Morgunblaðið - 29.09.1981, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
216. tbl. 68. árg.
MíIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunbiaðsins.
Pólsk samtök
hætta störfum
Settur í embætti
Ilerra Pótur SÍKuriíeirsson var settur inn í em-
ba“tti biskups íslands síðastliðinn sunnudag við
hátíðleKa athöfn í Dómkirkjunni. Herra Sijtur-
bjiirn Kinarsson, sem nú lætur af embætti eftir 22
ára þjónustu, hóf guðsþjónustuna en siðan tók
herra Pétur Sigurgeirsson við og prédikaði.
Viðstaddir voru 140 íslenzkir prestar auk fjölda
Kesta. Var þetta í fyrsta sinn á þessari iild. sem
svona margir íslenzkir prestar hafa verið sam-
ankomnir. Herra Pétur SigurKeirsson tekur síð-
an formlega við embættinu 1. október næstkom-
andi. Ilér eru þeir fyrir altari Dómkirkjunnar
séra Iljálti Guðmundsson. dómkirkjuprestur.
herra SÍKurbjörn Einarsson. herra Pétur Siiíur-
Keirsson ok séra bórir Stephensen, dómkirkju-
prestur. Sjá nánari fréttir af athöfninni og ræðu
herra Péturs Sigurgeirssonar á miðopnu blaðs-
ins i dag.
Uppnám og verðhrun í
kauphöllum í heiminum
I.ondon. 28. sept. AP.
GÍFURLEGT verðhrun
varð í kauphöllum víða um
heim í dag og móðursýki
ríkti í Lundúnum. Kaup-
sýslumaður nokkur líkti
hruninu við mann sem
varpaði sér út úr flugvél
án fallhlífar.
Selt var fyrir um 3,6 milljarða
punda í Lundúnum og það fylgir í
kjölfar taps sem hefur numið 14,5
milljörðum á síðustu tveimur vik-
um.
Mikið verðfall varð einnig á pen-
ingamörkuðum í Asíu og Evrópu,
Kaupsýslumenn meta stöðuna i
hinu órólega ástandi i kauphöll-
inni i Lundúnum.
mest í Tókyó, þar sem aldrei áður
hefur orðið eins mikið verðfall. í
Zúrich hefur ekki orðið eins mikið
verðfall í sex og hálft ár. Mikið
verðfall varð einnig í Hong Kong,
París, Singapore, Frankfurt og
Sydney.
Brezkur sérfræðingur í kaup-
hallarviðskiptum, John Brew,
sagði að „þegar þróun sem þessi
hæfist gengi hún venjulega of
langt". Fjárhagsvísitala Financial
Times lækkaði um 17,2 stig í 457,5,
sem samsvarar 31 stigs lækkun á
Dow Jones-vísitölunni í New York.
Um tíma lækkaði vísitalan í Lund-
únum um 30 stig, en ástandið lag-
aðist er á leið.
Margar skýringar eru gefnar á
hruninu. Flestir benda á ótta fjár-
festingaraðila við hækkandi vexti
og samdrátt í heiminum. Þar við
bætist að fjármálaspámaður í
Wall Street, Joseph Granville,
spáði „bláum mánudegi" í síðustu
viku er mundi skaka undirstöður
fjármálaheimsins.
í Bretlandi var skýringin fyrst
og fremst ótti um að vextir geti
hækkað aftur í 17%, sem er met,
og jafnvel meira. Verðhrunið
leiddi til áskorana frá óánægðum
mönnum í íhaldsflokknum um að
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra mildaði peningastefnu sína.
„Vaxtastríðið nú er eins skaðlegt
og verndarstefnan var á árunum
eftir 1930,“ sagði Geoffrey Rippon,
þingmaður íhaldsflokksins. Hann
sagði að verðbréf mundu ekki
hætta að lækka í verði fyrr en
„fólk fengi trú á stjórn brezkra
efnahagsmála". En Rippon bætti
við: „Þetta er sjúkdómsmerki sem
ber vott um skort á tiltrú á þeirri
efnahagsstefnu sem Vesturlönd
fylgja sem heild."
Smáir fjárfestingaraðilar áttu
mestan þátt í hruninu, ekki stór-
fyrirtæki. Móðursýkinni í dag var
(idansk. 28. sppt. AP.
KOR. áhrifamestu samtök andófs-
manna í Póllandi. voru formlega
lögð nióur á þingi Samstiiðu i dag.
en hlöð komnuinista sögðu að þetta
va-ri „sameining" frekar en „útför“.
„KOR hefur lokið starfi sinu,“
sagði Jacek Kuron. leiðtogi samtak-
anna. „Þau voru viðeigandi á sínum
tíma. en aðsta“ður hafa breytzt.“
Umræður fara fram á þingi Sam-
stöðu um kosningareglur, en nýir
árekstrar blasa við í Katowice og
Czestochowa. í Katowice hefur verið
fyrirskipaður verkfallsviðbúnaður
vegna deilu um kauplausa vinnu á
laugardögum og handtöku verka-
lýðsleiðtoga. I Czestochowa er varað
við vaxandi spennu vegna handtöku
verkamanna. Vopnaðir hermenn og
lögreglumenn eru á verði á götunum
og hafa fengið liðsauka.
Talið er að ákvörðunin um að
leggja niður KOR geti blíðkað sov-
ézka og pólska leiðtoga sem hafa
sakað samtökin um að hafa víðtæk
áhrif á Samstöðu. En verið getur að
við taki ásakanir um að leiðtogar
KOR, sem margir hverjir eru ráðgj-
afar Lech Walesa, séu hættir að
þykjast hafa engin áhrif á ákvarðan-
ir Samstöðu.
