Morgunblaðið - 29.09.1981, Qupperneq 20
20
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö.
Neyð Pólverja
Athygli lesenda Morgunblaðsins er vakin á frásögn Arnórs
Hannibalssonar lektors hér í blaðinu á laugardag og
sunnudag, en þar lýsir hann stöðu mála í Póllandi eins og hann
kynntist henni núna í ágúst. Af máli Arnórs má ráða, að pólska
efnahagskerfið sé að þrotum komið, skiptiverslun hafi tekið við
af almennum verslunarháttum, hver reyni að bjarga sér eftir
fremsta megni og menn kvíði svo vetrinum, að þeir forðist að
ræða um hann. Askorun Arnórs Hannibalssonar um að senda
Pólverjum nauðsynjar, matvæli, hreinlætisvörur og barnamat,
minnir á áköll stríðshrjáðra þjóða í kjölfar síðari heimsstyrj-
aldarinnar. Fyrr á árinu sáust um það fréttir, að Rauði kross
íslands hefði veitt Pólverjum einhverja aðstoð — er það starf
enn unnið í kyrrþey? Er þörf á því að skipuleggja hjálparstarf
við Pólverja með öðrum hætti en hingað til?
En samhliða þessari efnahagskreppu búa Pólverjar við
stjórnmálaneyð. Enginn veit í raun, hvað gerast mun í stjórn
lands og þjóðar. Nú um helgina hófst síðari hluti landsþings
Samstöðu og greinilegt er af fréttum, að forvígismenn samtak-
anna eru síður en svo þeirrar skoðunar, að baráttunni sé lokið.
Lech Walesa leiðtogi Samstöðu hefur jafnan verið talsmaður
hófsemdar, þótt hann standi fast á sínum rétti og félaga sinna.
Walesa mælir nú með því, að Samstaða fallist á hugmyndir,
sem fram eru komnar hjá stjórnvöldum um vísi að atvinnulýð-
ræði — en hefur hann meirihluta á landsþinginu á bak við sig?
Kremlverjar hafa lagt pólska kommúnistaflokknum og ríkis-
stjórninni strangar lífsreglur undanfarið og skipað svo fyrir, að
stjórnvöld verði að hafa hemil á andsósíalískum öflum. Hvenær
er Kremlverjum nóg boðið? Pólverjar leiða ekki huga að því í
neyð sinni fremur en vetrinum. Sumir spá því, að Kremlverjar
bíði eftir uppgjöf pólskra stjórnvalda og lifi í þeirri von, að þá
muni kvislingar senda hjálparbeiðni til Rauða hersins. Ekkert
skal fullyrt um þetta, hitt er ljóst, að neyð Pólverja er mikil og
við megum ekki láta undir höfuð leggjast að létta undir með
þeim. sé það á okkar færi.
Aðvörun Mitterrands
Það er svo sannarlega einkennilegt, að þeir hér á landi, sem
á sínum tíma lögðu sig mest fram um það að fagna sigri
Francois Mitterrands í frönsku forsetakosningunum, skuli
helst vilja láta líta svo út eins og forsetinn og stjórn hans hafi
enga utanríkisstefnu. Þjóðviljinn hefur aldrei gert lesendum
sínum grein fyrir utanríkisstefnu Mitterrands, enda samrýmist
það ekki dekri blaðsins við sjónarmið Kremlverja og enduróm-
inn úr Fréttum frá Sovétríkjunum á síðum Þjóðviljans.
A fyrsta blaðamannafundi sínum sem forseti var Mitterrand
afdráttarlaus í yfirlýsingum sínum um varnar- og öryggismál.
Hann sagði, að öryggi Frakka byggðist á getu þeirra til að verja
sig, hann sagðist alls ekki hafa í hyggju að breyta um stefnu í
varnarmálum og það væri „eðlilegt", að hann væri á verði gegn
því, að 1985 gætu Sovétmenn og bandamenn þeirra í krafti
yfirburða ráðið öllum heiminum. „Við Vestur-Evrópubúar get-
um ekki látið okkur lynda, að öllum varnarmætti vestrænna
ríkja megi gjöreyða með 220 SS-20 kjarnorkueldflaugum Sov-
étmanna," sagði Mitterrand. Var einhver að tala um, að Frakk-
landsforseti væri líklega í Alþýðubandalaginu?
