Morgunblaðið - 29.01.1980, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1980
25
Borg þjálf
ará Spáni
TENNISSTJARNAN Björn
Borg ákvað um helgina að
gera.st þjálfari hjá spænska
tennisféiaginu Puente Rom-
ano. Flestir fremstu tennis-
leikarar Spánar eru í þessu
féiagi og er samningur
Borgs til tveggja ára. Er
talið að Borg fái fyrir sinn
snúð ekki minna en sem
svarar til 3ja milljóna
Bandaríkjadala.
Heimsmet
BANDARÍSKA stúlkan
Mary Decker setti um helg-
ina nýtt heimsmet í mílu-
hlaupi á móti i Auckland á
Nýja-Sjálandi. Hljóp hún
vegalengdina á 4:21,7 mínút-
um. Gamla metið hljóðaði
upp á 4:22.1 minútu og það
átti rúmenska stúlkan Nat-
alía Maracescus.
Celtic
mætir
St. Mirren
DREGIÐ heíur verið i 16
liða úrslit i skosku bikar-
keppninni. Efstu liðin, Celt-
ic og Morton, ættu að eiga
nokkuð greiða leið í næstu
umferð, leika bæði heima-
leiki, Celtic gegn St. Mirren
og Morton gegn Dunfirmlin
eða Buckie Thistle. Leikirn-
ir fara fram 16. febrúar
Hilpert aö-
stoðar KA
KA, SEM féll úr 1. deild i 2.
deild á síðustu knattspyrnu-
vertið, er enn þjálfaralaust.
Hefur víða verið skimað eft-
ir hugsanlegum þjálfara og
má m.a. geta þess að Klaus
Hilpert, þjálfari Skaga-
manna, er að athuga málin
meðal nokkurra landa
sinna.
Árni þjálf
ar Þór
KNATTSPYRNULIÐ Þórs á
Akureyri hefur ráðið Árna
Njálsson sem þjálfara fyrir
komandi keppnistimabil.
Árni var méð lið FH í 2.
deild á siðasta keppnistíma-
bili og gerði þar góða hluti,
kom liðinu upp í 1. deild.
Woodcock
skoraði
ÞEIR gera það gott Engl-
endingarnir í vestur-þýsku
knattspyrnunni. Ekki þarf
að tiunda afrek Kevins
Keegan, en sá nýjasti, Tony
Woodcock hjá FC Köln, hef-
ur verið óðum að ná sér á
strik með sinu nýja félagi.
Eitt af virtari dagblöðum
Þýskaiands valdi Woodcock
i lið vikunnar á síðum sinum
eftir að fymim Forest-
leikmaðurinn hafði skorað
eitt af mörkum Kölnar i
4—1 sigri um helgina.
Keegan var einnig á
skotskónum, skoraði eitt
mark fyrir HSV þó ekki
nægði það til sigurs. En
Keegan meiddist siðan illa
rétt fyrir leikslok og var
borinn af leikvelli. Var um
tíma óttast að hann hefði
brákað ristina, en í Ijós kom
þó að hann hafði einungis
marist illa.
Armenningar sigursælir
á Stefánsmótinu á skíðum
STEFÁNSMÓTIÐ á skíðum fór
fram á vegum skíðadeildar KR
um helgina og tókst í alla staði
mjög vel. Alls voru 198 keppend-
ur skráðir til leiks. Á laugardag
fór fram keppni í yngri flokkum,
en á sunnudag í flokki 15 til 16
ára og karla- og kvennaflokkum.
Veður var mjög gott báða dagana
og gekk mótið vel fyrir sig.
Kristinn Sigurðsson, Ármanni,
sigraði í karlaflokki, fékk sam-
anlagðan tíma 97,53 sek. Annar
varð Bjarni Sigurðsson, Húsavík,
fékk timann 99,10 sek. Halldóra
Björnsdóttir, Ármanni, varð svo
sigurvegari í kvennaflokki, hlaut
samanlagðan tíma 108,80 sek.
Keppendur létu mjög vel af
brautunum en þær lagði hinn
kunni skíðagarpur Jóhann Vil-
bergsson. Færi var nokkuð hart.
Það er athyglisvert hversu
marga sigurvegara Ármann hlýt-
ur i mótinu.
Keppni í yngri flokkunum var
mjög skemmtileg og hörð. Keppn-
isskapið skein út úr andlitum
unga fólksins og það lét sig ekki
muna um að halda áfram keppni
þótt á stundum væri keyrt út úr
brautinni. Það dreif sig af stað
aftur eins og ekkert hefði í skorist.
