Frjáls verslun - 01.03.2005, Blaðsíða 22
FORSÍÐUGREIN
Iðni er dyggð
„Lengi býr að fyrstu gerð, segir máltækið, en í uppvexti
mínum var brýnt fyrir mér að vera heiðarleg og hreinskiptin og
að iðni væri dyggð. Á unga aldri gekk ég í skátahreyfinguna
en þar má finna margar gullnar
reglur sem vel duga í leik og starfi,
ekki síst viðskiptum.
Innan tíðar á ég 40 ára starfs-
afmæli hjá Sigurði Ágústssyni ehf.
og þegar ég læt af störfum vildi ég
helst að mín yrði minnst fyrir það
að hafa náð árangri án þess að olnbogast áfram eða taka þátt
í ráðabruggi og umbyltingum, enda tel ég að festa og gott
siðferði séu afar mikilvægir þættir í fyrirtækjarekstri á öllum
tímum.“
Hlustaðu á innsæið
„Stundum er sagt að lausnin á flóknum hlutum sé einföld og
ætli það sé ekki bara heilbrigð skynsemi sem hefur dugað mér
best í viðskiptum. Ég hef orðað þetta sem
svo að mikilvægast af öllu sé að vera í það
góðum tengslum við sjálfan sig að maður
geti hlustað á innsæið. Fengið einhverja
ákveðna tilfinningu, sem segir hvort maður
sé á réttri leið. Líður manni vel með hlutina
eða ekki, um það snýst spurningin. Þetta
er ráð sem móðursystir mín Sonja Guðlaugsdóttir kenndi mér,
en þetta var nokkuð sem hún fylgdi alla sína
tíð í hverju einu sem hún gerði. Sama hef ég gert,
í atvinnurekstri jafnt sem öðru.“
Rakel Olsen, stjórnarformaður Sigurðar Ágústssonar.
„Heilbrigð
skynsemi hefur
dugað mér best í
viðskiptum.“
„Hafa náð árangri
án þess að olnbogast
áfram eða taka þátt
í ráðabruggi.“
RAKEL OLSEN
ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR
Þóra Guðmundsdóttir,
fyrrum eigandi Atlanta hf.
22 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5