Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
5
Síldarafli í lagnet
mun meiri en gert var
ráð fyrir i upphafi
- Rætt við Jón B.
Jónasson í sjávar-
útvegsráðuneytinu
um bann við
lagnetaveiðum frá
og með mánaðamótum
SÍLIIVEIÐAR í lannot hafa verið
stiiðvaðar frá «k með mánaða-
mótum. Að sögn Jóns B. Jónas-
sonar. skrifstofustjóra i sjávar-
útveKsráðuneytinu. fóru ha>?s-
munasamtök útKerðarmanna «k
sjómanna fram á það. er rætt var
um skipulaK vertíðarinnar í
haust. að ekki yrði leyft að veiða
meira af síld í la^net í ár heldur
en í fyrra. l>á veiddust um 700
t«nn af síld í laKnet «k saKði Jón.
að þeim. sem fen^u samþykki
fyrir laKnetaveiðum í haust, hefði
verið saKt frá því. að veiðarnar
yrðu stöðvaðar er aflinn væri
kominn í um eitt þúsund t«nn.
Þann 22. september síðastliðinn
hefði aflinn í lagnet verið orðinn
um 1100 tonn og því ætti bannið
frá og með mánaðamótum ekki að
koma neinum á óvart. Ef tíð yrði
góð fram að mánaðamótum mætti
gera ráð fyrir að síldarafli í lagnet
yrði þá hátt í tvö þúsund lestir.
Jón sagði, að upphaflega hefðu
lagnetaveiðarnar verið hugsaðar
þannig, að á þann hátt gætu sjó-
menn náð sér í beitusíld í stað
þess að flytja hana langar leiðir á
milli staða. Þegar síldin fór hins
vegar að dvelja lengur fyrir Norð-
urlandi og inni í fjörðum eystra,
hefði ásókn manna í lagnetaveið-
arnar aukist og síldin þá ekki að-
eins verið fryst í beitu heldur
einnig söltuð og jafnvel fryst til
útflutnings. Um fjölda þeirra, sem
væru á síldveiðum með lagnet
sagði Jón erfitt að nefna tölu.
Mjög mikill fjöldi hefði haft sam-
band við ráðuneytið og fengið
samþykki fyrir þessum veiðiskap,
en mjög margir væru með sárafá
net.
Hann sagðist hafa orðið var við
óánægju sjómanna, en það væri
jafnan þegar takmarka þyrfti
veiðar og skipta afla upp í kvóta.
Frá og með mánaðamótunum yrði
reglan sú, að aðeins þeir sem væru
með netahristara um borð og full-
kominn útbúnað til síldveiða í net
og hefðu til þess leyfi, fengju að
vera á síldveiðum í lagnet eða
reknet, en oft væri lítill munur á
þeim veiðarfærum.
Þessi ákvörðun er fyr-
ir neðan allar hellur
- segir Eggert Gíslason, sem róið
hefur frá Olafsfirði í haust
ÞAÐ var þungt hljóðið í Eggerti Gíslasyni, skipstjóra, er Mbl. ræddi
við han i gær um bann við veiðum þeirra báta, sem ekki hafa neta-
hristara um burð. — Hvað næst, spurði þessi landskunni aflamaður.
— Mér finnst þessi ákvörðun
fyrir neðan allar hellur og stund-
um finnst manni varla búandi í
þessu landi, sagði Eggert. — Við
erum að veiða stora og fallega síld,
sem er vel fallin til söltunar eða í
frystingu fyrir beitu og margir
eru að ná sér í beitusíld fyrir línu-
róðra í hau3t. Stutt er sótt og síld-
in komin í land aðeins hálftima
eftir að hún er hrist úr netinu,
þannig að varla er hægt að fá síld-
ina betri.
— Þetta er þó ekki nógu gott og
nú að að neyða menn til að kaupa
rándýr tæki, en komin um borð í
bátana kostar netahristari um 100
þúsund krónur og það fyrir tæki
sem alveg er hægt að vera án. Auk
þess er hæpið að vera að fjárfesta
í dýrum tækum og ómögulegt að
skipuleggja framtíðina, það veit
enginn hvað gerist næst eins og
dæmin sýna, bæði nú og áður á
undanförnum árum, sagði Eggert
Gislason. Hann er með 30 tonna
bát sinn, Njál, á Ólafsfirði í haust
og hafa þeir fengið um 700 tunnur.