Sá sem tilkynnti ákvörðunina á
þinginu var próf. Edvard Lipinski,
93 ára gamall hagfræðingur og einn
stofnenda Kor. Hann sagði: „Sósíal-
ismi ... átti að leysa vandamál
verkalýðsstéttarinnar ... En ...
komið var á sósíalisma óstjórnar,
líkt við hrunið mikla í Wall Street
1929 er leiddi til heimskreppunnar.
Kaupsýslumenn kalla lækkunina
síðustu tvær vikurnar „svörtu vik-
urnar".
Dollarinn styrktist í dag á gjald-
eyrismörkuðum — vegna hárra
vaxta — en gull lækkaði um rúma
20 dollara únsan.
sem á sér enga hliðstæðu í 200 ár,
sósíalisma fangelsa, ritskoðunar og
lögreglu."
Lipinski hélt því fram að sósíal-
ismi hefði „eyðilagt okkur í 30 ár“ og
sagði við dynjandi lófatak: „Það er
þessi sósíalismi sem er andsósíalsk-
ur og gagnbyltingarsinnaður."
Kommúnistablaðið Trybuna Ludu
sagði að það mundi litlu breyta að
KOR væri lagt niður. Pólska ríkis-
útvarpið benti á tengsl KOR og Sam-
stöðu og sagði: „KOR hefur gert
Samstöðu að erfingja sínum."
15 fórust í
sprengingu
Zrariyoh. Líhanon. 28. sept. AP.
SPRENGJA sprakk í bíl I dag við
vegaeftirlitsstiið. sem var mönnuð
palestínskum skæruliðum og líb-
iinskum vinstrisinnum, skammt
frá þorpinu Zrariyeh. þar sem mú-
hameðskir shitar húa. og 15 biðu
hana.
Fjörutíu aðrir særðust, margir
þeirra alvarlega, í sprengingunni
sem varð þegar leit var gerð að
vopnum og sprengjum í bílum á leið
til og frá Zrariyeh.
Flestir hinna föllnu voru úr sam-
eiginlegri nefnd er mannaði eftir-
litsstöðina, sem er í eins kílómetra
fjarlægð frá Zrariyeh, sem er 15 km
norður af syðstu hafnarborg Líban-
on.Tyros.
Að minnsta kosti 20 bílar brunnu
til ösku og skemmdir urðu á nálæg-
um verzlunum í sprengingunni. Eft-
irlitsstöðinni var komið á fót til að
treysta vopnahlé múhameðskra
shíta, sem fylgja írönum að málum,
og vopnaðra flokka líbanska komm-
únistaflokksins, sem fylgir Rússum
að málum, á Zrariyeh-svæðinu og
binda enda á öldu bílasprenginga á
yfirráðasvæði Palestinumanna og
vinstrisinna.
Bifreiðinni.sem sprengjan var í,
hafði verið lagt fyrir utan verzlun
sem selur samlokur. Sjónarvottur
sagði: „Ökumaðurinn fór inn, keypti
eina samloku og fór út úr búðinni
um bakdyr. Rétt á eftir sprakk bíll-
inn.“ Ökumaðurinn komst undan.
T augastríð
og Korchnois
Morano. 28. sepl. AP.
AÐSTOÐARMENN Viktors
Korchnois kröfðust þess i dag að
hann fengi að hafa svissneska
fánann í heimsmeistaraeinvíginu
við Anatoly Karpov og þar með er
talið vafasamt hvort einvígið get-
ur hafizt á fimmtudaginn eins og
áadlað er. „Við munum ekki tefla.
við gefum ekki eftir i þessu máli.“
sagði Emanuel Sztein. talsmaður
Korchnois.
Þar með virðist hafið sams kon-
ar taugastríð og í einvígi Karpovs og
Korchnois á Filippseyjum fyrir
þremur árum. Sztein segir að
Korchnoi vilji líka að svissneski
þjóðsöngurinn verði leikinn við
setninguna.
Málinu verður vísað til dóm-
nefndar á morgun, þriðjudag, en
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
sagði að beiðni Korchnois væri í
trássi við reglur. Þær kvæðu ótví-
rætt á um að leikmenn geti haft
hjá sér fána lands þar sem þeir eru
ríkisborgarar, en Korchnoi sé ekki
orðinn svissneskur þegn. Friðrik
kvaðst ekki hafa heyrt frá Karpov,
en vona að samkomulag næðist.
Hann skýrði það ekki nánar.
„Auðvitað er þetta vandamál, en
vandamálin gætu verið verri en
þetta," sagði Friðrik.
Korchnoi kom til Merano í dag.
Á hóteli hans dreifði Sztein póst-
kórtum með heimilisfangi Leonid
Brezhnevs forseta og gestir eru
beðnir að styðja áskorun um að
kona Korchnois, Isabella, og sonur
þeirra Igor fái að fara úr landi.
Karpov hefur farið þess á leit að
trégrind verði komið fyrir undir
hafið
borðinu, sem teflt verður við, til að
koma í veg fyrir að Korchnoi
sparki í sig.
Karpov skoðaði salinn þar sem
einvígið fer fram um helgina.
Hann heldur því fram að Korchnoi
hafi sparkað í sig til að trufla sig á
fyrri mótum.
Karpov bað líka skipuleggjendur
mótsins að útvega dökkleitara
borð, breyta lýsingunni í salnum
til að útiloka skugga og láta sig fá
stól með bríkum sem væru nær
hvor annarri. Honum var sagt að
farið yrði að óskum hans ef
Korchnoi hefði ekkert á móti því.
Með Korchnoi munu vera tveir
miðlar frá Filippseyjum er eiga að
heita áhrifum sínum gegn sérfræð-
ingi í dáleiðslu, sem hann segir að
Karpov ætli að nota í einvíginu.