Morgunblaðið - 29.09.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
11
Þurft að vinna
60—80 aukavinnu-
tíma á mánuði
- segir Jóhann Marinósson
„HELSTA orsökin fyrir hjúkr-
unarskortinum eru Iúk laun. Ef
ók tek sjálfan iuík sem da>mi. þá
hef ók oft orðið að vinna 60—80
yfirvinnutíma á mánuði til að
endar næðu saman. enda er ég
með stóra fjölskyldu. en börnin
okkar eru fjögur o»? konan mín
hefur ekki unnið úti fyrr en í
sumar." sa«ði Jóhann Marinós-
Jóhann
Marinós-
son
son. sva'finKarhjúkrunarfræð-
in^ur á Landakoti.
I öðru lagi, þá er hér um gífur-
legt vinnuálag að ræða, auk þess
sem mikli ábyrgð fylgir starfinu.
Þegar vitað er af þessu vinnu-
álagi, þá vill fólk síður taka að
sér þessi störf, auk þess sem
hjúkrunarskorturinn kemur
þannig út að skipt er of hratt um
vaktir til dæmis úr dagvakt á
kvöld- og næturvaktir.
í þriðja lagi, þá tel ég að það
myndi laða hjúkrunarfólk meira
að starfinu ef kostur væri á
barnagæslu, en eins og nú er, þá
eru langir biðlistar á flestum
dagheimilum, sem rekin eru af
spítulunum.
I fjórða lagi, þá tel ég að hjúkr-
unarfræðingar séu í auknum
mæli að fara út í sérnám og því
vanti almenna hjúkrunarfræð-
inga á spítalana. Sókn í sérnám
skapast meðal annars af því, að
mínu áliti, að hjúkrunarfræð-
ingar vilja losna við vaktavinn-
una, sem er afar þreytandi til
lengdar.
Frá blaðamannafundi í Þjóðleikhúsinu vegna frumsýningarinnar á miðvikudag. A myndinni má sjá
Kristbjörgu Kjeld. leikstjóra, David Walters. ljósahönnuð, Kristínu Bjarnadóttur, leikkonu og Guðrúnu
Svövu Svavarsdóttur, leikmyndateiknara.
(Ljósm. Kristján.)
„Ástarsaga aldarinnar" á f jalirnar
Na'stkomandi miðvikudagskvöld
frumsýnir Þj<>ðleikhúsið á Litla
sviðinu nokkuð óvanalegt leik. Það
er sýning sem byggð er á fra'gri
Ijóðahók finnsku skáldkonunnar
Márta Tikkanen og nefnist eins og
bokin. Astarsaga aldarinnar. Það
er Kristín Bjarnadóttir. leikkona.
sem hefur þýtt verkið og er hún
jafnframt eini leikandinn í sýning-
unni. Kristín hefur einnig unnið
leikgerðina ásamt leikstjóranum.
Kristbjörgu Kjeld. en Astarsaga
aldarinnar hefur verið færð upp á
leiksviði viða í Skandinavíu í ýms-
um myndum. Verkið kom út í bók-
arformi í íslenskri þýðingu Krist-
ínar sl. vor. en í leikgerðinni er riið
Ijoðanna í hokinni hreytt verulega
svo dramatísk framvinda na“st.
Það er Guðrún Svava Svavars-
dóttir sem gerir leikmynd og bún-
inga og David Waltcrs sér um lýs-
inguna. Þetta er fyrsta frumsýn-
ingin á Litla sviði Þjóðlcikhússins
á þessu hausti.
Márta Tikkanen sendi frá sér Ást-
arsögu aldarinnar árið 1978 í Finn-
landi, en hafði áður gefið út fjórar
skáldsögur, m.a. eina sem síðar var
kvikmynduð, Karlmönnum er ekki
hægt að nauðga. Ástarsaga aldar-
innar vakti þegar mikla athygli og
hlaut t.d. norræn bókmenntaverð-
laun sem kvennasamtök veittu árið
1979. Þess skal getið að Marta Tikk-
anen kemur hingað til lands á
mánudag og mun lesa hér úr verk-
um sínum í Norræna húsinu, og
verða viðstödd frumsýninguna á
miðvikudag.
í frétt frá leikhúsinu segir:
„í Ástarsögu aldarinnar lýsir höf-
undurinn sambandi sínu og eigin-
mannsins, Henrik Tikkanen, sem er
frægur teiknari ogrithöfundur og
einnig áfengissjúklingur. Lýsingin á
heimilishögum drykkjusjúkra er
nærgöngul mjög og hreinskilin, full
af gremju og jafnvel hatri og níst-
andi háði, en jafnframt glóandi af
ást og samúð. Hún hatar og elskar í
senn og hefur tekist að miðla lífs-
reynslu sinni og gefa henni þar með
gildi fyrir aðra.“
til að kynna sér málin betur sökum
vinnuálags.