Jafnvel þó að skíðin dyttu af þá
var þeim bara skellt á sig aftur og
svo brunað af stað.
rétti keppnisandinn.
Meðal unga fólksins leynist án
efa margt efnið sem á eftir að láta
að sér kveða í framtíðinni í
skíðaíþróttinni.
Úrslit í Stefánsmótinu fara hér á
eftir:
Karlaflokkur:
Kristinn Sigurðsson
47,45-50,08
Bjarni Sigurðsson
48,56-50,54
Jónas Ólafsson
49,55-52,58
Guðmundur Gunnlaugsson
Það er líka Örnólfur Valdimarsson
Kristján Jóhannsson
Óskar Kristjánsson
A
97,53
Hú
99,10
Á
102,13
ÍR
105,40
KR
11,02
Kvennaflokkur:
Halldóra Björnsdóttir Á
55,30-53,40 108,80
Marta Óskarsdóttir Á
59,01-58,50 117,52
Ingibjörg Pálmadóttir Á
58,76-59,86 118,62
Ragnhildur Skúladóttir Á
56.69- 65,17 121,86
Piltar 15—16 ára:
Tryggvi Þorsteinsson Á
49,05-48,97 98,02
Ólafur Birgisson KR
49,71-51,90 101,61
Árni Guðlaugsson Á
51.70- 52,22 103,92
IR
104,10
KR
104,79
Stúlkur 10 ára og yngri:
samanlagt
Svava Skúladóttir Á 92,88
Þórdís Hjörleifsdóttir Vík 93,27
Hilda Valdimarsd. Á 97,80
Hrafnhildur Moonuj Á 162,20
Drengir 10 ára og yngri:
Ásgeir Sverriss. ÍR 83,35
Guðjón Mathiesen KR 83,45
Egill Jónss. ÍR 87,88
Árni Gunnarss. Á 90,90
Stúlkur 11 til 12 ára:
Kristín Ólafsd. KR 92,19
Kristín Stefánsd. Á 95,63
Sigrún Kolsoe KR 97,76
Drengir 11 til 12 ára:
Kristján Valdimarss. ÍR 75,26
Sveinn Rúnarss. KR 80,49
Þorvaldur Skúlas. Á 81,82
Hafsteinn Bragason
Stúlkur 13—15 ára:
Guðrún Björnsd; Vík. 73,70
Inga Traustad. Á 76,12
Þórunn Egilsd. Á 78,43
Rósa Jóhannesd. KR 78,70
Pilar 13 — 15 ára:
Gunnar Helgas. ÍR 72,87
Ásmundur Þórðars. KR 75,76
Haukur Þorsteinss. Á 79,74
-þr.
• Þrír fyrstu í piltaflokki 15 til 16 ára.
Sigurvegarinn Tryggvi Þorsteinsson Á fyrir
miðju, Ólafur Birgisson KR, sem varð annar, er
til hægri og Árni Guðlaugsson Á til vinstri.
• Hér sjást nokkrir af yngri keppendum
athuga hvaða tíma þeir hlutu í fyrri umferð-
inni. Áhuginn var mjög mikill hjá unga fólkinu.
Ljósm. Guðjón.
Gróska í skíðadeild KR-inga
EITT besta skíðasvæði í nágrenni
Reykjavíkur er að finna í skíða-
landi KR-inga við Skálafell. Á 20
ára timabili hefur skíðadeild fé-
lagsins byggt upp glæsilega að-
stöðu á svæðinu og nú er svo
komið að sex lyftur eru á staðn-
um og geta þær annað um 1400
manns á klukkustund. Þrjár
T-lyftur eru fyrir hendi, tvær
Það er gott að leggjast i snjóinn og hvíla lúin bein þegar búið er að
renna sér allan daginn. Ljósm. Guðjón.
toglyftur og ein kaðallyfta fyrir
börn.
Skíðasvæðið er opið fyrir al-
menning alla virka daga frá kl.
10.00 til 18.00 og upplýsingar um
færð o.fl. er hægt að fá í símsvara
skíðadeildarinnar, 22195. Hægt er
að kaupa árskort eða dagskort að
lyftunum og líka kort sem í eru
níu ferðir. Er verðinu mjög stillt í
hóf. Mikil og góð bílastæði eru á
svæðinu og nú er nægur snjór.
