Morgunblaðið - 29.09.1981, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
„íslensk knattspyrna þarf ekki að hafa
neina minnimáttarkennd gagnvart erlendri“
Við honkuðum upp, eitt kvöldið i síðustu viku, hjá Fritz Kissing,
hinum ueðþekka þýska þjálfara Breiðabliks i knattspyrnu, og
fjölskyldu hans en þau búa i rúmxóðri ibúð i EnKÍhjallanum i
KópavoKÍ. Á Kólfinu var allt fullt af ferðatöskum ok pinklum enda var
fjölskyldan að snúa aftur heim til Þýskalands eftir sex mánaða dvöl
hér á íslandi. Fritz bauð okkur hrosandi inn, benti á allar töskurnar
ob sanði: „Ék veit ekki hvernÍK við ætlum að koma öllu þessu drasli í
líejínum tollinn.“
Eftir að hafa þegið veitinuar hjá fjölskyldunni komum við okkur
þa uileica fyrir inni í stofu og fórum að spyrja Fritz spjörunum úr.
Ungur þjálfari
með míkla reynslu
Gætirðu fyrst sagt okkur eilít-
ið um sjálfan þig?
„Eg hef nú aldrei verið neitt
mjög hrifinn af því að tala um
sjálfan mig en ef þú krefst þess þá
ætti ég að geta sagt eitthvað. Eg
er fæddur árið 1949 og er því
orðinn 32 ára. Eg er giftur og á tvö
börn, bæði stelpur. Við eigum
heima í borg sem heitir Kamen en
hún er skammt frá Dortmund. Ég
tók þjálfarapróf frá íþróttaskól-
anum í Köln fyrir nokkrum árum
og hef þjálfað yfir 10 lið síðan þá
og hef því orðið töluverða reynslu
í þjálfun."
Hvernig datt þér í hug að fara
til íslands að þjálfa?
„Ég frétti í gegnum Willi
Reinke að íslenskt 1. deildarlið
væri að leita að þjálfara svo að ég
sótti um stöðuna og var ráðinn.
Margir heima héldu að ég væri
orðinn snælduvitlaus að vaða eitt-
hvert norður í höf til að þjálfa, þar
sem og var með tilboð frá félögum
í Þýskalandi um að þjálfa hjá
þeim. En ég sló til og mun aldrei
sjá eftir því af því að þetta hefur
verið frábær reynsla að starfa
hér.“
Mikil umskipti
að koma hingað
Hefur þetta ekki verið frekar
erfitt sumar fyrir þig og fjöl-
skyldu þína?
„Erfitt er varla rétta orðið.
Umskiptin voru auðvitað mjög
mikil í byrjun fyrir mig og
fjölskyldu mína. Allt var svo
öðruvísi, mataræðið, veðrið og
hugarfarið hjá fólkinu.
Þetta voru byrjunarörðugleikar
en eftir smá tíma tókst okkur að
yfirvinna þessa erfiðleika og eftir
það gekk allt vel.“
„Alltaf fiskur og kartöflur!“
„Já, fyrst við erum á annað borð
farnir a minnast á mataræðið hjá
íslendingum þá kom okkur mjög á
óvart hve gífurlegar karftöfluætur
íslendingar eru. Heima borðum
við líka mikið af kartöflum en við
erum þó með meiri fjölbreytni í
því hvernig við matbúum þær. Hér
er eins og fólk líti ekki við
kartöflum öðruvísi en soðnum.
Otrúlega oft eru fiskur og soðnar
kartöflur borin fram.“
„Við hefðum getað
gert betur“
Ef við snúum okkur nú að
knattspyrnunni, ertu ánægður
með árangur Breiðabliksliðsins í
sumar?
„Ég verð að svara þeirri spurn-
ingu neitandi þar sem ég tel að við
hefðum getað gert betur en við
gerðum. Liðið náði að vísu 22
stigum og er það besti árangur
UBK hingað til en ég hafði sett
mér það takmark að komast í
Evrópukeppnina með Breiða-
bliksliðið en okkur vantaði ekki
nema herslumuninn til að ná því
marki. Þetta mistókst vegna smá-
vægilegra mistaka í mikilvægum
leikjum í sumar, t.d. í seinni
Þórsleiknum (3—3 innsk. blm.)
urðu mér, kannski, á tæknilegar
vitleysur sem kostuðu okkur ann-
að stigið. Þess vegna get ég ekki
verið 100% ánægður með sumarið
í sumar enda er það þannig að ef
maður er alltaf ánægður með það
sem maður gerir, sýnir maður
engar framfarir."
Hver var erfiðasti leikurinn
fyrir þig og liðið í sumar?
„Ég myndi telja að tímabilið
fyrir seinni FH-leikinn hafi verið
einn erfiðasti tíminn fyrir mig í
sumar. Fyrir þennan leik hafði
ekkert gengið hjá Breiðablikslið-
inu, tap fyrir Fylki og KR, og
• Fritz Kissing.
kominn var órói í leikmenn þannig
að það var geysimikilvægt að
vinna þennan leik. Okkur tókst
það líka, þótt tæpt væri (2 mörk á
siðustu 5 mínútum leiksins innsk.
blm.) og létti það mikilli spennu af
leikmönnum og mér.“
„Víkingarnir unnu
verðskuldað“
Nú eru Víkingar meistarar.
