Morgunblaðið - 29.09.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
3
700 turamr
til Eski-
fjarðar
EskiiirAi. 28. septcmbor.
ÁTTA hátar komu moð rek-
notasíld til Eskifjarðar í da«;
samtals um 700 tunnur. on afli
einstakra báta var misjafn. frá
sáralitlum afla upp í 150 tunn-
ur.
Af þessum afla fóru 600 tunn-
ur til Auðbjargar og hitt skipt-
ist milli Sæbergs og Friðþjófs.
Ævar.
Félagsstofnun stúdenta:
Sigurður S.
Sigurðsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
SIGURÐUR S. Sigurðsson. við-
skiptafræðingur hcfur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Félags-
stofnunar stúdenta. Hann mun
hefja störf um miðjan desember.
Sigurður útskrifaðist frá Há-
skóla íslands vorið 1978 og hefur
búið um nokkurt skeið i Dan-
mörku og starfað i Kaupmanna-
höfn hjá Monopol-styret, sem er
stofnun sambærileg við Verð-
lagsstofnun.
Skúli Thoroddsen, lögfræðingur,
sem verið hefur framkvæmda-
stjóri Félagsstofnunar síðan 1978,
lét af störfum um miðjan sept-
ember og hefur hafið störf sem
lögfræðingur hjá verkalýðsfélag-
inu Dagsbrún.
Myndin er af Ólöfu Rún
Hjálmarsdóttur, sem lézt í
umferðarslysi á Akureyri
sl. föstudag. Ólöf heitin var
16 ára gömul og átti heima
að Glerárgötu 16.
Hörður í
Víking
ÍSLANDSMEISTARAR Vík-
ings i handknattloik fongu í
ga-rkviildi góðan liðsauka þog-
ar Hiirður Harðarson tilkvnnti
fólagaskipti úr Haukum í Vík-
ing.
Hörður hefur leikið með ís-
lenzka landsliðinu. Hann verður
löglegur með sínu nýja félagi
eftir mánuð.
Tjónið á Eskifirði nemur
hundruðum þúsunda króna
Krá K>rlcifi Ólafssyni hlm.
Mhl. EskifirAi.
_I>AD ER ljost að tjónið af viild-
um skriðufallsins nemur hundr-
uðum þúsunda króna. þó enn sé
ekki búið að meta það.“ sagði
Áskell Jónsson bæjarstjóri á
Eskifirði. þogar Mbl. hitti hann
að máli á skrifstofu hans í gær.
„Aurskriðan sem féll niður
Lambeyrará stórskemmdi marg-
ar lóðir hér. Hún byrjaði í u.þ.b.
400 metra hæð og bókstaflega
fyllti ána af grjóti. Leir og vatn
sem á eftir kom féll á nærliggj-
andi hús. Mikill vatnselgur lagð-
ist upp að elliheimilinu, þegar
skriðan hljóp en það var um kl.
10.30 á föstudagskvöld," sagði
Áskell og bætti síðan við: „Það
sem varð til þess að enginn aur
komst inn í elliheimilið var gam-
all bílskúr, sem stóð þar fyrir
ofan og átti reyndar að vera búið
að rífa fyrir löngu. Skúrinn
breytti stefnu straumsins þannig
að vatnið hljóp meira til austurs
og á lóðirnar þar og stórskemmdi
þær, ef ekki eyðilagði. Þá olli
vatn og aur stórtjóni í kjallara
hússins númer 12 við Lambeyr-
arbraut, og þar fyrir neðan fór
vatn inn í kjallara grunnskóla-
hússins, sem nú er í smíðum,"
sagði Áskell ennfremur.
„Þegar skriðan féll fluttum við
allt fólk af elliheimilinu, en við
gátum flutt það til baka að nýju á
laugardagsmorgun. Við kölluðum
strax út vinnuflokka bæjarins og
notuöum ennfremur öll tiltæk
stórvirk vinnutæki og byrjuðu
þau að grafa úr ánni um mið-
nættið og voru að fram til hádeg-
is á laugardag. Vélarnar höfðu
rétt undan að hreinsa upp úr
ánni, en ef þeirra hefði ekki notið
við, þá hefði án efa farið verr, en
talið er að áin hafi borið fram
milli 700 til 1000 rúmmetra af
grjóti og aur niður í bæinn. Nú er
tveggja tommu þykkt lag af leir á
kjallaragólfi nýja grunnskóla-
hússins og er talið að þaðan þurfi
að moka alls 30 rúmmetrum og
þar sem hér er mikil mannekla,
höfum við fengið níunda bekk
grunnskólans til starfans og sami
bekkur mun ennfremur hreinsa
leir af þeim lóðum í bænum, sem
urðu fyrir skemmdum og von-
umst við til að hreinsun ljúki í
þessari viku,“ sagði hann.
„Tjónið hefur enn ekki verið
metið til fulls, en eins og ég sagði,
nemur það hundruðum þúsunda
króna. Allar leiðslur í árfarvegin-
um eru horfnar og mjög dýrt
verður að koma þeim fyrir á ný.
Dómkvaddir matsmenn taka til
starfa á morgun, en viðlagatrygg-
ing á að bæta tjón á fasteignum,
síðan er það Bjargráðasjóður sem
væntanlega kemur inn í vega- og
hleðsluviðgerð,“ sagði Áskell að
lokum.