Merkileg tilraun
Nú um helgina var flogið með fyrsta farminn af ferskum
karfa á vegum Coldwater Seafood Corp. héðan til Banda-
ríkjanna. Á vegum fyrirtækisins hefur lengi verið unnið að því
að kanna markað fyrir ferskan fisk héðan og í þá tilraun, sem
hófst um helgina, er ráðist að vel athuguðu máli. Það er mikið í
húfi, að þessi tilraun takist vel. Það hefur margsinnis komið
fram, að erfitt hefur verið að selja karfa á því verði, sem
viðunandi er, svo að í raun er það fundið fé, ef tekst að selja
hann ferskan á hinum mikla Bandaríkjamarkaði. Coldwater
Seafood Corp., sölufyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, hefur lengsta og mesta reynslu í sölu á íslenskum fiski
vestan hafs, einmitt af þeirri ástæðu binda menn meiri vonir en
ella við það, að þessi merkilega tilraun takist.
Prédikun herra Péturs
Sigurgeirssonar i Dómkirkjunni
við innsetningu
í biskupsembætti 27. sept.
Þjónustan við
Við höfum hlýtt á boðskap
Fjallræðunnar, en það er mesta
ræða sem um getur og Jesús
flutti mönnunum á Israels-fjalli.
Þá er það fyrst alls, að vegsama
„Guð vors lands“ fyrir Biblíuna,
sem geymir þann boðskap, og lofa
Drottin allsherjar fyrir það, að
hann gerði okkur íslendinga að
þjóð orðsins og bókarinnar.
Merkur heimspekingur hefur
sagt um bækur að þær eigi sam-
merkt því, að vera lesnar vissan
árafjölda og lifa sitt afmarkaða
tímaskeið, — rétt eins og menn
og aðrar lifandi verur.
I fræðiritinu Islensk endur-
reisn er vitnað í þessi ummæli, að
líti menn yfir bókaskrár samtíðar
sinnar, megi gera ráð fyrir því,
„að eftir ein tíu ár verði engin
þessarra bóka lengur lesin".
Þetta kann að þykja hæpin
fullyrðing, að of djúpt sé í árinni
tekið. Víst er um það, að sumar
bækur eignast jafnvel ekki svo
langan lífdag, aðrar bækur lifa
lengur.
Ein bók verkur þó ekki mæld
eftir þeirri mælistiku. Biblían er
á dagskrá um þessar mundir.
Saga hennar upprifjuð. Rit Nýja
testamentisins voru ákvörðuð og
saman sett í eina bók um árið
400. Biblían var þannig að skrá
fyrir hálfu öðru árþúsundi. Ég
var að lesa úr 10. útgáfunni,
þeirri nýjustu hér á landi, og nú
er þremur árum fátt í fjórar aldir
frá því að Guðbrandsbiblía var
prentuð á Hólum í Hjaltadal, og
til marks um, hve framarlega við
stöndum í hópi þjóða, sem fyrst
fengu Ritninguna á móðurmáli
sínu, er þess að geta, að Nýja
testamennti Odds er hið 23. í röð-
inni af þeim 1710 tungumálum
sem Nýja testamentið er nú út-
lagt á. Fróðir menn vita, hvaða
þýðingu það hafði fyrir trú og
tungu þjóðarinnar, að við fengum
íslenzka Biblíu. „Það er allsendis
óvíst, að við töluðum íslensku í
dag, ef Biblían hefði ekki verið
þýdd á íslensku jafnsnemma og
jafnvel og raun ber vitni."
(Steingr. J. Þorst.)
Biblían á rætur langt aftur í
öldum sögunnar, fyrir og eftir
Krist. Á meðan bækur, góðar og
merkar, — eignast sín tíu ár —
eða svo, heldur Ritningin mark-
visst áfram að vera lífsbókin
mikla.
-O-
Hvað veldur slíkum yfirburð-
um í heimi bókmennta? Hver er
skýringin? Víst er um það, að
lengi býr að fyrstu gerð. Biblían
er leit og svar við dýpstu þrá
mannsandans. Við leitum að því,
sem er að baki hlutanna og í þeim
smáum og stórum. „Eins og hind-
in, sem þráir vatnslindir, þráir
sál mín þig ó Guð.“ (Davíðs sálm-
ar 42,1) Og Biblían kom með
svarið, fullkomið eilíft svar.
Svarið er Jesús Kristur. Hann
gerði það heyrinkunnugt hvaðan
honum kom fagnaðarerindið.
„Orðið, sem þér heyrið, er ekki
mitt, heldur þess er sendi mig.“
(Jóh. 14, 24) „Kenningin er ekki
mín, heldur hans, sem sendi mig,“
(Jóh. 7, 16) — sagði hann. Andi
Guðs er í orðinu, hugsanir hans,
fyrirætlun og kærleikur. Og læri-
sveinninn, sem tekur inn í guð-
spjall sitt, þessa skilgreiningu
Jesú á orðum sínum, byrjar guð-
spjallið á þessa leið: „í upphafi
var orðið, og orðið var hjá Guði
og orðið var Guð.“ (Jóh. 1, 1)
Ritningin segir sjálf, hver hún er,
og sannar Guð sinn.