Telur þú þá besta félagsliðið á
íslandi i dag?:
„Ég vil byrja á því að óska
Víkingum til hamingju með titil-
inn og einnig þjálfara þeirra,
Youri Zetov, til hamingju með
frábæran árangur í sumar. Ég tel
að Víkingur sé ekki með betra lið
en t.d. UBK, Fram og Akranes.
Það sést best á því að Víkingur
tapaði á móti öllum þessum liðum
en útslagið gerði að Víkingar
sýndu miklu meira öryggi gegn
botnliðunum þannig að sigur
þeirra í mótinu var verðskuldaður.
Ég vil sérstaklega hrósa þjálfara
þeirra, Youri Zetov, fyrir að ná
svo miklu útúr liðinu. Hann er
tvímælalaust færasti þjálfarinn
sem starfar hér.“
„En þú? skýtur þá blm. inní.
Fritz hló þá bara og sagði: „Ég
er nú ekki besti maðurinn til að
dæma um það. Zetov hafði ekki úr
eins miklum mannskap að moða
og hin toppliðin en náði því besta
útúr liðinu sem hægt var.
„Bestu liöin hér gætu
unnið slakari 2. deildar-
liöin í Þýskalandi“
Ilvernig telur þú að íslensk
knattspyrna standi í samanburði
við þá þýsku?
„Það er alltaf erfitt að bera
saman atvinnu- og áhugamennsku
í öllum íþróttum en hér á Islandi
eru ótrúlega margir góðir knatt-
spyrnumenn og mörg góð lið
miðað við fólksfjölda. Bestu liðin
hér í 1. deildinni, t.d. Breiðablik
eða Víkingur, gætu á góðum degi
unnið slakari atvinnumannaliðin í
2. deildinni heima í Þýzkalandi."
Ilvað myndir þú vilja segja
almennt um íslenska knatt-
spyrnu?
„Mér finnst almennt að leik-
menn hafi of litla trú á sjálfum
sér og liði sínu. Núna er ég
kannski að tala mikið útfrá mínu
eigin liði. Ég sagði leikmönnunum
strax í vor að við stefndum á
meistaratitilinn en það voru of
margir sem voru vantrúaðir á að
við gætum þetta því að við höfðum
best náð áður 5. sæti. Maður
verður að hafa trú á sjálfum sér
til að ná árangri."
„Skortur á boltatækni“
„Einn helsti galli íslenskrar
knattspyrnu er skortur á bolta-
tækni. Kraftinn, baráttuna og
áhugann vantar ekki en oft er
hlaupið of mikið og of lítið hugsað.
Þetta má líklegast rekja til ungl-
ingaþjálfunarinnar þar sem þjálf-
arar leggja of mikla áherslu á
þrek og kraft en gleyma knatt-
tækninni. Það þarf strax í 6. flokki
að byrja að venja strákana við að
vera alltaf með bolta við æf-
ingarnar, annars ná þeir aldrei
upp nauðsynlegri tækni. Því miður
sér maður jafnvel leikmenn í 1.
deildarliðum sem hafa sorglega
litla hugsun og knatttækni."
„Enginn þjálfari verður
góður viö það eitt
að vera erlendur!“
Fyrst við erum farnir að minn-
ast á þjálfun og þjálfara, hvernig
finnst þér íslenskir þjálfarar?
„Þið eigið marga góða þjálfara;
t.d. Magnús Jónatansson hjá ÍBI
sem er mjög fær þjálfari og
geðþekkur maður. íslenskir þjálf-
arar eiga undir högg að sækja í
samkeppni við erlenda þjálfara.
Það þykir fínna að hafa erlendan
þjálfara en innlendan þannig að
það er oft erfitt fyrir íslenska
þjálfara að komast að hjá 1.
deildarliðunum. Erlendir þjálfar-
ar geta komið með ferska strauma
inn í knattspyrnuna en liðin ættu
að athuga vel sinn gang áður en
þau-fáða erlendan þjálfara því að
það er svo mikil áhætta samfara
því eins og kannski sannaðist hjá
einu 1. deildarliðinu í sumar.
Enginn þjálfari verður góður við
það eitt að vera erlendur!"
„Of lítil ynging
í landsliðinu“
Hvað finnst þér um islenska
landsliðið?
„Guðni landsliðsþjálfari er ekki
öfundsverður af hlutverki sínu.
