitt súkkulaði og smá-
kökur í safnaðarheimilinu.
Aðventusamvera í
Kópavogskirkju
Árleg aðventusamvera Kópavogs-
kirkju verður kl. 20. Kór Kópavogs-
kirkju syngur aðventu- og jólalög
og leiðir almennan söng. Organisti
og kórstjóri er Lenka Mátéová
kantor kirkjunnar. Þórunn Elín
Pétursdóttir syngur einsöng. Edda
Andrésdóttir fréttakona flytur hug-
vekju og Sigríður Stefánsdóttir les
jólasögu. Sr. Auður Inga Ein-
arsdóttir annast ritningarlestur,
bæn og blessun. Samverunni lýkur
með almennum söng og orgelleik.
Boðið verður upp á súkkulaði í
Borgum að aðventusamveru lok-
inni.
Aðventutónleikar
í Selfosskirkju
Messa verður kl. 11 í Selfosskirkju.
Hjónin Helgi Sigurðsson og Hildur
Thors lesa ritningarlestra. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Barnasamkoma er kl.
11.15. Léttur hádegisverður er að
lokinni athöfninni. Aðventu-
tónleikar verða kl. 17 og 20. Þar
mun barna- og unglingakórar Sel-
fosskirkju syngja, Strengjasveit
Tónlistarskóla Árnessýslu, Lúðra-
sveit Selfoss og Blásarasveit Tón-
listarskólans leika og Kór Fjöl-
brautaskólans, Kirkjukór Selfoss,
Karlakór Selfoss, Samkór Selfoss,
Jórukórinn og Hörpukórinn syngja.
Í lokin verður almennur söngur.
Kynnir á tónleikunum er Valdimar
Bragason kirkjuvörður. Ágóði af
tónleikunum rennur að þessu sinni
til þess að bæta hljóð- og hlust-
unarkerfi Selfosskirkju.
Helgileikur í
Grafarvogskirkju
Barnakór Grafarvogskirkju flytur
helgileik eftir John Høybye í fjöl-
skylduguðsþjónustu í Borgarholts-
skóla kl. 11. Prestur er séra Lena
Rós Matthíasdóttir, umsjón hafa
Gunnar og Dagný, stjórnandi er
Svava Kristín Ingólfsdóttir og org-
anisti er Aðalheiður Þorsteins-
dóttir. Sunnudagaskóli er í Graf-
arvogskirkju kl. 11. Prestur er séra
Vigfús Þór Árnason, umsjón hafa
Hjörtur og Rúna og undirleikari er
Stefán Birkisson. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur séra Bjarni Þór Bjarna-
son. Guðsþjónusta á Hjúkr-
unarheimilinu Eir kl. 15.30. Prestur
séra Vigfús Þór Árnason og Þor-
valdur Halldórsson leikur og syng-
ur.
Jólatónleikar verða kl. 16 þar
sem Krakkakór, Barnakór, Ung-
lingakór og Kór Grafarvogskirkju
syngja jóla- og aðventulög. Stjórn-
endur eru Hörður Bragason, Gróa
Hreinsdóttir og Svava Kr. Ingólfs-
dóttir. Hljóðfæraleikarar: Birgir
Bragason bassi, Hjörleifur Valsson
fiðla, Hörður Bragason orgel, Að-
alheiður Þorsteinsdóttir píanó,
Gróa Hreinsdóttir píanó.
Aðventukvöld
í Garðasókn
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í Ví-
dalínskirkju. Nemendur og starfs-
fólk Hofsstaðaskóla koma í heim-
sókn og taka þátt í athöfninni. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir
altari. Sunnudagaskólinn verður á
sama tíma í safnaðarheimilinu und-
ir stjórn æskulýðs-og forvarnarfull-
trúa Garðasóknar. Aðventu-
samkoma verður í Vídalínskirkju
kl. 20. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
og Nanna Guðrún Zoëga djákni
þjóna. Karl Ágúst Úlfsson bæj-
arlistarmaður Garðabæjar flytur
hugvekju og kór Vídalínskirkju
flytur sálma víða að úr heiminum
undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar. Að lokinni athöfn verður
boðið upp á súkkulaði með rjóma
og piparkökur. Sjá www.garda-
sokn.is
Sigurbjörn Einarsson
í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
Aðventukvöldvaka verður í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði kl. 20. Frí-
kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Arnar
Arnarsonar og Erna Blöndal syng-
ur einsöng. Sungnir verða aðventu-
sálmar sem beina huga okkar að
hinu eina og sanna tilefni jólahátíð-
arinnar. Hugleiðingu kvöldsins
flytur dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup.