-O-
Guðspjall þessa dags hefst á orð-
unum: „Énginn getur þjónað
tveimur herrum. Annað hvort
hatar hann annan og elskar hinn,
eða þýðist annan og afrækir hinn.
Þér getið ekki þjónað Guði og
Mammon." (Matth. 6, 24).
Víða leggur Biblían okkur ríkt
á hjarta að þjóna Guði, en hvergi
mun það vera gert í jafn ríkum
mæli og hér. Það er sagt, að við
eigum að þjóna Guði, og þó er enn
sterkar kveðið á um þetta, en al-
mennt felst í orðinu að þjóna. Við
erum eign Guðs. Hann hefur
Herra Pétur Sigurg
inn í embætti bisku
- aldrei jafnmargir íslenzkir prestar samankomnir á þessari öld
IIERRA Pétur Sigurgeirsson var
settur inn í embætti biskups ís-
lands við hátíðlega athiifn í
Dómkirkjunni siðastliðinn
sunnudag og mun hann síðan
taka formlega við emhadtinu 1.
októher næstkomandi. Ilerra Sig-
urbjörn Einarsson. sem nú lætur
af emba'tti biskups íslands eftir
22 ára starf, leiddi fyrri hluta
guðsþjónustunnar, en verðandi
eftirmaður hans, herra Pétur
Sigurgeirsson, prédikaði og lauk
guðsþjónustunni. Viðstaddir at-
höfnina voru 140 prestar auk
hiskupa frá hinum Norðurlönd-
unum og hafa aldrei á þessari öld
verið jafnmargir íslenzkir prest-
ar saman komnir.
Athöfnin hófst á því að prestar
landsins söfnuðust saman í Al-
þingishúsinu klukkan 10.3Ö og
gengu síðan í skrúðgöngu yfir í
Dómkirkjuna. Fóru þeir yngstu
fremstir og var þá farið eftir
vígslutíma. Biskuparnir voru aft-
ast í hópnum. Kirkjan var Þétt
setin og komust færri að en vildu.
Dómkórinn söng við athöfnina og
meðal annars var flutt þar verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Herra
Sigurbjörn Einarsson stjórnaði
athöfninni og Norðurlanda bisk-
uparnir ávörpuðu gesti. Séra Ólaf-
ur Skúlason, dómprófastur, las
guðspjall og séra Stefán Snævarr,
prófastur, las pistilinn. Þá mess-
aði herra Pétur Sigurgeirsson.
Síðan vár altarisganga undir
stjórn hiskupa og Dómkirkju-
presta og vakti það athygli er-
lendra gesta hve margir af ráð-
amönnum þjóðarinnar gengu til
altaris og hve fljótt og vel hún
gekk fyrir sig, en menn gengu til
altaris í einfaldri röð. Þá lýsti
herra Pétur Sigurgeirsson bless-
un. Síðan var gengið í skrúðgöngu
út úr kirkjunni og yflr í gamla
Sigtún til myndatöku.
Klukkan 16 voru svo haldnir
tónleikar í Háteigskirkju undir
umsjón Hauks Guðlaugssonar,
söngmálafulltrúa þjóðkirkjunnar.
Þar söng kór Langholtskirkju
undir stjórn Jóns Stefánssonar
svo og Óköf K. Harðardóttir,
óperusöngkona. Kirkjan var fag-
urlega skreytt og vöktu tónleik-
arnir mikla hrifningu erlendra
gesta.
Um kvöldið hélt kirkjumála-
ráðherra, Friðjón Þórðarson síðan
hóf á Hótel Sögu og þar ávörpuðu
gesti meðal annars, Carl Mau,
framkvæmdastjóri Lutherska
heimssambandsins, Mikko Juva,
erkibiskup frá Finnlandi, Gunn-
laugur Finnsson frá Hvilft, Þor-
bergur Kristjánsson, formaður
Prestafélags Islands og Sigurður
Guðmundsson, prófastur á Grenj-
aðarstað, sem flutti minni Sól-
veigar Ásgeirsdóttur, biskupsfrú-
ar. Þá ávarpaði herra Pétur Sigur-
geirsson gesti. Hófinu stjórnaði
Friðjón Þórðarson, kirkjumála-
ráðherra.
Aldrei hafa jafn margir íslenzkir prestar verið saman komnir á þess-
ari öld og við athöfnina á sunnudaginn. Hér ganga biskupar og
prestar yfir Austurvöll til myndatöku i Sjálfstæðishúsinu gamla.