Skíðadeildin mun halda áfram
uppbyggingunni á svæðinu og
næsta verkefni deildarinnar er að
ljúka við þjónustumiðstöð sem er
við lyftu fimm og sex. Þar eiga að
vera salerni og afdrep fyrir þá,
sem eru með nesti. — Við munum
stefna að því að koma upp sem
fullkomnastri aðstöðu. Alla leið á
toppinn, sagði Steingrímur
Gröndal einn stjórnarmanna í
deildinni við blaðamann Mbl.
Óhætt er að hvetja allt skíðafólk
til þess að leggja leið sína í
Skálafell og kynna sér þá góðu
aðstöðu sem þar er fyrir hendi.
- þr.
Ólafur Birgisson KR i rásmarkinu. ólafur varö i ööru sæti i flokki 15 til 16 ára.
Til hægri á myndinni er Valur Jóhannsson, formaður skíðadeildar KR, og til
vinstri er Marteinn Guðjónsson mótsstjóri. Ljósm. Mbl. Guðjón B.
• Þrjár fyrstu í kvennaflokki, allar úr Ármanni. Fyrir miðju er Halldóra
Björnsdóttir, sem sigraði með yfirburðum, þá Marta Óskarsdóttir og Ingibjörg
Pálmadóttir. Ljósm. G.B.
Klamer búinn að vera
SKÍÐAFRÖMUÐIR velta því mjög fyrir sér þessa dagana,
hvort brunkóngur síöustu ára, Franz Klammer frá Austurríki,
hafi sungið sitt síðasta sem slíkur, því nú er ljóst að hann
kemst ekki í landslið Austurríkis sem keppir í Lake Placid í
næsta mánuði.
Á árunum frá 1974—77 sigraði Klammer í 22 brunkeppnum
og varð Ólympíumeistari í Innsbruck 1976. Á síðasta
keppnistímabili gerðist það hins vegar, að Klammer vann ekki
eitt einasta mót og sama hefur verið uppi á teningnum það sem
af er þessum vetri. Síðasta möguleikann fékk hann á
brunmótinu í Charmonix í Frakklandi um helgina, með sigri
þar hefði hanr enri komið til álita. En niðaþoka og erfið braut
komu í veg fyrir að Klammer næði sér á strik. Austurríski
landsliðsþjálfarinn lét hafa eftir sér við það tækifæri, að sér
þætti þetta leitt, en því miður væri ekki annað hægt að gera en
að setja Klammer út úr liðinu. Þess í stað munu skipa liðið þeir
Josef Walcher, Harti Weireither, Werner Grissman og Peter
Wirnsberger.
Klammer er ekki nema 26 ára gamall og því velta menn því
fyrir sér'hvað valdi. Benda menn á, að Klammer hefur ekki
unnið brunmót síðan bróðir hans, Klaus Klammer, féll á
brunmóti í febrúar 1977 með þeim afleiðingum, að hann
lamaðist fyrir neðan mitti.
Hanni Wenzel, frá dvergríkinu Lichtenstein, vann algeran
yfirburðasigur í stórsvigsmótinu sem fram fór í Megeve í
Frakklandi um helgina. Yfirburðir Wenzel voru með ólíkind-
um, en hún hlaut um 5 sekúndum betri tíma en hin 18 ára
gamla Perrine Pelan frá Frakklandi, sem hafnaði í öðru sæti.
Er nú svo komið í stigakeppninni, að Wenzel er nánast búinn
að tryggja sér sigur, en þegar aðeins ein keppni er eftir hefur
hún hlotið 311 stig. Anne Marie Moser Pröll frá Austurríki
hefur hlotið 265 stig, en Perrine Pelen hefur hreppt 188 stig.
Glæsileg frammistaða
Vals í Evrópukeppninni
ÍSLANDSMEISTARAR Vals í handknattleik eiga nú góða möguleika
á að verða fyrstir íslenskra liða að komast í 4 liða úrslit i
Evrópumeistarakeppninni í handknattleik. Valsmenn léku á sunnu-
dag fyrri leik sinn í átta liða úrslitum keppninnar og mættu þá
sænsku meisturunum Drott í Ilalmstad og töpuðu leiknum aðeins með
einu marki. 18—17, eftir að staðan í hálfleik var 10—7. Léku
Valsmenn þennan leik af mjög mikilli skynsemi og yfirvegun og tókst
að halda í við gott lið Svianna allan tímann, þrátt fyrir að pólskir
dómarar, sem dæmdu leikinn, væru þeim afar óhagstæðir og sem dæmi
um það má nefnda, að Drott fékk 10 vítaköst í leiknum en Valsmenn
aðeins 1.
