Frjáls verslun - 01.03.2005, Side 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5
FARSÍMAR
Þ
róunin hefur orðið mjög hröð í farsímatækninni og
sjálfsagt hefur enginn sem hélt á stóru hlunkunum
í upphafi farsímabylgjunnar gert sér grein fyrir
þeim miklu breytingum sem urðu á farsímum á
stuttum tíma. Kristinn Jón Arnarson, ritstjóri Tölvuheims,
hefur fylgst með þróun farsímans og fræðir okkur um far-
símabyltinguna:
„Farsíminn er ekki lengur eingöngu sími. Að vísu eru þeir
sem einfaldastir eru fyrst og fremst símtæki og mörgum
nægja slíkir símar og kæra sig ekki um fjölbreyttari tæki.
Slíkir símar eru tiltölulega ódýrir í dag. Þegar komið er svo
í hærri verðflokk þá er notandinn kominn með myndavél,
tónlistarspilara, leiktæki og jafnvel lófatölvu.
Það var aðeins í byrjun sem ekki var auðvelt að ímynda
sér þróunina, en hún var hröð og fyrir þremur árum eða
um það bil var gert ráð fyrir mun hraðari framförum en
hafa orðið í dag. Ég sat þá fundi þar sem spáð var að þriðja
kynslóðin yrði komin í gagnið innan tveggja ára. Það hefur
ekki gerst enn sem komið er hér á landi og í litlum mæli
erlendis.“
Samskipti og afþreying
Er farsíminn orðið afþreyingartæki samhliða því sem hann
er samskiptatæki: „Það tel ég vera. Allavega hefur þróunin
verið í þá áttina. Ef við tökum myndavélina í símanum þá
voru gæðin ekki mikil í fyrstu en þau eru alltaf að aukast.
Í dag eru símarnir farnir að nálgast ódýrustu gerðir af
stafrænum myndavélum í gæðum og þar með er hægt að
losna við að taka með sér myndavél í fríið, síminn nægir
fyrir fjölskyldualbúmið. Á næstunni munum við einnig sjá
aukið geymslupláss í símanum fyrir tónlist og í framtíðinni
ætti síminn að geta komið í staðinn fyrir iPod spilara sem
nú ryðja sér til rúms. Nú þegar eru komnir símar sem hafa
talsvert geymslupláss fyrir tónlist og það á aðeins eftir að
aukast. Ekki má gleyma tölvuleikjunum sem eru í öllum
farsímum. Þeir eru að verða flottari og flottari með
stærra geymslurými og aukið minni. Það er
talað um að fyrir lok þessa árs verði komnir
símar á markaðinn sem eru svipaðir að
gæðum hvað varðar tölvuleiki og fyrstu
Playstation vélarnar.“
Hverjir skyldu svo nota þessa
síma sem hafa mikinn aukabúnað:
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
FARSÍMAEIGENDUR ER NÝJUNGAGJARNIR:
Kristinn Jón Arnarson:
Símar hækka ekki í verði
þó þeir verði sífellt full-
komnari.
Kristinn Jón Arnarson, ritstjóri Tölvuheims,
segir að tæplega þriðjungur farsímaeigenda
skipti um síma einu sinni á ári.
Þriðjungur skiptir um síma einu sinni á ári