Þess má geta að síðast varð
skriðuhlaup á Eskifirði 1974, en
þá sópaði lækur í Bleiksárhlíð
storum hluta nærliggjandi vegar
í burtu.
„Stóð í vatni upp í mitti"
Frá Kiririfi Olaíssvni
hlm. Mhl. Eskifirði.
„ÞETTA gerðlst allt óskaplega
snöggt. Ég var uppi á efri ha-ð-
inni. þar sem ég bý. en leigjandi
sem hýr í kjallaranum var ekki
við. Ég varð vör við þegar vatnið
hyrjaði að renna inn í kjallarann
og hljóp niður. en þá fossaði vatn
inn um eldhúsgluggann, sem var
opinn og inn um rifu á glugga í
kyndiklefa. Ég reyndi strax að
loka gluggunum. en það gekk illa
vegna vatnsflaumsins og fljót-
lega stóð ég í vatni upp í mitti.“
sagði Guðný Aradóttir sem hýr
að Lambeyrarbraut 12 á Eski-
firði. þegar Mbl. ræddi við hana í
gær.
„Rafmagnið fór fljótlega af og
ég hef reyndar ekki enn fengið
hita á húsið, þar sem rafmótorar
við miðstöð biluðu. Hvað með það,
— sem ég stóð þarna í vatns-
flaumnum sá ég fljótt að kjallar-
inn myndi fyllast, ef ekkert yrði
gert. Tók ég því til bragðs að reyna
að opna útidyrahurð svo vatnið
ætti greiða leið út. Það gekk fyrst
örðuglega, þar sem teppi sem var á
ganginum, rúllaðist upp og lagðist
upp að forstofuhurðinni. En að
lokum tókst mér að opna bæði for-
stofu- og útidyr. Þegar það var bú-
ið sjatnaði vatnið fljótlega. Hins
vegar stóð þá mikill leir og aur
eftir á gólfunum og þurfti ég að fá
menn frá frystihúsinu á laugar-
dagsnótt, til að moka út úr kjall-
aranum og nú er ljóst að töluverð-
ar skemmdir hafa orðið á húsinu,“
sagði Guðný.
I gær hafði tjónið að Lambeyr-
arbraut 12 verið metið á 14000
krónur og tjón á húsgögnum metið
á 7000 krónur, en þá átti enn eftir
að meta skemmdir á rafmagns-
tækjum, svo sem þvottavél. Segja
má að lóðin sé algjörlega ónýt, þar
sem hún er þakin leir.
„Til marks um straumþunga
vatnsins, er það rann í gegnum
húsið,“ sagði Guðný, „ þá flutu
skór og ýmislegt fleira úr forstofu
og gangi út úr húsinu og sumt af
því fannst í gær og í dag í kringum
íþróttahúsið, sem stendur hér
nokkru neðar,“ sagði Guðný að
lokum.
Seyðisfjörður:
Skriða féll á skreiðargeymslu
Frá ÍHiriciii Ólalssyni hlm. Mhl.
„ÉG VEIT ekki enn hve mikið
tjónið er. en skreiðin er líklega
meira og minna ónýt.“ sagði
Ólafur M. ólafsson útgerðar-
maður á Seyðisfirði. þegar Mhl.
ra'ddi við hann í gær.
Fiskvinnslan hf. hefur notað
gamla verbúð Sunnuvers hf. sem
skreiðargeymsiu á þessu ári og
stendur verbúðin norðan fjarðar-
ins. Ekki er vitað hvenær skriðan
hljóp á húsið á laugardagsnótt,
en að sögn Ólafs M. Ólafssonar
kom hann á staðinn klukkan sex
á laugardagsmorgunn og þá hafði
skriðan verið hlaupin fram. Kvað
hann það myndi liggja fyrir ein-
hvern næstu daga, hve tjónið á
skreiðinni væri mikið, en í húsinu
voru nokkrir tugir tonna af
skreið, sem var tilbúin til pökk-
unar. Þá er húsið sjálft og mikið
skemmt.
Það komst mikið vatn inn í dís-
ilrafstöðina á Seyðisfirði og einn-
ig í kjallara nýju fjarvarmastöðv-
arinnar, en þar var vatnshæðin
um tíma yfir 40 sentímetrar.
Marga rafmótora sem þar voru,
þurfti að taka upp, en í gær var
búið að þurrka þá flesta og konia
þeim fyrir á ný. Fólk, sem býr í
efstu húsunum við Botnahlíð á
Seyðisfirði, varð að flýja hús sín
á laugardagsnótt þar sem margar
smáskriður féllu úr hlíðinni þar
fyrir ofan. Töluvert margar lóðir
skemmdust af leirburði.en að
sögn eins íbúanna, sem Mbl.
ræddi við, flýði fólkið hús sín ein-
göngu vegna hættu á frekari
skriðuföllum, sem hefðu getað
brotið fram stórgrýti, en hlíðin
fyrir ofan húsin er mjög stór-
grýtt.
Skriður féllu á mörgum stöðum
á Seyðisfirði, en engin þeirra olli
alvarlegu tjóni nema skriðan sem
hljóp á hús Sunnuvers hf.