Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Nýjar kosningar
boðaðar í Belgíu
Brussol. 28. soptcmbor. AP.
KONUNGUR Bekíu ákvað í daR
að þinKkosninKar yrðu haldnar í
landinu í nóvember eftir að Willy
Claes. varaforsætisráðherra.
sa^ðist ekki geta fundið leið út úr
stjórnarkreppu sem staðið hefur í
viku. Claes sasði konunjji að frá-
farandi stjórn Mark Eyskens,
sem sajíði af sér forsadisráðherra-
emba'tti s.l. mánudag, geti farið
með stjórn fram að kosninjcum ok
þanjcað til ný stjórn verður mynd-
uð.
Samsteypustjórn flæmskra
kristilegra demókrata og vall-
Samband
við geim-
inn rofið
Washinjrton. 28. septrmher. AP.
VERUR úti í geimnum hafa írest
fram á miðvikudagskvöld til að
hafa samhand við jarðhúa. Þá mun
handaríska stjórnin loka fyrir mót-
tökuta'ki sem hefur hlerað eftir
hljóðum utan úr geimi undanfarin
ár. til að komast að raun um hvort
viti bornar verur sem byggja
kannski aðra hnetti en jörðina eru
að reyna að koma frá sér skilaboð-
um.
Þessari rannsóknarstarfsemi
verður hætt vegna niðurskurðar
Ronald Regans, forseta, á fjárlög-
um. Tölva, sem á ekki langt í land í
að vera fullkláruð, átti að greina
hljóðmerkin í sundur og svara
spurningunni sem margir hafa velt
fyrir sér. En nú verður tölvunni
pakkað inní plastik og hún lögð á
hillu í Stanford-háskóla í Kali-
forníu.
„Þetta þýðir að við verðum að
hætta að leita að flöskuskeyti frá
öðrum hnöttum í himinhvolfinu,”
sagði talsmaður vísindamannanna.
„Það er ósköp dapurlegt því ef ekki
er leitað finnst jú aldrei neitt."
ónskra sósíalista klofnaði vegna
ágreinings um fjárhagsstuðning
við stáliðnaðinn. Hann tapar ein-
um milljarði belgískra franka á
mánuði og er haldið gangandi með
ríkisstyrkjum. Sósíalistaflokkur-
inn vildi að bankar yrðu skyldaðir
til að lána iðnaðnum meiri pen-
inga. Stáliðnaðurinn er i höndum
Vallóna í suðurhluta Belgíu.
Fréttaskýrendur telja að kosn-
ingarnar verði haldnar 8. nóvem-
ber. Claes, sem er fjármálaráð-
herra í ríkisstjórninni, hafði vonað
að komist yrði hjá kosningum
vegna efnahagsvandans í Belgíu.
Hann sagði í sjónvarpsviðtali á
sunnudag; „Ég sá enga leið til að
mynda trausta stjórn sem gæti
notið stuðnings þingsins og stjórn-
að landinu almennilega." Hann fór
hörðum orðum um efnahagsá-
standið í landinu.
Erlendar skuldir Belgíu hafa
aukist um 5% á síðustu tíu árum.
Þar er 10% atvinnuleysi. Stjórn
Eyskens lagði fram fjárlagafrum-
varp í sumar sem átti að stuðla að
lausn efnahagsvandans, en hefði
þó haft í för með sér mesta halla á
fjárlögum í sögu landsins. Ekkert
verður nú gert í efnahagsmálum
þjóðarinnar fyrr en ný stjórn hef-
ur tekið við.
íranskir byltingarverðir á vígvellinum Karkha-Kur norðvestur af borginni Ahwaz.
Ungur maður tekinn fastur í Kristjaníu á föstudag fyrir meintan reiðhjólaþjófnað. Margir íbúa
fríríkisins horfa á, en þetta atvik varð til þess að blóðhiti þeirra rauk upp úr öllu valdi og þeir létu til
skarar skriða gegn lögreglunni.
Óeirðir á 10 ára afmæli Kristjaniu:
Brirút. 28. sopt. AP.
ÍRANIR sögðu í dag að þeir hefðu
rofið umsátrið um olíuhreinsun-
arhorgina Ahadan, sem hófst fyrir
11 mánuðum, og unnið mesta hern-
aðarsigur er um getur siðan í síð-
ari heimsstyrjöldinni. írakar vis-
uðu staðhæfingu írana á bug.
Teheran-stjórnin sagði einnig að
hældar hcfðu vcrið niður miklar
óeirðir vinstrisinna, sem vildu
trufla forsetakosningarnar á föstu-
daginn. Blaðið „Jomhouri Islami"
sagði að 10 til 12 hefðu fallið, þar
af fimm byltingarverðir.
Stjórnin skýrði jafnframt frá 59
íranir hrósa sjgri
í stríðinu við Iraka
aftökum og sagði að 14 hinna líf-
látnu hefðu verið eiturlyfjasmyglar-
ar, en hinir vinstrisinnar.
Samkvæmt stríðstilkynningum
írana hafa 650 íraskir hermenn fall-
ið og um 5.000 verið teknir til fanga
í sókn, sem hófst fyrir þremur dög-
um og hefur borið þann árangur að
íraskt herlið hefur verið hrakið yfir
fljótið Karun. „Jomhouri Islami"
hermdi að 4.000 íraskir stríðsfangar
yrðu fluttir til Teheran með lest síð-
degis.
Ráðizt var til atlögu gegn írökum
á landi eftir loftárás, sem stóð allan
laugardag og bar þann árangur að
allar stöðvar íraka meðfram vestur-
bakka Karun voru eyðilagðar, segir
í tilkynningum írana.
