Morgunblaðið - 29.09.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
21
• Jón Pétur Jónsson skorar gegn Kunzevo. Hann skoraði jöfnunarmark Vals í leiknum.
Kunzevo fór heim án
þess að bíða ósigur
Valsmenn náðu þó jafntefli á sunnudaginn
SOVÉSKA handknattleiksliðið
Kunzevo lék síðustu leiki sína hér
á landi um heigina. Á laugardag-
inn ma tti liðið FII suður í Hafn-
arfirði og hafði sigur í tvísýnum
leik. Rússarnir höfðu þriggja
marka forystu í hálfleik. 14 — 11.
en sigurinn hékk síðan á hlá-
þra'ði áður en upp var staðið og
lokatölurnar 29—28 hlöstu við.
FH-ingar léku á köflum prýði-
lega gegn rússneska birninum.
en atkva'ðamestur í liði FII vár
Kristján Arason, sem var stór-
takur í markaskoruninni. Skor-
aði Kristján 13 mörk. Óttar
Matthiesen kom na*stur með 4
stykki.
Á sunnudagskvöldið lék Kunz-
evo síðan sjötta leik sinn á jafn
mörgum dögum og má mikið vera
ef þeir hafa ekki verið orðnir
þreyttir þeir sovésku. Nema hvað
Valsmenn urðu fyrstir til að hirða
stig af Kunzevo í 22—22 jafntefli.
Staðan í hálfleik var 11—10 fyrir
Rússana, en Valsmenn jöfnuðu á
elleftu stundu og var þar Jón Pét-
ur Jónsson á ferðinni. Jón Pétur
skoraði flest mörk Valsmanna,
eða 9 talsins. Þorbjörn Jensson
stóð sig einnig með prýði, raðaði 7
mörkum og Friðrik Jóhannesson,
fyrrum Ármenningur, skoraði 5
mörk. Aðrir skoruðu ýmist minna
eða yfirleitt ekki neitt. — gg-
• Janus Guðlaugsson og félagar
hafa staðið sig vel.
Góð frammi-
staða FC Köln
Janus Guðlaugsson og félagar
hans hjá þýska 2. deildarfélaginu
Fortuna Köln sóttu Wattenscheid
09 heim I dcildarkcppninni um
hclgina og skildu liðin jöfn. 2—2.
Er Fortuna Köln í 1.—3. sœti
þýsku dcildarinnar eftir úrslitin
og hefur liðið staðið sig betur til
þessa hcldur en Janus sjálfur
spáði í upphafi kcppnistímahils-
ins.
Knatlspynia
Sigurður stór-
bætti sig í 800
SIGURÐUR Haraldsson FII hljóp
niður fyrir tva*r mínútur í 800
metra hlaupi í fyrsta skipti á inn-
anfclagsmóti ÍR í Laugardalnum
á laugardag og aðrir piltar stór-
bættu sig. Sigurður var ekki að
smeygja sér svona rétt niður
fyrir. heldur tók stórt stökk og
hljóp á 1:58,4 mínútum. Hafa
fimm Hafnfirðingar þá hlaupið
800 metra á innan við tveimur
mínútum í sumar. og er það ef-
laust met út af fyrir sig. Það er
cinnig athyglisvert, að hér er um
bra'ður að ra*ða, annars vegar
bra'ðrapar og hræðratríó.
í hlaupinu varð Hafsteinn
Óskarsson annar á 2:00,8 mínút-
um, hans bezta í ár, og í þriðja
sæti varð ÍR-ingurinn Gunnar
Birgisson, sem tekið hefur stór-
stígum framförum í ár, hljóp á
2:01,1 mínútu. Fjórði var svo ann-
ar ungur og stórefnilegur hlaup-
ari, Viggó Þórisson úr FH, og trú-
lega hefur hann stórbætt ís-
landsmet í sínum aldursflokki, en
skeiðklukkurnar fóru eitthvað úr
sambandi. Það var mat viðstaddra
að hann hefði hlaupið á 2:05 mín-
útum.
Shankley fékk slag
BILL Shankley, hinn gamal-
kunni fyrrum framkva-mdastjóri
enska knattspyrnustórveldisins
Liverpool. var um helgina fluttur
á sjúkrahús I Liverpool, þar sem
hann hafði fcngið va'gt hjarta-
slag. Fregnir herma þó. að hann
hafði ekki verið í lífsha'ttu og
hann sé á góðum hatavegi.
Shankley. sem er nú fifi ára gam-
all. ha'tti hjá Liverpool árið 1974,
en undir hans stjórn varð Liver-
pool þrívegis enskur deildar-
meistari, sigraði tvívegis í FA-
hikarkeppninni og einu sinni í
UEFA-keppninni.
