Morgunblaðið - 29.09.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra:
Eg spái engri
gengisfellingu
Ákvörðun um fiskverð mun líklega dragast eitthvað
„ÉG spAi enjíri Kenj{isfcllinKu“
sasíAi Pálmi Jónsson landhúnaó-
arráðherra. er Mhl. ræddi við
hann í jja'r. Aðspurður um hvern-
ÍK ríkisstjórnin hyxðist ma'ta
fiskverðshækkun sasði hann:
„I>að á eftir að sjá hvað hún verð-
ur mikil. Það eru mariíir óvissu-
þa‘ttir í þessu.“
Pálmi var þá spUrður hvort
fiskverðshækkunar væri ekki að
vænta nú um mánaðarmótin.
Hann svaraði: „í raun og veru þá
ætti að koma nýtt fiskverð um
mánaðamótin en það er engin
vissa fyrir því og raunar ólíklegt
að það verði búið að ná saman um
fiskverð þá, — heldur muni það
dragast eitthvað fram á mánuð-
inn, þó auðvitað væri heppilegt að
það kæmi á réttum tíma.“
Pálmi sagði í lokin að fjallað
yrði um mál þetta á ríkisstjórn-
arfundi, sem haldinn verður ár-
degis í dag, þriðjudag.
Fannst látinn í Nes-
kaupstaðarhöfn
DANÍEL W.F. Traustason. skip-
stjóri og útvegshóndi á Kóp frá
Vestmannaevjum. fannst látinn i
fjörunni i Neskaupstaðarhöfn sl.
sunnudag. en talið er að hann
hafi fallið milli skips og hryggju.
Skip hans lá næst bryggju, er
sjólag og veður var þannig að mik-
il hreyfing var á bátum sem lágu
þarna, sog og drift. Daníel W.F.
Traustason var Grímseyingur, en
hafði búið í Vestmannaeyjum um
áratuga skeið þar sem hann var
aflasæll formaður og m.a. Afia-
kóngur Vestmannaeyja. Lík Daní-
els fannst í fjörunni nokkuð frá
þar sem bátur hans lá. Vart var
við ferðir Daníels þegar hann fór
um bryggjuna á leið til skips á
laugardagskvöld og var þá allt
með felldu. Daníel var mikill þrek-
maður og sundgarpur, en ekki er
vitað hvort hann synti að fjörunni
þessa örlaganótt. Bátur hans,
Kópur, lá í vari í Neskaupstaðar-
Daníel W.F. Traustason.
höfn, en báturinn var á reknetum.
Daníel W.F. Traustason var
fæddur árið 1928, kvæntur og læt-
ur eftir sig þrjú börn.
Rekstrarvandi Jökuls hf. á Raufarhöfn:
Hringlandaháttur og áhuga-
leysi stjórnvalda óþolandi
„ÉG. sem varastjórnaríormaður
Jökuls. er löngu hættur að sætta
mig við ástandið hér. Við viljum
ekki láta spila meira með okkur
eins og stjórnvöld eru að reyna og
héðan af kvitta ég ekki fyrir neitt
nema cndanlcga framtíðarlausn.
Verkafólkið á staónum er húið að
leysa sinn hlut vandans með því að
hafa hiðlund vegna ógreiddra launa
og nú á það rétt á því. að stjórnvöld
leysi sinn þátt.“ sagði Ilelgi Ólafss-
on. varastjórnarformaður Jökuls
hf. á Raufarhöfn. er Morgunhlaðið
ra'ddi við hann um málefni fyrir-
tækisins.
„ Það hafa komið fram ýmsar
fréttir um málið, án þess að nokkur
vissi hvaðan þær kæmu og hve
ábyggilegar þær væru og það veit
bókstaflega enginn enn þann dag í
dag hvar þessi mál standa, og því
var reynt að komast að því á fundi
með þingmönnum kjördæmisins á
sunnudaginn, en án árangurs. A
þessum fundi spurði þingmaður Al-
þýðubandalagsins hvers vegna
verkafólki, sem þarna ætti inni laun
sín, hefði ekki verið kynnt málin. Ég
spurði hann þá að því, hvernig hann
INNLEN'T
byggist við því að stjórn Jökuls ætti
að vita betur hvar þessi mál stæðu,
en allir þingmenn kjördæmisins,
sem hefðu farið 2. september suður
til Reykjavíkur með vandann í vas-
anum án þess að leysa hann. Það
kom fram hjá þingmönnum að eng-
inn vissi hvar málið væri statt í
kerfinu. Stefán Valgeirsson sagðist
ekkert geta upplýst um málið þar
sem Tómas Árnason væri í Banda-
ríkjunum, Sverrir Hermannsson í
Svíþjóð og Steingrímur Hermanns-
son í Róm, ætli honum hafi ekki leg-
ið á því að komast þangað til að tefla
við páfann eftir selaát á Grænlandi.