íranir náðu öllum þremur helztu
brúunum yfir Karun á sitt vald og
íraska herliðið var hrakið yfir á
austurbakkann. íranir segjast einn-
ig hafa náð fullum yfirráðum yfir
tveimur helztu þjóðvegunum til
Abadan.
19 lögregluþjónar
særðust í átökum
Kaupmannahöfn. 28. seplemher. AP.
Allt er nú með kyrrum kjör-
um í „fríríkinu" Kristjaníu eítir
óeirðir i hverfinu aðfaranótt
laugardags er ibúar héldu upp á
tiu ára afmæli fririkisins. í
óeirðunum slösuðust 19 lög-
regluþjónar og urmull óbreyttra
og fjöldi manna var tekinn úr
umferð.
Að sögn aðstoðarmanns yfir-
lögregluþjónsins i Kaupmanna-
höfn var unnið litið tjón á
mannvirkjum i óeirðunum. sem
stóðu yfir i 14 klukkustundir.
Verri götuóeirðir hafa ekki orð-
ið i Kaupmannahöfn í tæp tvö
ár.
í óeirðunum vörpuðu íbúar
Kristjaníu grjóti, flöskum og
benzínsprengjum að lögreglu,
sem beitti sérstökum kylfum.
Formælandi lögreglunnar
sagði upptök götubardaganna
óljós.en þau hefðu þó hafist rétt
eftir að lögreglan tók fastan
mann er uppvís varð að reiðhjóla-
þjófnaði.
Blaðaljósmyndari sem var vitni
að óeirðunum sagði í viðtali við
AP-fréttastofuna að íbúar Krist-
janíu hefðu tryllst, og gengið ber-
serksgang. Líkast hefði verið því
að runnið á þá æði.
Lögreglan fer daglega í eftir-
litsferðir um Kristjanhi, og sagði
formælandi lögreglunnar, að ekki
hefðu fleiri lögreglumenn verið á
ferli í hverfinu þennan dag en
venjulega. Hins vegar hefði verið
sendur þangað liðsauki þegar
óeirðirnar brutust úr.
Ibúar Kristjaníu reistu götu-
virki og kveiktu í þeim, veltu um
bílum og hindruðu þannig að
slökkvilið kæmist á vettvang.
Síðast urðu alvarlegir götu-
bardagar í Kaupmannahöfn í maí
í fyrra, er íbúar á Norrebro mót-
mæltu framkvæmdum á svæði
sem var leikvöllur barnanna í
hverfinu.
Götuvirki i Kristjaníu brennur.
Anker hótar
kosningum
Frá Ih Björnhak í Kaupmannahöfn.
ANKEIt JÖRGENSEN forsætis-
ráðherra hótar nýjum þingkosn-
ingum í Danmörku. þar sem
hann getur ekki fengið þrjá sam-
starfsflokka sósíaldemókrata til
að samþykkja skattaálögur á líf-
eyrissjóði. Meiri spenna ríkir í
Kristjánsborgarhöll cn virzt gæti
í fljótu bragði, segir forsætis-
ráðherra.
Klappað
þegar hús-
ið sprakk
Rochester. Fnglandi. 28. sept. AP.
TÓLF ára drengur sprengdi I
12 hæða íbúðarhús í loft upp í
Rochcstcr í Kent á sunnudag
við mikil fagnaðarlæti íhúa
bæjarins. Hann vann réttinn
til að sprengja íbúðarhúsið í
hlutaveltu og sagði að afrek-
inu loknu: „Þetta var ofsalega
gaman og spcnnandi. En háv-
aðinn í sprengjunni kom mér
á óvart."
Bæjarstjórnin í Rochester
ákvað að 15 ára gamalt húsið
skyldi sprengt í loft upp, í stað
þess að það yrði lagfært. Við-
gerðarkostnaður hefði orðið
um 500.000 pund. Sprengisér-
fræðingur bæjarins sagði:
„Strákurinn stóð sig vel og var
ekkert taugaóstyrkur."
Varla væri þó hægt að finna
óheppilegri ástæðu til að efna til
nýrra kosninga. Minnihlutastjórn
sósíaldemókrata hafa látið í ljós
þá ósk, að skattleggja vaxtaaukn-
ingu eftirlauna um 40%.
Atvinnuleysið er mesti vandi
stjórnarinnar. Því reynir stjórnin
að beina fjármagni til atvinnu-
lífsins með lágum vöxtum. Vextir í
Danmörku eru um 20%. Þetta
veldur fyrirtækjum miklum út-
gjöldum, en lífeyrissjóðir hafa
hagnazt um marga milljarða
danskra króna með kaupum á rík-
isskuldabréfum og veðskuldabréf-
um.
Lífeyrissjóðir eru farnir að fjár-
festa hluta fjár síns í hlutabréf-
um, en ríkisstjórnin vill beina
mörgum milljörðum danskra
króna frá lífeyrissjóðunum til at-
vinnulífsins, þótt þar fáist tals-
vert lægri vextir en með kaupum á
skuldabréfum.
Verkalýðshreyfingin er ánægð
með kosningahótun Ankers Jörg-
ensens, þótt skoðanakannanir gefi
til kynna að sósíaldemókratar
muni tapa fylgi. Fylgi íhalds-
manna hefur aukizt og hann reyn-
ir ásamt Vinstri flokknum, sem er
frjálslyndur, að bjóða upp á mögu-
leika á stjórnarmyndun með því
að biðla til smáflokkanna þriggja,
Kristilega þjóðarflokksins, mið-
demókrata og Róttæka vinstri
flokksins, sem stjórnin styðst við
á þingi.