I íprótlir I
Góður tími
hjá Maree
SIDNKV Maror naói stórK<>ðum tima i milu-
hlaupi nnkkru sem fram fór í fimmta
brciðstnrti í Ncw Vork um hclvtina. Illjóp
Marcc miluna á 3:17.52 minútum. Skaut
Marce aftur fyrir sík fræKum knppum á
lx»rð við Mikc Boit frá Kcnya t»K Thomas
WcssinKhaKc frá Vcstur-hýskalandi. Boit
varð annar á 3:19.59. cn WcssinKhaKC var
þriðji á 3:50.58 minútum. Fjórði varð Stcvc
Cram írá Brctlandi á 3:50.78. cn fimmti varð
Ray Flynn frá írlandi á 3:51.19 minútum.
Kristinn ekki með?
GENGI ÍR á Reykjavíkurmótinu
hefur komið mönnum i dálítið
opna skjöldu. en liðið hefur tapað
til þessa öllum leikjum sínum á
mótinu. Leiki þessa hefur liðið
leikið án Kristins Jörundssonar
sem verið hefur driffjöðrin í lið-
inu siðustu árin. Kristinn hefur
lítið getað a‘ft í haust vegna
meiðsla. en auk þess mun óvíst
hvort hann ætli sér að vera með í
vetur. Jón bróðir hans, 26 ára, er
nú „gamli maðurinn" i liðinu sem
er kannski yngsta lið úrvalsdeild-
arinnar. Bandarikjamaður liðs-
ins er óskrifað blað enn sem kom-
ið er. þó munu ÍR-ingar vera
ána'gðir með hann.
• Kristinn Jörundsson.
Johnson fingurbrotnaði
EKKI verður sagt. að lánið hafi
leikið við Bandarikjamanninn
Stu Johnson. sem leikur nú með
KR í körfuknattleiknum. f annað
skiptið meðan hann hefur dvalið
hérlendis, varð hann fyrir alvar-
legum meiðslum, en hann brotn-
aði illa á fingri i leik Vals og KR
á Reykjavíkurmótinu. Er talið að
hann verði frá í allt að tvo mán-
uði. Er það mikið áfall ba-ði fyrir
Johnson og KR. þvi kappinn ku
hafa leikið mjög vel að undan-
förnu.
Körfuknattieikur
Framarar með aðra
höndina á bikarnum
FJÓRIR leikir fóru fram í
Reykjavíkurmótinu i körfu-
knattleik um helgina og þegar
ein umferð er eftir. standa Fram-
arar uppi með pálmann í höndun-
um. Þeir þurfa aðeins að sigra ÍS
í síðasta leiknum í kvöld til þess
að sigra. Ilefst leikurinn klukk-
an 20.30. en á undan, eða klukk-
an 19.00 mætast ÍR og KR.
í leikjum helgarinnar sigruðu
Framarar Val 79—75 og ÍR
87—65. ÍS sigraði einnig ÍR
87 — 78 og Valur sigraði KR
81-78.
Staðan i mótinu er nú þe: ssi:
Fram 3 3 0 249- 220 6
ÍS 3 2 1 228- 241 4
Valur 4 2 2 291- 287 4
KR 3 1 2 253- 235 2
ÍR 3 0 3 203- 241 0
Leikurinn æsist
í Noregi
ALLT er á suðupunkti í norsku
deildarkeppninni i knattspyrnu
er þrjár umferðir eru eftir. Ros-
enborg og Vaalerengen eru efst
og jöfn með 24 stig hvort félag.
Moss heíur 23 stig og Víkingur
frá Stavangri 22 stig. Það getur
því allt gerst. Meira að segja
Frederikstad og Bryne með sín
20 stig hvort, eiga fræðilegan
möguleika á því að hremma titil-
inn þó mjiig sé það ólíklegt. Úr-
slit leikja i deildarkeppninni um
helgina urðu sem hér segir:
Brann — Lilleström 3—0
Lyn-Bryne 1 —2
Moss — Vaalerengen 2—2
Rosenborg — Haugar 0—2
Start — Hamkam 1 — 1
Viking — Frederikstad 0—2
Lyn er neðst með aðeins 11 stig,
Brann hefur 13 stig og Haugar 15
stig. Haugbúarnir hafa aðeins
unnið tvo af 19 leikjum sínum á
keppnistímabilinu, hins vegar gert
11 jafntefli.
5 með tólf rétta
í 5. Irikviku Getrauna komu
fram 5 raðir með 12 rétta og var
vinningshlutinn á hverja röð kr.
20.660. en með 11 rétta voru 156
raðir og vinningshlutinn 283.00
kr.
Þessir „tólfarar" skiptu með sér
hæstu vinningsupphæð, sem kom-
ið hefur til skiptanna hjá getraun-
um, en hún var nú i fyrsta sinn
yfir 100.000. kr. eða 10,3 millj.
g.kr. Þeir komu víðsvegar að af
landinu, frá Akureyri, Fáskrúðs-
firði, Vestmannaeyjum, auk
tveggja af höfuðborgarsvæðinu.