Ég er orðinn ákaflega hissa á þess-
um skollaleik kerfisins í eins alvar-
legu máli og þarna er á ferðinni og
mig undrar enn þá meira þögn
verkalýðsforystunnar hér á staðn-
um, þvi að út af minni málum hefur
verið krafizt sagna um það hvar
málið stendur í kerfinu.
Svavar Gestsson hefur sagt að
ríkisstjórnin sé búin að gefa ákveðin
f.vrirmæli á ákveðnum stöðum, en
hvað sem því líður, kemur ekkert frá
þessum stöðum. Þegar við vorum á
fundi með honum hér fyrir nokkrum
dögum, vorum við kallaðir með mikl-
um látum fram á símstöð til að stað-
festa skeyti til stjórnarformanns
Jökuls, sem var staddur í Reykjavík,
um það að honum væri heimilt að
taka á móti 2 milljónum króna. Hins
vegar var dagurinn ekki liðinn, þeg-
ar okkur var tilkynnt að þetta hefði
verið algjörlega tilgangslaust, þar
sem þessir peningar fyndust hvergi,
svona er hringlandahátturinn í
þessu máli og ekki virðist neinn vilji
stjórnvalda til að leysa málið,,, sagði
Helgi.
Unnið við fermingu karfaflaka í bandarisku þotuna Flying Tiger. Fyrri sendingin af tveimur af
ferskum karfaflökum, sem nú er verið að flytja á vegum SH til Bandarikjanna, fór til Boston á
sunnudaginn. Fiökin eru unnin í frystihúsi Bæjarútgerðar Reykjavikur og verði góður árangur af
sölu þeirra 42 lesta, sem ákveðið er að senda, eru fleiri ferðir fyrirhugaðar.
Haf a náð í allar þögl^r leiknar
kvikmyndir tengdar Islandi
KVIKMYNDASAFNIÐ á von á
að fá hingað eintak af frönsku
kvikmyndinni Fiskimennirnir
við ísland eftir sögu I*ierres Lot-
is, en hún var gcrð 1924. Litur þá
út fyrir að tekist hafi að fá fyrir
75 ára afmæii hcfðhundinna
kvikmyndasýninga á íslandi nú í
nóvcmber. allar þær leiknu
kvikmyndir frá tíma þöglu mynd-
anna. sem snerta ísland og vitað
er um. Verða þa“r þá sýndar í
Nýja bíói og Gamla bíói, scm
einnig á þá 75 ára afmæli og
standa híóin tvö að hátíðinni
ásamt Kvikmyndasafninu.
Myndirnar eru Fjalla-Eyvindur,
sem Victor Sjöström gerði 1917,
báðar myndirnar eftir sögum
Kambans, Hadda Padda og Det
sovende hus frá 1924—26, Glataði
sonurinn eftir Hallcane, sem hér
var tekin að hluta 1922, Pecheur
d’Islande eftir Baroncelli frá 1925,
að ógleymdri Sögu Borgarættar-
Steingrímur að
koma frá Ítalíu
og á förum til
Sovétríkjanna
STEINGRÍMUR Ilermannsson
sjávarútvegsráðherra er væntan-
legur til landsins i dag frá ítaliu,
en þar sat hann fund á vegum
FAO í Rómarborg.
Um miðjan næsta mánuð heldur
ráðherrann til Rússlands í opin-
bera heimsókn. Þess má geta að
Steingrímur var nýlega í opinberri
heimsókn í Grænlandi.
innar eftir sögu Gunnars Gunn-
arssonar.
