Morgunblaðið - 29.09.1981, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRANING
NR. 183 — 28. SEPTEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Kaup Sala
Einmg Kl. 12.00
1 Bandartkjadollar
1 Sterhngspund
1 Kanadadoliar
1 Donsk króna
1 Norsk króna
1 Sænsk krona
1 Finnskt mark
1 Franskur franki
1 Belg franki
1 Svissn. franki
1 Hollensk florina
1 V.-þýzkt mark
1 Itolsk líra
1 Austurr Sch.
1 Portug. Escudo
1 Spánskur peseti
1 Japansktyen
1 Irskt pund
SDR (sérstok
dráttarr.) 25/09
7,838 7,860
13.854 13,893
6,514 6,533
1,0624 1,0654
1,3085 1,3122
1.3891 1,3930
1,7457 1,7506
1,3909 1,3949
0,2038 0,2044
3,9190 3,9300
2,9882 2,9966
3,3244 3,3337
0,00658 0,00660
0,4727 0,4741
0,1196 0,1199
0,0809 0,0811
0,03382 0,03391
12,110 12,144
8.8844 8,9096
--------------------------N
GENGISSKRÁNING
FEROAMANNAGJALDEYRIS
28. SEPTEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandarikjadollar 8,622 8,646
1 Sterlmgspund 15,239 15,282
Kanadadollar 7.165 7,186
1 Donsk króna 1,1686 1,1719
1 Norsk króna 1,4394 1,4434
1 Sænsk króna 1,5280 1,5323
1 Finnskt mark 1,9203 1,9257
1 Franskur franki 1,5300 1,5323
1 Belg. franki 0,2242 0,2248
1 Svissn franki 4,3109 4,3230
1 Hollensk florina 3,2870 3,2963
1 V.-þýzkt mark 3,6568 3,6671
1 Itolsk lira 0,00724 0,00726
1 Austurr Sch. 0,5200 0,5215
1 Portug Escudo 0,1316 0,1319
1 Spánskur peseti 0,0890 0,0892
1 Japanskt yen 0,03720 0,03730
1 írskt pund 13,321 13,358
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur.............. 34,0%
2 Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1*.37,0%
3 Sparisjóðsreikningar, 12 mán. 39,0%
4 Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
5. Avísana- og hlaupareikningar. 19,0%
6 Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum...... 10,0%
b innstæður í sterlingspundum. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum ... 7,0%
d innstæöur i dönskum krónum.. 10,0%
1) Vextír færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur i sviga)
1. Vixlar, torvextir... (26,5%) 32,0%
2. Hlaupareikningar..... (28,0%) 33,0%
3. Lán vegna útflutningsafurða.. 4,0%
4. Önnur afurðalán ...... (25,5%) 29,0%
5. Skuldabref ......... (33,5%) 40,0%
6. Visitölubundin skuldabréf.... 2,5%
7. Vanskilavextir á mán...........4,5%
Þess ber að geta, að lán vegna út-
flutningsafuröa eru verðtryggð miðaö
við gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 120 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lantakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg. þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lifeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aðild aö
lifeyrissjóðnum 72.000 nýkrónur, en
fyrir hvern arsfjóröung umfram 3 ár
bætast við lánið 6.000 nýkrónur, unz
sjóðsfélagi hefur náð 5 ára aöild aö
sjóönum. A tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóðsaöild bætast við höfuöstól leyfi-
legrar lansupphæðar 3.000 nýkrónur á
hverjum ársfjórðungi, en eftir 10 ára
sjóösaðild er lánsupphæðin oröin
180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aðíld
bætast við 1.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem liður. Þvi er i raun ekk-
ert hámarkslán í sjóðnum.
Höfuðstóll lánsins er tryggður meö
byggingavisitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstiminn er 10 til 32 ár
að vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir ágústmánuð
1981 er 259 stig og er þá míðað við 100
1. júní '79.
Byggingavísitala var hinn 1. júli síð-
astliöinn 739 stig og er þá miöaö viö
100 i október 1975.
Handhafaskuldabréf i fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Að vestan kl. 22.35:
Ferðamál á
Vestfjörðum
Á dagskrá hljóðvarps kl.
