Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Pétur BjörnsNon, til vinstri, ok Bjarni Stefánsson, framkvæmda-
stjórar hljómtækjadcildar Karnabæjar i verzluninni aó Hverfis-
götu 103.
víðs vegar um heim og hefur náð
góðum árangri í að bjóða góða
vöru á sanngjörnu verði. Fyrir-
tækið er staðsett í Hollandi en
hefur skrifstofur víðs vegar um
heim, m.a. í Bretlandi, V-Þýzka-
landi, Hong Kong og Japan. Frá
Audiosonic höfum við á boðstól-
um meðal annars ferðatæki,
hljómtæki og úr.
Þá erum við með tónbönd og
myndbönd frá TDK, eínu þekkt-
asta og viðurkenndasta fyrir-
tæki á sínu sviði. Ortofon er
danskt fyrirtæki, sem sérhæfir
sig í framleiðslu hljóðdósa
(pick-up) og nála og hefur náð
undraverðum árangri. Það sést
best af því, að Ortofon hefur
stærsta markaðshlutdeild á Jap-
ansmarkaði á sínu sviði.
Við höfum fengið tölvu frá
Ortofon, sem gerir okkur kleift
að mæla gæði hljóðdósa og
plötuspilara. Við munum veita
nýja þjónustu í þessu sambandi.
Við bjóðum fólki að koma hingað
með hljóðdósina og/eða plötu-
spilarann og mælum tækið upp
endurgjaldslaust. Þannig getur
viðskiptavinurinn komist að því
hvað amar að á fljótvirkan og
þægilegan hátt.
Þannig erum við sífellt að
reyna að bæta þjónustu okkar. í
því sambandi má nefna, að við
höfum tekið upp helgarþjónustu.
Þau tilvik geta komið upp, að
tæki þarfnast viðgerðar og þær
bjóðum við. Þá erum við með
myndbandaleigu, bæði sýningar-
og upptökutæki. Einnig getum
við fært upptökur af 8 milli-
metra filmu yfir á myndband.
Loks má nefna, að við erum bún-
ir að koma upp stúdíóvél og get-
um tekið upp efni fyrir aðila út í
bæ, svo sem íþróttakappleiki og
ýmiss konar viðburði.
Hljómtækjadeild Karnabæjar
var sett á laggirnar 1970 en í maí
1980 var fyrirtækinu skipt upp
en við héldum nafninu enda
nafnið Karnabær orðið rótgróið í
hugum fólks."
— .. 1 1
Aukin þjónusta
í nýju húsnæði
- Hljómtakjadeild Karnabæjar flytur mejíinhluta starfsemi sinnar að Ilverfisgötu 103
Ilin nýja verzlun hljómtækjadeildar Karnabæjar.
„HÚSN/EÐIÐ hér á Hverfis-
giitu 103 gjörhreytir allri að-
stiiðu okkar. Það er nála'gt þús-
und fermetrum og skiptist í
verzlunarhúsna'ði. lager, verk-
sta-ði og skrifstofuhúsnæði og
aðstaða er til að taka 2 til 3 bíla
inn hverju sinni til að setja í þá
hílaútvörp.“ sögðu þeir Bjarni
Stefánsson og Pétur Björnsson.
eigendur hljómta'kjadeildar
Karnaha-jar. i samtali við Mbl.
á laugardag en einmitt þá tók
Karnaha-r nýtt húsnæðií notk-
un að Hverfisgötu 103 og flytur
mcginhluta starfsemi sinnar
þangað en hljómtækjadeild
Karnaba'jar mun reka áfram
verzlun að Laugavegi 6fi.
„Það var farið að þrengja
verulega að okkur á Laugavegin-
um og við höfðum orðið að tak-
marka starfsemi okkar. Hér eru
rúmgóð bílastæði og þægilegt að
komast að húsinu á allan hátt.
Þá er mikils um vert að hafa þak
yfir höfuðið í sambandi við
ísetningu útvarpa og segulbanda
í bíla.
Eins og við sögðum, þá aukum
við þjónustu okkar með nýju
húsnæði. Auk „hefðbundins
varnings" okkar, þá höfum við
hér á boðstólum Ijósprentunar-
vélar, peningakassa, örbylgju-
ofna og nú förum við á fullu í
örtölvubyltinguna. Við erum svo
lánsamir, að Sharp framleiðir
örtölvur og þessu viljum við nú
sinna.“
— Hvaða merki eru þið með á
boðstólum nú?
„Sharp er aðalmerki okkar og
við teljum okkur lánsama að
geta boðið upp á slíkar gæðavör-
ur. Við erum með sjónvörp,
hljómtæki, myndbandstæki,
ferðatæki, bíltæki, örbylgjuofna,
ljósprentunarvélar, peninga-
kassa, vasatölvur og örtölvur frá
Sharp. Við siglum þöndum segl-
um inn í örtölvuöld. Þar eru
tækninýjungar daglegt brauð og
jafnvel er nú þegar svo komið, að
fólk skiptir um vasatölvu þegar
rafhlaðan er búin, svo ódýrar
eru þær orðnar. Þá má nefna
Sharp-myndbönd með VHS-
kerfinu sem er hið útbreiddasta í
heimi. Við höfum náð góðum
árangri í sölu þessara tækja og
fyrir skömmu gengum við frá
samningum við Hótel Loftleiðir
og Hótel Esju um uppsetningu
myndbandstækja. Þá má nefna
að við erum með nýja tegund
myndbandstækja, nokkurs kon-
ar minni-gerð; í einni handhægri
tösku höfum við sýningartæki,
upptökuvél og rafhlöður.
Þá erum við með Pioneer, sem
er ákaflega skemmtilegur fram-
leiðandi. Pioneer hefur aldrei
farið út fyrir hljómtækjalínuna
en verið leiðandi þar og er
stærsti framleiðandi í heiminum
á sviði hljómtækja. Það segir
meira en mörg orð fá sagt, að á
síðastliðnu ári kom Pioneer
fram með nýja línu í hljómtækj-
um; ’81-línan sló öll sölumet, en
þrátt fyrir það hafa þeir þegar
sett nýja línu á markað, ’82 lín-
una. Þá erum við einnig með
bíltæki frá Pioneer og er nú svo
komið, að bílar eru orðnir hálf-
gerðar hljómleikahallir.
Frá Luxor höfum við einkum
verið með sjónvarpstæki. Luxor
er sænsk gæðavara, sem hefur
haslað sér völl hér á landi og nú
erum við að hefja sölu örtölva
frá Luxor. I Skandinavíu hefur
Luxor um 70% af markaðnum og
slíkum árangri ná aðeins gæða-
merki.
AS-Audiosonic er ekki fram-
leiðandi, heldur fyrirtæki sem
lætur framleiða fyrir sig vörur
Húsnæði hljómtækjadeildar Karnabæjar að Hverfisgötu 103.
Myndir Mbl. Emilía.
Jt ;
vmmmm.
é>