Erlendur Sveinsson forstöðu-
maður Kvikmyndasafnsins tjáði
Mbl. að hann hefði nú fengið bréf
um að Pecheurs d’Islande, saga
Lotis um frönsku fiskimennina
væri tilbúin til sendingar til Is-
lands. En þegar hann hafði upp á
eintaki af henni í kvikmynda-
stöðvunum í Bois d’Archi var hún
ekki í sýningarhæfu standi, en
Frakkar hafa nú gert hana upp af
þessu tilefni. Myndin er gerð af
Jaques de Baroncelli, sem var m.a.
lærimeistari Rene Clairs. Um líkt
leyti sem þessi kvikmynd eftir
sögu Lotis frá fiskibænum Paim-
pol á Bretagne kemur, er Jón
Óskar rithöfundur að ljúka þýð-
ingu á sögu franska Islandssjó-
mannsins Yves Le Roux frá Paim-
NORSKA rannsóknarskipið
Nína Profiler kom hingað til Isa-
fjarðar síðastliðinn laugardag.
Ilafði það lent i vandræðum i
slæmu veðri og ís og týnt við það
dýrmætum rannsóknartækjum.
Skipverjar leigðu síðan flugvél
til leitar tækjanna. en ekki er
Ijóst hvort þau hafa fundizt.
Nina Profiler er leigð af danska
ríkinu til olíuleitarmælinga við
Grænland og hefur verið unnið að
rannsóknunum á svæði frá syðsta
odda Grænlands og langt norður
með því. Á föstudag var skipið
pol, sem kemur út hjá Steinholti
hf. nú fyrir jólin, prýdd myndum
frá tímum Islandssiglinga frönsku
sjómannanna.
Af þöglu myndunum eru þegar
komnar til landsins Fjalla- Ey-
vindur Jóhanns Sigurjónssonar í
gerð Victors Sjöströms, sem kom
frá Svíþjóð, myndirnar tvær eftir
sögum Kambans, sem hann leik-
stýrði á vegum Nordisk film og nú
komu frá Danmörku. Og loforð
eru fyrir því að komnar verði í
tæka tíð Pecheurs d’Islande frá
Frakklandi og Glataði sonurinn
frá Englandi, en hún var tekin að
hálfu hér á landi, í Hafnarfirði,
Héðinshöfða og víðar. Hefur Er-
lendur Sveinsson haft upp á þess-
um myndum og safnað þeim sam-
an af mikilli elju.
statt um 60 mílur út af Vestfjörð-
um í ís, er skyndilega gerði stór-
viðri. Skipið lenti þá í miklum erf-
iðleikum, en komst með harm-
kvælum út úr ísnum, en við það
týndust mjög dýrmæt rannsókn-
artæki. Skipverjar leigðu síðan
flugvél frá Sverri Þóroddssyni og
leituðu tækjanna á laugar- og
sunnudag, en ekki er ljóst hvort
þau hafa fundizt.
Nína Profiler hét áður Munchen
og var þýzkt verksmiðjuskip, sem
meðal annars stundaði veiðar hér
við land og var þá gert út frá
Þýzkalandi.
Úlfar
Rannsóknarskip í erfið-
leikum út af Vestfjörðum
- týndi við það dýrmætum rannsóknartækjum
Ísaíirói 28. soptemher.
Húsvískir ostar fá frábæra
dóma á ostasýningu í Danmörku
IIÚSVÍKSKIR ostar. Port Salut
og Búri. fengu i síðustu viku
mjög góða dóma á stórri osta-
sýningu í Herning í Danmörku.
24 manna dómnefnd gaf þeim
11.6 og 11.3 stig af 12 möguleg-
um og var það meðal þess
ha‘sta. sem gefið var. en þarna
voru hundruðir ostategunda til
sýnis, flestar danskar.
Að sögn Haraldar Gíslasonar,
mjókursamlagsstjóra á Húsavík,
hafa samlagsmenn þar verið að
prófa sig áfram með þessar
ostategundir og Tilsetter að
auki, og sagði hann, að þessir
góðu dómar væru ákaflega á-
nægjulegir og undirstrikuðu það
að þeir væru á réttri leið. Þessi
jákvæði árangur gæfi aukna
möguleika á vaxandi útflutningi
á ostum, bæði til Evrópu og
Bandaríkjanna og taldi hann að
möguleikar væru á því að fá
mjög gott verð fyrir Búrann á
Bandaríkjamarkaði.
Haraldur sagði ennfremur, að
það hefði komið mönnum á þess-
ari sýningu talsvert á óvart hve
góðir húsvíksku ostarnir reynd-
ust og sjáifur hefði hann ekki
búizt við svona góðum árangri,
hefði sætt sig við að fá ekki
nema 10 stig. Nú væri bara að
reyna að fylgja þessum góða ár-
angri eftir og reyna að flytja
ostana meira út en nú væri.