Drott-
Valur
18:17
Gangur leiksins:
Það voru Valsmenn sem skor-
uðu fyrsta markið og síðan var
jafnt á öllum tölum fyrstu 10
mínúturnar, þá var staðan 4—4.
Þá tókst Drott að ná forystunni og
höfðu þriggja marka forskot í
hálfleik, 10-7.
í síðari hálfleik voru leikmenn
Drott mjög óheppnir í byrjun og
þrjú fyrstu skotin höfnuðu í
stöngunum. Valsmenn ná að
minnka muninn niður i eitt mark,
10—11, en þá tók Drott mikinn
sprett og skoraði grimmt og stað-
an breyttist í 17—11, og þannig
var staðan þegar síðari hálfleikur
var um það bil hálfnaður. Þá fór
sóknarleikur Vals að ganga betur
jafnframt því sem markvarsla
þeirra og varnarleikur var mjög
góður.
Síðasta kortérið í leiknum skora
Valsmenn sex mörk á móti einu
marki Drott. Valsmenn hafa því
mikla möguleika hér heima í
síðari leiknum sem fram fer á
sunnudaginn til þess að slá Drott
út úr keppninni.
Lið Vals:
Valsmenn léku þennan leik
mjög skynsamlega allan tímann.
Þeim gekk vel að stoppa hraða-
upphlaup Svíanna og tóku
hraustlega á móti þeim í vörninni
enda var það góður varnarleikur
og markvarsla sem gerðu út um
leikinn. Ólafur Benediktsson átti
stórleik í markinu, varði 12 skot í
leiknum, þar á meðal 3 vítaskot.
Brynjar Kvaran átti einnig góðan
leik en þeir félagar skiptust á um
að standa í markinu. Bestu menn
varnarinnar voru þeir Þorbjörn
Jensson og Stefán Gunnarsson,
sem börðust af miklum krafti.
Þorbjörn Guðmundsson skoraði
fimm mörk í leiknum og átti
ágætis leik, Gunnar Lúðvíksson
lék sinn besta leik með Val um
langt skeið. En í heildina v.ar liðið
jafnt.
Lið Drott er mjög gott og þeirra
besti leikmaður var Einar Jac-
obsson, sænskur landsliðsmaður.
Svíarnir leika hraðan bolta og búa
yfir mikilli knatttækni. Þá er
markvarsla liðsins góð. Fullt hús
áhorfenda var á leiknum og hvöttu
þeir sína menn ákaft.
Mörk Vals í leiknum skoruðu:
Þorbjörn Guðmundsson 5 (lv),
Gunnar Lúðvíksson 3, Bjarni Guð-
mundsson 2, Stefán Gunnarsson 2,
Stefán Halldórsson 2, Steindór
Gunnarsson 2, Þorbjörn Jensson 1.
Vel heppnaó afmælismót J.S.I
FYRRI hluti Afmælismóts JSÍ
fór fram s.l. sunnudag 27. jan. í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Keppt var í fimm þyngdarflokk-
um karla. Úrslit urðu þessi:
Yfir 86 kg.
1. Sigurður Hauksson UMFK
2. Bjarni Friðriksson Árm.
3. Kolbeinn Gíslason Árm.
Bjarni vann Sigurð en tapaði
óvænt í síðustu viðureigninni. Það
var Óskar Knúdsen sem gerði sér
lítið fyrir og kastaði Bjarna ippon
(10 stig). Urðu þeir Sigurður og
Bjarni jafnir að vinningum, en
Sigurður skoraði fleiri tæknistig.
71-78 kg.
1. Halldór Guðbjörnsson JFR
2. Ómar Sigurðsson UMFK
3. Níels Hermannsson Árm.
65-71 kg.
1. Gunnar Guðmundsson UMFK
2. Hilmar Jónsson Árm.
3. Steinþór Skúlason JFR
60—65 kg.
1. Jóhannes Haraldsson UMFG
2. Rúnar Guðjónsson JFR
3. Hilmar Bjarnason Árm.
Undir 60 kg.
1. Gunnar Jóhannesson UMFG
2. Halldór Jónasson Árm.
3. Sigurjón Hansson Árm.
Allmargir ungir og efnilegir
judomenn settu svip sinn á þetta
mót og veittu hinum reyndari
köppum harða keppni.