Aðventuhátíð
í Árbæjarkirkju
Jólastund sunnudagaskólans og
Fylkis verður í Árbæjarkirkju og
hefst með fjölskylduguðsþjónustu
kl. 11. Leikhópurinn Perlan sýnir
helgileik um fæðingu frelsarans.
Tendrað verður á öðru kerti aðven-
tukransins, jólasaga lesin og jólalög
sungin. Eftir stundina í kirkjunni er
farið í safnaðarheimilið á jólaball
og dansað í kringum jólatréð.
Sveinar úr næsta nágrenni koma í
heimsókn með góðgæti handa börn-
unum.
Aðventuhátíð Árbæjarsafnaðar
er kl. 20. Á efnisskrá er m.a.
Triosonate í B-dúr e. Händel I og II
kafli og III og IV kafli, flytjendur
eru Magnea Árnadóttir flautuleik-
ari, Hjörleifur Valsson fiðla og
Krisztina Kalló Skzlenár. Hátíð-
arræðu kvöldsins flytur Sigmundur
Ernir Rúnarsson sjónvarps- og
fréttamaður, kirkjukór Árbæj-
arkirkju syngur við undirleik og
stjórn Krisztina Kalló Skzlenár.
Barnakór kirkjunnar syngur undir
stjórn Jensínu Waage, einnig verð-
ur almennur söngur. Ferming-
arbörn flytja helgileik „Sjá, konug-
ur þinn kemur til þín“. Endað er á
að rökkvað er í kirkjunni og að-
ventuljós kirkjugesta tendruð og
sungin jólasálmurinn Heims um
ból. Kynnir kvöldsins er Sigurþór
Ch. Guðmundsson sóknarnefnd-
armaður. Eftir aðventustundina er
boðið í heitt súkkulaði og meðlæti í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Leikrit og aðventuhátíð
í Lágafellskirkju
Barnastarfið í Lágafellskirkju er
kl. 13. Stopp-leikhópurinn flytur
leikritið ,,Jólin hennar Jóru“. Að-
ventuhátíð er kl. 20, samverustund
á aðventu með tónlist, söng, ræðu/
hugvekju og bæn. Tónlistarflutning
og söng annast hópur tónlista-
manna og söngvara sem munu
flytja hátíðleg aðventu- og jólalög
og leiða almennan söng. Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Kirkjukór Lágafells-
sóknar, Skólakór Varmárskóla,
undir stjórn Guðmundar Ómars
Óskarssonar, strengja- og blás-
arasveit. Organisti er Jónas Þórir
og ræðumaður er Haraldur Sverr-
isson bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Að
samverunni lokinni er öllum boðið
til kaffiveitinga í safnaðarheimilinu
að Þverholti 3.
Karlakór Reykjavíkur
syngur í Hallgríms-
kirkju
Messa og barnastarf kl. 11. Sr.
María Ágústsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt Jóni D.
Hróbjartssyni og messuþjónum.
Unglingar tendra tvö ljós á aðven-
tukransinum. Magnea Sverrisdóttir
djákni hefur umsjón með barna-
starfinu. Karlakór Reykjavíkur
syngur undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar en þeir hafa í mörg
ár sungið eina aðventumessu í
kirkjunni.
Síðustu tónleikarnir á Jóla-
tónlistarhátíð Hallgrímskirkju
verða kl. 17 og er yfirskrift tón-
leikanna, Bach og jólin. Björn
Steinar Sólbergsson organisti og
Schola cantorum flytja jólatónlist
eftir J.S. Bach. Stjórnandi Hörður
Áskelsson kantor.
Aðventuhátið verður í Hallgríms-
kirkju í dag, laugardaginn 8. des-
ember kl. 12-17. Hörður Áskelsson
segir frá og kynnir Klaisorgel Hall-
grímskirkju kl. 12. Leikið verður á
klukkuspil og lúðra í Hallgríms-
kirkjuturninum 12.30. Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur kl. 13.
Björn Steinar Sólbergsson flytur
franska jólatónlist fyrir orgel kl.
13.30. Drengjakór og félagar úr
Karlakór Reykjavíkur flytja jóla-
tónlist kl. 14. Hörður Áskelsson
leikur orgelverk samin fyrir Klais-
orgelið kl. 14.30. Söngsveitin Fíl-