TÖLUVERÐUR eldur kom upp i porti Sölunefndar varnarliðseigna
við Grcnsásveg um kl. 11.30 á sunnudagskvöld. Var þar töluvert
eldhaf er slökkviliðið kom að og voru miklar sprengingar i cldinum.
sem reyndust stafa af því, að i portinu voru brúsar með feiti og ýmsum
efnum er valda sprengingu þegar þau hitna. Slökkvistarf gekk þó vei
«K hjálpaði það til að kyrrt var í veðri. Var fyrst nutað vatn til að
draga úr eldinum en siðan kvoða til að kæfa hann alveg. Tiltölulega
litill skaði varð af hrunanum þar sem ekki var um verðmætar vörur
að ræða sem brunnu. Að sögn rannsóknarlögreglunnar er ekki enn
vitað með neinni vissu um eldsupptök, en álitið liklegast að um i-
kveikju hafi verið að ræða.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Síldveiðar á Skjálfanda.
Höfum ekki sagt okkar
síðasta orð í málinu
- segir Þórður Ásgeirsson á Húsavík
VID Húsvikingar erum að sjálfsögðu mjög óánægðir með þá ákvörðun
stjórnvalda að stöðva veiðar á beztu síldinni frá ok með mánaðamótum
ok höfum ekki sagt okkar síðasta orð í þesr.u máli, sagði Þórður
Asgeirsson á Húsavik í gær er Morgunblaðið spurði hann álits á þeirri
ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins að stöðva sildveiðar í lagnet eða
reknet frá og með mánaðamótum
bátunum.
— Við höfum verið að veiða
sannkallaða stórsíld eins og sést á
því, að í aflanum, sem fékkst í
sðustu viku var 90—%% af síld-
inni stórsíld, hélt Þórður áfram.
— Sildin er kössuð um boð þó það
sé ekki langt á miðin fyrir okkur,
aðeins 5 mínútur og í mesta lagi
hálftími. Ef vel aflast förum við
með síldina í land einu sinni til
tvisvar á drættinum til að hráefn-
ncma netahristari sé um borð í
ið komist sem allra fyrst í vinnslu.
— Okkur finnst fráleitt að
banna þessar veiðar, á þennan
hátt fæst bezt hráefni og þess er
aflað á þjóðhagslega hagkvæman
hátt. Nei, segja herrarnir fyrir
sunnar, síldina skal veiða fyrir
Austfjörðum þó svo að það kunni
að kosta meira að afla hennar og
ekki sé farið eins vel með hana.
— Það er furðulegur fyrirslátt-
ur að leyfa þeim ekki að veiða, sem
ekki eru með hristara um borð og
okkur þykir verst, að bannið skuli
vera sett á okkur að beiðni okkar
hagsmunasamtaka eins og nú er
sagt. Það finnst okkur ódrengilegt.
Við ræddum þessi mál á fundi með
þingmönnum kjördæmisins á
laugardaginn og þeir munu ætla
að beita sér fyrir breytingum á
þessari einkennilegu ákvörðun.
Þingmennirnir voru sammála um
að þetta mál þyrfti að athuga bet-
ur og meðal þeirra var Ingvar
Gíslason, menntamálaráðherra,
sagði Þórður Asgeirsson.
Burt meö slenið og aukakílóin
Þú getur æft þig meö vaxta-
mótaranum aöeins 5 tii 10
mín. æfingar á dag í ró og
næöi heima hjá þér, og á
þeim tíma dagsins sem
hentar þér, til aö grenna,
styrkja, og fegra líkama
Léttiat
um
)tar'»nn
\ taek'»
Léttisi
/\ö aoka-
09 W
um
æktar
Léttiat
urr
4kg
Milljónir manna, bæöi konur
og karla nota vaxtarmótarann
til aö ná eðlilegri þyngd og til
aö viðhalda líkamshreysti
sinni. Geröu líkamsæfingar í ró
og næöi heima hjá þér.
Þessi fjölskylda notaði vaxtarmótarann
í 15 daga með þeim árangri sem sjá
má á myndinni hér að ofan.
Á • Vaxtarmótarirm styrkir tegrar og grenmr likamánn
4' • Arangurinn er skjótur og áhrifarikur
• Æfingum meö tækinu má haga eftir því hvaóa líkamshluta menn vilja
grenna eöa styrkia
• Vaxtarmótarinn mótar allan líkamann. arma. brjóst. mitti, kviövöóva,
mjaömir og fætur
• islenzkar þýöingar á æfingakerfinu fylgja hverju tæki
• Huröarhúnn nægir sem festing fyrir vaxtarmótarann
• Reyndu þetta einfalda og hentuga nýja tæki til aö ná aftur þinni fyrri
líkamsfegurö og lipurö í hreyfingum.
• 14 daga skilafrestur þ.e ef þú ert ekki ánægöur meö árangurinn eftir 14
daga getur þú skilaó því og fengió fullnaóargreióslu.
Sendiö mér:
□ upplýsingar □ . stk. vaxtarmótara kr. 99.00 og póstkostnað.
Nafn .................................
Heímilistang .........................
Pöntunarsími 44440
Póstverzlunin Heimaval, box 39, Kópavogi. ^