IS aekk í lið
Laugdælum
með
ÞAÐ URÐU sannarlega óvænt
úrslit í 1. deild íslandsmótsins i
blaki á sunnudagskvöldið, en þá
gerðu stúdentar sér Iítið fyrir og
unnu Þrótt örugglega.
Einhvern tíma hefðu það ekki
þótt tíðindi, en það sem af er
þessu keppnistímabili hafa IS-
menn lítið sýnt sem bent gæti til
þess að liðið gæti lagt Þrótt að
velli. En með sigri ÍS vænkaðist
hagur UMFL mjög, en Þróttur var
reyndar eina liðið sem verulega
ógnaði UMFL við topp deildarinn-
ar. Hvaða áhrif þessi úrslit hafa á
lokastöðu liðanna kemur í ljós
síðar, en ekki er ólíklegt að ÍS hafi
þarna unnið mótið endanlega fyrir
UMFL.
Yfirburðir ÍS voru miklir í
tveimur fyrstu hrinunum, sem
báðar enduðu 15—3 fyrir ÍS.
Þróttur tók sig saman í andlitinu í
þriðju hrinu og sigraði 15—7, en
lengra náði það ekki hjá Þrótti og
IS fylgdi eftir í fjórðu hrinunni og
sigraði af öryggi 15—6. Einn
leikur fór einnig fram í 1. deild
kvenna. Þróttur sigraði UBK 3—1
og eru það fyrstu stigin sem
Þróttur hlýtur á þessu keppnis-
tímabili.
Landsliðið í
borðtennis á
Evrópukeppni
• Það væri synd að scgja að vettlingatök væru í hávegum höfð á
júdómótum. Hér eigast tveir við á afmælismótinu um helgina.
Ljósm. Kristján.
Einkunagjöfin
í körfuknattleiknum
ÍSLENSKA landsliðið í borðtenn-
is heldur næstkomandi laugar-
dag 2. febúar út til keppni í
Evrópukeppni landsliða, 3. deild,
sem fram fer á eyjunni Guernsey
4.-7. febrúar. Að því loknu
tekur liðið þátt í opna Welska
meistaramótinu í Cardiff, 8.—10.
febrúar, og er það eitt sterkasta
opna meistaramót í heiminum í
dag og há verðlaun í boði.
Með okkur í riðli í Evrópu-
keppninni eru 5 þjóðir, Skotland,
Rúmenia, Portúgal, Guernsey og
Jersey.
Tveir af sterkustu leikmönnum
íslands geta ekki farið út núna
til keppni. Tómas Guðjónsson,
íslandsmeistarinn, getur ekki
farið og Stefán Konráðsson Vík,
fyrirliði landsliðsins er meiddur
og getur ekki leikið. Við þennan
missi minnka möguleikarnir á að
landinn geti jafnað reikninginn
við Guernsey og Jersey sem við
töpuðum naumt fyrir í fyrra.
Valur:
Kristján Ágústsson 4
Ríkharður Hrafnkelsson 3
Torfi Magnússon 3
Þórir Magnússon 3
Jón Steingrímsson 3
Jóhannes Magnússon 2
Sigurður Hjörleifsson 1
Gústaf Gústafsson 1
ÍR:
Kristinn Jörundsson 4
Jón Jörundsson 3
Sigurður Bjarnason 3
Sigmar Karlsson 3
Stefán Kristjánsson 2
Kolbeinn Kristinsson 2
Guðmundur Guðmundsson 1
Jón Indriðason 1
KR:
Jón Sigurðsson 3
Birgir Guðbjörnsson 1
Geir Þorsteinsson 3
Árni Guðmundsson 2
Ágúst Líndal 2
Þröstur Guðmundsson 1
Garðar Jóhannsson 3
Gunnar Jóakimsson 1
Eiríkur Jóhannsson 1
Fram:
Þorvaldur Geirsson 2
Símon Ólafsson 3
Björn Magnússon 2
Ómar Þráinsson 2
Hilmar Gunnarsson 2
Guðmundur Hallsteinsson 2
Guðbrandur Sigurðsson 1
Ungmennasamband
Austur-Húnavatnssýslu
óskar eftir aö ráöa knattspyrnuþjálfara n.k. keppnis-
tímabil.
Uppl. gefur Guömundur Guömundsson í síma
95-4123 milli kl. 8 og 23 og 13—18.