Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
17
Nýi og gamli timinn.
annað sinn var landið svo símgirt
en þá með fjölrásarkerfi en það
var árið 1943. Allt voru þetta
handvirk símkerfi.
Fyrstu sjálfvirku símstöðvarnar
voru settar upp í Reykjavík og
Hafnarfirði árið 1932 og eru þær
-enn í gangi en orðnar nokkuð
viðhaldsfrekar. Fyrsta sjálfvirka
stöðin utan Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar var sett upp á Akureyri
árið 1950. Síðan hefur sjálfvirkn-
inni fleygt fram og nú eru af
84.837 notendum um siðastliðin
áramót aðeins 3.515 með hand-
virkan síma eða 4% notendanna.
Á síðastliðnu Alþingi voru sam-
þykkt lög um að gera allt landið
sjálfvirkt á næstu 5 árum og er
þegar farið að vinna að þeim mál-
um.
Árið 1962 var gerður nýr samn-
ingur við Mikla norræna ritsíma-
félagið um að leggja nýja sæ-
streng til Islands og var hann tek-
inn í notkun 22. janúar það ár. Sá
strengur var lagður til Vest-
mannaeyja og lagðist þá sæsíma-
stöðin á Seyðisfirði niður. Aftur
var samið við Mikla norræna rit-
símafélagið um byggingu jarð-
stöðvarinnar Skyggnis í samvinnu
við íslendinga og var hún tekin í
notkun seint á árinu 1980.
Talsamband við útlönd var tekið
upp árið 1935 og var það handvirkt
þar til sjálfvirka utanlandsstöðin
var byggð og tók hún til starfa
síðastliðið ár og fara nú 43 línur
um Skyggni og 44 línir um sæsíma
til útlanda. Símnotendur geta því
valið simtöl sjálfvirkt til Evrópu
og Ameríku auk fjarlægari landa.
I tilefni afmælisins verður
jarðstöðin Skyggnir, sem er við
Ulfarsfell, almenningi til sýnis í
dag frá klukkan 13—17. Einnig
verður stöðin til sýnis dagana
3.-4. október á sama tíma.
Einnig verður gefið út frímerki í
tilefni dagsins og verður það af
jarðstöðinni Skyggni.
Vélfræði sem valgrein
í Austurbæjarskóla
í 9. bekk Austurbæjarskólans er að hefjast kennsla í vélfræði sem
valgrein. Námið stunda nemendur úr Austurbæjarskólanum, 1 hópur
úr Seljaskóla og 3 hópar úr Æfingaskóla Kennaraskólans.
Á tímum vaxandi vélanotkunar
fer áhugi og þörf á einhverri þekk-
ingu á þessu sviði vaxandi, enda
fara unglingar snemma að nota
skellinöðrur og landbúnaðarvélar
í sveitum og flestir hafa síðar
a.m.k. bíl undir höndum. Ráðinn
hefur verið kennari, Hilmar Hálf-
dánarson, til vélfræðikennslu í
Austurbæjarskólanum.
— Markmiðið með kennslunni
er að nemendur vinni með ýmiss
konar málma og vélar og verði
færir um að ráða fram úr minni
háttar bilunum í litlum vélum, svo
sem vélhjólum, sagði Alfreð Eyj-
ólfsson, skólastjóri Austurbæj-
arskólans. En ekki síður fer fram
starfs- og námsfræðsla um alls
konar málmiðnað og verður nem-
endum gefin innsýn í þá mögu-
leika, sem þar eru fyrir hendi. Má
þar nefna iðngreinar svo sem
plötusmíði, blikksmíði, renni-
smíði, vélvirkjun, bifvélavirkjun,
vélstjórn og einnig tækniteiknun,
tækninám og vélaverkfræði. Þá
má geta þess að það færist í vöxt
að fólk föndri heima hjá sér með
málma, en til þess þarf undir-
stöðuþekkingu í meðferð efnanna.
Ráðstafanir hafa verið gerðar til
kynningarferða í ýmsar stofnanir
og skóla, sem tengjast greininni,
t.d. skip Eimskipafélagsins,
vélsmiðjur og verkstæði. Haft hef-
ur verið samband við framámenn
ýmissa málmiðnaðargreina og
hafa þeir sýnt því áhuga að heim-
sækja skólann og veita nemendum
upplýsingar um störfin, launakjör
o.fl. Leyfi hefur fengist hjá Iðn-
skólanum að nemendum verði þar
veitt fræðsla um meðferð logsuðu
og rafsuðutækja.
— Nú á þessu skólaári verður að
líta á þessa valgrein sem frum-
raun, sagði Alfreð og verður
reynslan að skera úr hvaða þætti
námsins beri að leggja áherslu á í
framtíðinni.
Útkomu Nýs lands frestað
MORGUNBLAÐINU barst i ga*r
eftirfarandi frá ritstjórn Nýs
lands:
„Nýtt land — vikublað — hefur
komið út sex sinnum. Efnahags-
lega hefur rekstur blaðsins staðið
í járnum. Aðstandendur Nýs lands
geta hins vegar ekki leyft sér,
hvorki gagnvart lesendum sínum
eða viðskiptavinum, að hafa aðrar
skoðanir á blaðaútgáfu en á
rekstri þjóðfélagsins. Blað sem
ekki stendur undir sér og sem ekki
getur staðið í skilum við viðskipta-
vini sína, á sér ekki tilverurétt.