22.35 er þátturinn „Að vestan “
í umsjá Finnhotía Ilermanns-
sonar. Ra-tt er við Reyni Adólfs-
son um ferðamál á Vestfjörðum
ojí Kristján Jónasson um rekst-
ur Djúphátsins Fatcraness.
— Reynir Adólfsson er fram-
kvæmdastjóri nýstofnaðrar
ferðaskrifstofu hér á ísafirði,
Ferðaskrifstofu Vestfjarða,
sagði Finnbogi, — hann var áður
umdæmisstjóri Flugleiða á ísa-
firði. Eg ræði við hann um ferða-
skrifstofuna, ferðamannastraum
um Vestfirði og áætlanir um að
auka hann. Nýtt hótel var vígt
hér fyrir skemmstu, það er að
vísu ekki fuilbúið, en ákaflega
vistlegt það sem búið er og hægt
er að fá þar bæði mat og gist-
ingu. I framhaldi af samtalinu
við Reyni, þá tek ég tali Kristján
Jónasson, framkvæmdastjóra
Djúpbátsins hf. Stór hluti þeirra
ferðamanna sem til ísafjarðar
koma, fara með Djúpbátnum
Fagranesinu norður á Horn-
strandir til að skoða hinar yfir-
gefnu byggðir þar, bæði í
Grunnavík og Sléttuhreppi og
þar fyrir norðan. Auk þess gegn-
ir báturinn mikilvægu hlutverki
í samgöngum við ísafjarðardjúp
þar sem hann bæði sinnir mjólk-
urflutningum og hvers kyns
vöru- og farþegaflutningum.
Báturinn er nú nokkuð kominn
til ára sinna og við ræðum m.a.
um hugsanleg kaup á nýju skipi.
Óvænt endalok kl. 21.05:
„Aðeins það besta44
Undirtyllan er hrifin af dóttur forstjórans
Á dag.skrá sjónvarps kl. 21.05
er þáttur í myndaflokknum
Óvænt endalok og heitir hann
„Aðeins það besta“. Þýðandi er
Óskar Ingimarsson.
Myndin segir frá ungum
manni, sem vinnur hjá stóru
fyrirtæki. Ekki er hann til-
haldssamur í klæðaburði og
frekar óframfærinn í framkomu.
Hann er hrifinn af dóttur for-
stjórans en þorir ekki að láta til
skarar skríða vegna þess að hon-
um vex í augum sá mannamunur
sem honum finnst vera á þeim;
hún sé svo hátt yfir hann hafin,
undirtylluna í fyrirtækinu. Af
tilviljun hittir hann annan ung-
an mann, sem segist ekki eiga
vísan svefnstað. Hann býður
þessum heimilislausa manni
heim til sín og vísar honum til
hvílu í aukarúmi, sem er í íbúð-
inni. Ókunni maðurinn virðist
hins vegar eiga nóg af dýrindis
klæðnaði, og nú fer undirtyllan
Þjóðskörungar 20. aldar kl. 20.35:
Mahatma
Gandhi
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.35
er þáttur í myndaflokknum um
þjóðskörunga 20. aldar og fjallar
þessi mynd um frelsishetju
Indverja, Mahatma Gandhi.
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
Úr myndinni „Aðeins það
besta“ sem er á dagskrá kl.
21.05.
að koma miklu betur búin í vinn-
una en áður. Nú er stöðuhækkun
á næsta leiti og örlagahjólið tek-
ur að snúast með auknum hraða.
Utvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDKGUR
29. september
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir
8.00 Fréttir. Dagskrá.
Morgunorð. Oddur Alberts-
son talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
daghl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. enturt. þátt-
ur Ilelga J. Halldórssonar
frá kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Zeppelin" eítir Tormod
Haugen í þýðingu Þóru K.
Árnadóttur; Árni. Blandon
les (7).
9.20 Tónleikar. Tilkyimingar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.30 Islensk tónlist.
Halldór Ilaraldsson leikur
Fimm stykki fyrir píanó eft-
ir Hafliða Hallgrímsson /
Ólöf Kolbrún Ilarðardóttir
syngur lög eftir Ingibjörgu
Þorbergs. Guðmundur Jóns-
son leikur mcð á píanó.
11.00 „Man ég það sem löngu
leið"
Ragnheiður Viggósdóttir sér
um þáttinn. „ísland með aug-
um Alberts Engström."
