Morgunn - 01.06.1946, Blaðsíða 57
MORGUNN
47
áhrif hans hafa orðið svo geysileg, að hann á nú fimm
hundruð milljónir af fylgjendum. En Gautama Búddha er
óljós söguleg persóna, og svo eru þeir einnig Zóróaster,
Laotse og Konfucius. Því er það, að ef vér tökum gildar
frásagnir guðspjállanna, og höfum í huga hin ósegjanlegu
áhrif, sem líf þeirrar persónu, sem þar er getið, hafði, þá
þorum vér að segja, að Jesús hafi verið hin æðsta vera,
hin fullkomnasta opinberun guðdómsins, sem á jörðunni
hefur birtzt siðan sögur hófust. Ég hef því enga tilhneig-
ing til að andmæla þeim, sem skoða hann sem æðri veru,
langt um æðri oss mönnunum. 1 Guðs takmarkalausa al-
heimi eru sennilega óendanlega mörg lífsform til, óendan-
lega margar tegundir af andlegum verum, vera má, að
Jesús hafi áður tilheyrt einhverri annarri tegund, æðri
voru mannlega lífi. Ég játa, að mér hefur stundum fund-
izt þetta um Emerson. Ekki aðeins rit hans, heldur einnig
frásagnir kunnugra af lífi hans, láta mig finna til þess, að
hann var svo miklu betri og meiri en ég, að ég undrast
og hika við, að hugsa um hann sem einn úr mínum hópi,
sem „aðeins mann“. Þess vegna hefi ég samúð með þeim,
sem eru sannauðmjúkir þegar þeir dæma eigin persónu
sína en hættir við að virða aðra of litils og meta mögu-
leika mannsandans of lágt, og finnst þeir þess vegna verði
að telja Jesú meira en mann. Þeir hafa allan rétt til að
hafa sína skoðun og auðmýktin er mikil dyggð. Allir menn,
og allar skapaðar viti gæddar verur, eru börn hins sama
föður, og margir af vorum eldri brœðrum munu hafa stigið
yfir hina dularfullu markalínu milli hins mannlega og hins
guðlega og orðið guðlegir, þótt þeir séu ekki fyrir það
sjálfur Guð. Vér vitum lítið um þessa háu anda. Vér get-
um hugsað oss, eins og Hindúar gera, að öðru hvoru fæð-
ist þeir til jarðarinnar, holdgist þeir á jörðunni, sem
Krishna eða Jesús, af frjálsum vilja mönnunum til hjálp-
ræðis. 1 vissum skilningi er rétt að veita þeim tilbeiðslu,
mannkyninu eru þeir óendanlega mikils virði. Margir halda,
að nú sé tíminn fullnaður fyrir fæðing einhvers slíks