Rekstur Nýs lands hefur í raun
ekki gegnið illa, en hefur hins veg-
ar ekki gengið nógsamlega vel til
þess að tryggja útkomu blaðsins
til frambúðar. Aðstandendur Nýs
lands hafa unnið að því að búa til
blað, þar sem skoðanir ganga um
margt þvert á viðteknar skoðanir í
íslenskum þjóðmálum. — Það er
hins vegar hluti af heimspeki Nýs
lands að byggja á engu öðru en
stuðningi fólks. Þar sem sá stuðn-
ingur hefur enn um sinn ekki verið
nógur, hefur verið ákveðið að
fresta útkomu blaðsins um þrjár
vikur, til 22. október og freista
þess að treysta efnahagslegar
undirstöður blaðsins. Reynist það
unnt, og sé rekstrarleg glæta, þá
mun Nýtt land koma út að þremur
vikum liðnum, sem vikublað.
Að öðrum kosti gefumst við upp,
og þökkum fjölmörgum ánægju-
legt samstaf.“
Mjög góð loðnu-
veiði um helgina
- 24 af 26 skipum á miðunum tilkynntu um afla
MJÖG góð loðnuveiði hefur verið
á Vestfjarðamiðum siðan á
sunnudag, en þá tilkynntu 4 skip
Loðnunefnd um afla. samtals
2.100 lestir. Er Morgunblaðið
hafði samhand við loðnunefnd
um miðjan dag i gær höfðu 24
skip til viðbótar tilkynnt um
afla. samtals 18.890 lestir. Mestu
af loðnunni er landað á Siglu-
firði. en annars hefur loðna bor-
izt til flestra löndunarstöðva á
landinu nú. meðal annars til Nes-
kaupstaðar og Vestmannaeyja.
Skipin 4, sem tilkynntu um afla
á sunnudag, voru Hilmir með 550
lestir, Jón Finnsson 580, Skarðsvík
620 og Hrafn með 650 lestir. Skip-
in, sem höfðu tilkynnt um afla í
gær, voru Hrafn með 600 lestir,
Örn 590, Svanur 680, Bjarni
Ólafsson 950, Skírnir 440, Fífill
440, Eldborg 1.600, Ársæll 440,
Ljósfari 580, Beitir 1.350, Sighvat-
ur Bjarnason 700, Sæbjörg 600,
Pétur Jónsson 820, Gígja 740, Al-
bert 600, Harpa 630, Grindvíking-
ur 1.050, Guðmundur 950, Helga II
550, Víkurberg 550, Sigurður 1.400,
Börkur 1.150, Hákon 820 og Kefl- i
víkingur 500 lestir.
Heildaraflinn á vertíðinni er nú
farinn að nálgast 80 þúsund tonn,
en rúmlega 30 skip hafa tilkynnt
um afla frá því að vertíð hófst 10.
ágúst. Pétur Jónsson er aflahæst-
ur og er tæplega hálfnaður með
kvóta sinn.
Myndsegulbanda-
nefnd skipuð í gær
Menntamálaráðherra skipaði i
gær nefnd til að kanna notkun
myndsegulbanda hér á landi. Verk-
efni nefndarinnar er fyrst og fremst
að kanna. hvernig háttað er notkun
myndsegulhanda og myndsegul-
bandstækja á Íslandi og hvernig
heppilegast muni að haga þeirri
notkun til framhúaðar. þannig að
virtir verði hagsmunir rétthafa og
notenda. svo og annarra er hlut eiga
að máli. Formaður nefndarinnar
var skipaður án tilnefningar pr.
Gaukur Jörundsson. Knútur Ilall-
sson. skrifstofustjóri menntamala-
ráðuneytisins mun starfa mcð
nefndinni.
Aðrið nefndarmenn voru skipaðir
samkvæmt tilnefningum og eru þeir
eftirtaldir: Fylkir Þórisson deildar-
tæknifræðingur sjónvarps, tilnefnd-
ur af Ríkisútvarpinu. Birgir Sigurðs-
son, rithöfundur, tilnefndur af Rit-
höfundasambandi íslands, Grétar
Hjartarson, forstjóri Laugarássbíós,
tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsa-
eigenda, Gísli Alfreðsson, leikari, til-
nefndur af Félagi íslenzkra leikara,
Hjálmtýr Heiðdal, auglýsingateikn-
ari, tilnefndur af Félagi kvikmynda-
gerðarmanna, Jón Magnússson, hdl.,
tilnefndur af Neytendasamtökunum
og Sigurður Reynir Pétursson,
hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af
STEFI.
r
Vió minnum á
vetrar
skodunina
eigendur SKODA og ALFA ROMEO
Auk mælingar á 28 gangstigum vélarinnar með fullkomnum mælingartækjum er
vélarþvottur, vélarstilling, Ijósastilling og athugun á 26 öðrum atriöum bifreiðar-
innar innifalið í skoðuninni, sem er seld á föstu gjaldi, kr 445,00 með söluskatti
og gildir fram til 1. desember n.k.
V
Með fullkomnum rafeindamæhtækjum sem
tengd eru við vélina og rafkerfi hennar má
mæla öll gangstig af mikilli nákvæmni.
Markús Olfsson. móttökustjóri þ/ónustu-
deildar. tekur við bókunum og veitir allar
frekari upplýsingar um vetrarskoðunina
Auk þess sem „Vetrarskoðunin" ætti að
fyrirbyggja alls kyns hugsanleg óþægindi
sem óneitanlega fylgja vetrarakstri, er
ástæða til að vekja athygli bifreiða-
eigenda á þeim bensínsparnaði sem rétt
stillt vél hefur í för með sér. Vanstillt
vél getur hæglega kostað eigandann
þúsundir króna í óþarfan bensínkostnað
á tiltölulega skömmum tíma.
UÖFUR hf
Nybylavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
ib