Þorbjörg Ingólfsdóttir les.
11.30 Morguntónleikar
Marian Anderson syngur
negrasálma. Franz Rupp
leikur með á píanó / José
Greco og félagar flytja flam-
engotónlist.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður- V
fregnir. Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa.
— Páll Þorsteinsson og
Þorgeir Ástvaldsson.
SÍDDEGIO
15.10 „Frídagur frú Larscn"
eftir Mörthu Christensen.
Guðrún Ægisdóttir les eigin
þýðingu (7).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Kyung-Wha Chung og Kon-
unglega fílharmóníusveitiní
Lundúnum leika Skoska
fantasiu op. 46 eftir Max
Bruch / Fílharmóníusveitin
í New Youk leikur Sinfóníu
19.15 Fréttaágrip á táknniáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.30 Pétur
Tékkneskur teiknimynda-
flokkur. Áttundi þáttur.
20.35 Þjoðskiirungar 20stu
aldar
Mahatma Gandhi (1869--
1948). Þcssi mynd fjallar
um frelsishetju Indverja
Mahatma Gandhi. Mark-
mið Gandhis og fylgis-
manna hans var sjálfsta“ði
Indlands. Meðal annars
vegna árangurs þeirra í
stærstu nýlcndu heims,
fylgdu margar þjtiðir i kj-
ölfarið og híutu frelsi. Um
Gandhi hefur verið sagt. að
fáir þjóðarleiðtogar hafi
nr. 1 í C-dúr eftir Georges
Bizet: Leonard Bernstein stj.
17.20 Litli barnatiminn:
Stjórnandinn, Sigrún Björg
Ingþórsdóttir. fræðir börnin
um umferðina og það sem
varast ber. Síðan spjallar
hún við Svavar Jóhannsson,
9 ára gamlan. en hann lenti i
reiðhjólaslysi. Svavar lcs svo
söguna „Slysið á götunni"
eftir Jennu og Ilreiðar.
17.40 Á ferð.
óli II. Þorðarson spjallar við
vegfarendur.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ ___________
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
verið jafn miklir andans
menn. Þýðandi og þulur:
Gylfi Pálsson.
21.05 Óva'nt endalok
Aðeins það besta
Þýðandi: óskar Ingimars-
son.
21.35 Umferðin og við
Ilvað gerist 1. október?
Samkvæmt breytingum á
umferðarlögum. sem gerð-
ar voru á Alþingi sl. vor.
verður skylt að nota híl-
belti frá og með 1. október.
Frá sama tíma verður veitt
takmarkað leyfi til hjól-
reiða á gangstéttum og
gangstígum. I þessum um-
ræðuþætti verður fjallað
um umferðina og fram-
angreindar breytingar á
umferðarliigunum. Umra'ð-
um stýrir Óli II. Þórðarson
í beinni útsendingu.
22.25 Dagskrárlok
-/
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi.
Stjórnandi þáttarins: Sig-
mar B. Hauksson. Samstarfs-
maður: Arnþrúður Karls-
dóttir.
20.00 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
20.30 „Man ég það sem löngu
leið.“
(Endurtckinn Þáttur frá
morgninum.)
21.00 Frá tónlistarhátíðinni i
Schwctzingen 13. maí sl.
Hermann Baumann leikur
með Einleikarasveitinni í
Fíladelfíu.
a. Concerto grosso í I)- dúr
op. 6 nr. 4 cftir Arcanglo
Corelli.
b. Hornkonsert nr. 1 í D-dúr
eftir Joseph Ilaydn.
c. Konsertrondó í Es-dúr
(k371) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart.
21.30 Útvarpssagan: „Riddar-
inn“ eftir H.C. Branner.
Úlíur Iljörvar þýðir og lcs
sögulok (10).
22.00 Boston Pops hljómsveitin
leikur létt lög.
Arthur Fiedler stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Að vestan.
Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. Rætt er við Reyni
Adólfsson um ferðamál á
Vestfjörðum og Kristján
Jónsson um rekstur Djúp-
bátsins Fagraness.
23.00 Á hljóðbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th Björnsson
listfræðingur. Shcrlock
Holmes og Ba'heimshneyksl-
ið mikla eftir Arthur Conan
Doyle. Basil Rathbone leikur
og les.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
ÞRIDJUDAGUR
29. septembcr