Það er pressa á hann frá öllum
hliðum að landsliðið standi sig vel
og hann fær kannski 2—3 daga til
að undirbúa liðið undir leik. Leik-
mennirnir eru kannski að koma til
landsins daginn fyrir leikinn og
eru oft þreyttir en eru samt látnir
spila. Með svona skipulagi getið
þið, íslendingar, aldrei ætlast til
þess að landsliðið nái einhverjum
afgerandi árangri. Kjarnann úr
landsliðinu á að velja úr leik-
mönnum sem spila hér heima og
kalla í mesta lagi 2—3 leikmenn
frá útlöndum sem 100% styrkja
liðið, t.d. Ásgeir Sigurvinsson og
Pétur Pétursson. Mér finnst einn-
ig að of lítil ynging sé í landslið-
inu. Það virðist oft vera að ef
menn eru einu sinni komnir inn
virðist vera mjög erfitt fyrir þá að
detta út. Það verður að gefa yngri
leikmönnum tækifæri því að
þeirra er framtíðin. Ég nefni t.d.
Ómar Rafnsson hjá UBK, einn
efnilegasta sóknarbakvörðinn í ís-
lenskri knattspyrnu í dag, sem
hefði hiklaust átt að vera búinn að
fá tækifæri í sumar í landsliðs-
hópnum."
„Menn veröa stjörnur
við það eitt að
fara til útlanda
„Mér finnst ríkjandi hugarfar
hjá íslendingum að líta á alla þá
sem fara til útlanda að spila, sama
hvert þeir fara, sem heilmiklar
stjörnur. Hér á íslandi eru leik-
menn sem eru engu síðri, t.d.
Pétur Ormslev og Lárus Víkingur.
Þarna hafa fjölmiðlarnir brugðist.
Frekar ættu þeir að einbeita sér
að því að „búa til“ stjörnur hér
heima í staðinn fyrir að gera
menn að stjörnum fyrir það eitt að
fara til útlanda og spila. Umræðu-
þátturinn í sjónvarpinu um dag-
inn var spor í rétta átt en hann
var of þurr til að koma að gagni.
Það er ekki nóg að stilla 2—4
leikmönnum upp fyrir framan
sjónvarpsmyndavélarnar og
spyrja þá spurninga sem allir vita
hvernig þeir munu svara."
Um 80% möguleikar
að ég komi aftur“
Frést hefur að samningavið-
ræður hafi staðið yfir við þig um
að koma aftur og þjálfa Breiða-
bliksliðið næsta sumar. Hverjir
eru möguleikarnir að þú komir
aftur?
„Ég hef átt óformlcgar viðræð-
ur við stjórn Breiðabliks um að
ég komi aftur næsta sumar og er
áhuginn gagnkvæmur að ég komi
aftur. Það væri synd ef ég kæmist
ekki þvi að ég hef fullan hug á
því að halda því starfi áfram sem
ég hef verið að vinna að með
Breiðabliksliðið í sumar. Ef nýr
þjálfari kemur þarf hann að
hyrja upp á nýtt og kynnast
liðinu og leikmönnum þannig að
ég hef fullan hug á því að koma
aftur og gera það sem okkur
tókst ekki i ár, þ.e. að gera
Breiðablik að meisturum. Það
sem strandar á er vinna mín í
Þýskalandi, en ég er lærður
tryggingarráðgjafi, og er einung-
is í Vi árs leyfi. Eins og staðan er
í dag myndi ég segja að það séu
u.þ.b. 80% möguleikar að ég komi
aftur.“
„Góður félagsandi
í liðunum hér“
Nú fer að líða að lokum þessa
viðtals, Fritz, en myndirðu ekki
vilja gefa íslenskum knatt-
spyrnumönnum einhver heilræði
svona að lokum?
„Jú, eins og ég sagði áðan,
íslenskir knattspyrnumenn: hafið
meiri trú á sjálfum ykkur. íslensk
knattspyrna þarf ekki að hafa
neina minnimáttarkennd gagn-
vart þeirri erlendu. Ég hef þjálfað
yfir 10 knattspyrnulið í Þýska-
landi, eins og ég hef sagt áður, en
ég hef aldrei kynnst jafngóðum
félagsanda hjá neinu þeirra eins
og hjá Breiðabliksliðinu í sumar.
Hér finnst mér menn geta tekið
betur gagnrýni og andstreymi.
Menn reyna að sjá björtu hliðarn-
ar á málunum og geta einnig
hlegið að eigin mistökum. Þó
finnst mér stundum að sumir
knattspyrnumenn séu óttaleg
börn í sér á leikvellinum. Eru að
rífast yfir ótrúlegustu hlutum og
manni finnst skrítið að þetta séu
fullorðnir karlmenn en ekki strák-
ar í 6. flokki. Spilamenn, nicht
strákar," sagði Fritz síðan á
þýsk-íslenskunni sinni, sem hann
er frægur fyrir að nota við leik-
menn Breiðabliks, til þess að
leggja áherslu á það sem hann var
að tala um. Þegar við hlógum að
framburðinum hjá Fritz, hló hann
með og sagði: „Ég verð að taka
aukatíma í vetur í íslensku heima
ef ég ætla að koma aftur næsta
surnar."
Eftir að hafa klárað úr kaffi-
bollunum kvöddum við Fritz Kiss-
ing og fjölskyldu hans og óskuðum
þeim góðrar heimferðar og við
vonumst auðvitað eftir því að sjá
þennan geðþekka og almennilega
mann næsta sumar aftur.
- AP
Fritz Kissing þjálfari
UBK í Mbl.-viðtali