Þar eð mikil vöntun er á hjúkrun-
arfræðingum, þá eru stöðurnar oft
mannaðar af hjúkrunarfræðingum,
sem taka á sig aukavaktir og geta
aukavaktirnar farið upp í hálf mán-
aðarlaun hjá hjúkrunarfræðingi.
Þegar svo er komið hlýtur eitthvað
að vera að þessu kerfi.
Samfara vinnuálagi kemur mikil
ábyrgð, því hjúkrunarfræðingar
sem eru á vakt bera ábyrgð á vellíð-
an sinna sjúklinga. Þeir verða að
meta hverju sinni líðan sjúklingsins
og hvenær á að kalla á lækni.
Hjúkrunarfræðingarnir geta aldrei
farið út af deildinni, en það geta
læknarnir aftur á móti. Þeir geta til
dæmis farið heim til sín og látið
síðan kalla á sig, ef með þarf eða
þeir fara inn á sína skrifstofu og
leggja sig. Það er líka spurning,
hvort að hjúkrunarfræðingar eru
ekki búnir að koma læknum upp á
að taka af þeim ýmis störf, en
hjúkrunarfræðingar eiga alls ekki
að vera neinir handlangarar fyrir
lækna heldur eru þeir sjálfstæð
stétt sem ber ábyrgð á hjúkrunar-
meðferðinni samkvæmt lögum.
hdeiri atriði en lág laun og vinnu-
álag valda því að vöntun er á hjúkr-
unarfræðingum til starfa. Vakta-
vinna er til dæmis afar þreytandi til
lengdar. Það er slæmt fyrir lík-
amsstarfsemina að skipta sífellt um
svefntíma auk þess sem það sam-
rýmistekki reglubundnu heimilislífi
og fjölskyldulífi eða bara venju-
legum samskiptum við annað fólk
að vinna vaktavinnu ár eftir ár.
Vegna þessara atriða sem ég hef
nefnt hér og ýmissa fleiri, þá er svo
komið að til dæmis giftar konur með
börn sjá lítinn tilgang með því að
vinna sem hjúkrunarfræðingar og
ég veit líka til þess að ýmsir hafa
farið út í önnur störf, sem eru þá
betur launuð," sagði Lilja Oskars-
dóttir að lokum.
IIE
Baldur segir upp öll-
um gildandi samningum
Almennur félagsfundur Verka-
lýðsfélagsins Baldurs ísafirði
haldinn 17. setember 1981, sam-
þykkti að segja upp öllum gild-
andi samningum félagsins við at-
vinnurekendur.
I fundarsamþykkt segir að
fundurinn árétti kröfu síðasta
þings Alþýðusambands íslands, að
gildistími nýrra samninga verði
frá og með þeim degi er hinir eldri
renna út.
Svigrúm til verulegrar hækkun-
ar á launatöxtum fiskvinnslufólks
og til annarra í lægstu launaþrep-
um verkafólks hefur sjaldan verið
meira en nú vegna hagstæðra ytri
skilyrða.
Hin gífurlega hækkun fram-
leiðslu okkar á aðal fiskmörkuðum
íslendinga hlýtur að kalla á hærri
laun til þeirra sem verðmæti þessi
skópu.
Fundurinn telur vænlegast til
árangurs fyrir verkafólk í kom-
andi samningum að kröfu- og
samningagerð sé alfarið í höndum
sameiginlegrar samninganefndar
á vegum Alþýðusambands Vest-
fjarða og að slík samninganefnd
fái fullt umboð allra verkalýðsfé-
laga á Vestfjörðum tii að semja
heima fyrir við vinnuveitendur á
Vestfjörðum. Þó kemur til greina
samstarf við önnur skyld verka-
lýðsfélög um atriði sem snúa beint
að stjórnvöldum, svo sem skatta-
mál, verðtryggingu launa og jöfn-
un aðstöðumunar eftir búsetu.
Leiðrétting
í grein minni „Menn sigla ekki
með akkerið úti“ stendur í níundu
línu neðan frá, fjórða dálki „mjög
varla“. Þarna á mjög að falla út,
og mun villan stafa af ekki nægi-
lega skýrri breytingu í handriti,
en alls ekki frá setjaranum.
Guðmundur Gíslason Iiagalín
Ford Taunus
árgerð 1982
Ford Taunus árgerö 1982 er kominn á markaöinn.
Viö bjóöum eftirfarandi gerðir:
Taunus 1600 GL verö 111.000
Taunus 1600 GLsjálfskipting verð 120.000
Taunus 2000 Ghia m/vökvastýri verö 136.000
Taunus 2000 Ghia m/vökvastýri og sjálfskiptingu verö 147.000
Ford Taunus, þýskur bíll í efsta gæðaflokki.
Hafið samband viö sölumenn okkar og tryggið ykkur bíl úr næstu sendingu.
SVE/NN EG/LSSON HF
SKEIFUNNI 17 SIMI 85100 REYKJAVÍK