Samvinnan - 01.08.1973, Blaðsíða 8
sinnar á árunum 1920-30.
Við upphaf frægðarferils
síns fékk hún einhverju
sinni giftingartilboð frá rík-
um bankastjóra í New York,
sem skrifaði:
„Kæra ungfrú, ég get
ekki lengur lifað einlífi og
verð endilega að fara að gifta
mig. En konan mín verður
að kunna að hlusta, verður
að kunna að þegja þegar við
á, verður að vera mér trú
ævina á enda . . . .“
Mae West svaraði:
„Hlusta! Þegja! Vera trú!
Herra minn, hvað hafið þér
eiginlega við konu að gera?
Þér eigið að fá yður hund.“
Þegar Mae West var á
ferðalagi í Italíu, gafst henni
færi á að sjá eldgos í Vesu-
viusi. ítalski leiðsögumaður-
inn talaði af miklum eld-
móði um þessa óvenjulegu
sjón, en Mae West lét sér
fátt um finnast. Þegar hún
hafði horft á glóandi eldfjall-
ið stundarkorn, sagði hún
einungis:
— Heima í Bandaríkjun-
um höfum við foss, sem gæti
slökkt í því á fimm mínút-
um.
Tarjei Vesaas (1897-1972),
norski rithöfundurinn, sem
skrifaði á nýnorsku, vann
fyrir allmörgum árum fyrstu
verðlaun í smásagnasam-
keppni, sem ítalskt vikublað
hafði efnt til. Hinn fátalaði
og heimakæri rithöfundur,
sem var kvæntur skáldkon-
unni Halldis Moren Vesaas,
fór til Ítalíu í sambandi við
verðlaunaveitinguna. Þegar
heim kom var hann spurður
spjörunum úr af blaðamanni
sem vildi fá að vita, hvernig
honum hefði farnazt.
— Hvernig var á Ítalíu?
spurði blaðamaðurinn.
— Það man ég ekki.
— Hvernig þá?
— Ég sá ekki neitt.
Það varð óþægileg þögn,
áður en blaðamaðurinn hélt
áfram:
— Þér höfðuð þó augun í
höfðinu?
-Já-
— En þá hljótið þér að
hafa séð eitthvað?
- Nei.
— Og þetta segið þér um
hina dásamlegu Ítalíu?
- Já-
— En reynið að skýra
þetta fyrir mér.
— Ég var ástfanginn.
— Afsakið.
— Maður sér ekki neitt
þegar maður er ástfanginn.
— Nei, sagði blaðamaður-
inn og skipti litum.
— Já, sagði Vesaas.
— Var það ítölsk stúlka?
- Nei.
— Hver var það þá?
— Það var konan mín . . !
James Whistler (1834—
1903), bandarískur málari
og kennari við listaháskóla,
átti til að vera miskunnarlaus
í gagnrýni sinni á verkum
nemenda listaháskólans. Það
var við eitt slíkt tækifæri, að
ung stúlka í hópi nemenda
rnissti þolinmæðina og mót-
mælti:
— Herra Whistler, sagði
hún æst, er nokkur ástæða
til þess, að ég máli hlutina
ekki einsog ég sé þá.
— Nei, svaraði Whistler,
það eru ekki til nein lög sem
ÚTGERÐARMENN
og fiskverkendur
Við viljum vekja athygli yðar á því
aS viS flytjum inn fyrir fiskiflotann öll helztu veiðarfæri, alls konar útgerðarvörur
aðrar op vélar lil fiskvinnslu um borð og í landi.
að viS flytjum inn rekstrarvörur frystihúsa og fiskverkunarstöðva.
aS viS flytjum inn salt til losunar beint á höfnum landsins.
aS við höfum í þjónustu okkar eina stærstu teiknistofu landsins, en starfsmenn
hennar hafa á undanförnum árum hannað byggingar og tækjaútbúnað hraðfrysti-
húsa og margs konar fiskvinnslustöðva vítt og breitt um landið.
aS viS höfum í þjónustu okkar sérfræðinga í flestum greinum fiskiðnaðarins.
KOM;Ð — HRINGIÐ — SKRIFIÐ — OG
ViÐ VEITUM FÚSLEGA ALLAR NÁNARI UPP-
LÝSINGAR.
Samband
Sjávarafurðadeild
8