Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Þórarinn Ragnarsson ræðir við Ásgeir Sigurvinsson
„Nái ég að vinna mér fast sæti í liði
Bayern Munchen næ ég varla lengra“
- segir Ásgeir Sigurvinsson í viðtali við Mbl.
• Hann var aðeins 18 ára gamall þegar hann hélt út í
hinn stóra heim og gerðist atvinnumaður í knattspyrnu.
Á átta árum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Knatt-
spyrnumaðurinn ungi stóð sig vel í hinum harða skóla
sem atvinnumenn í knattspyrnu þurfa að ganga í gegn
um. í dag er hann á góöri leið með að tryggja sér fast
sæti í einu af besta knattspyrnuliði í veröldinni. Og ekki
kæmi það á óvart þó að á næstu árum ætti knattspyrnu-
maðurinn eftir að verða einn af máttarstólpum þessa
liös og ein skærasta stjarna þess. Það vita allir um hvern
er að ræða. Ásgeir Sigurvinsson glæsilegan fulltrúa ís-
lenskrar æsku á erlendri grund. Og víst er að Ásgeir
hefur í gegn um árin verið íslandi meíri og betri land-
kynning en flestir gera sér í hugarlund. Eftir átta ára
dvöl hjá sama knattspyrnufélagi, Standard Liege í
Belgíu, leikur Ásgeir nú hjá hinu heimsfræga félagi Bay-
ern Munchen. Ásgeir hefur strax í upphafi keppnistíma-
bilsins fengið tækifæri á að spreyta sig með aðalliði
félagsins og fengið góða dóma fyrir leik sinn. Þegar
hann var svo gott sem að festa sæti sitt sem miðvallar-
leikmaður varð hann fyrir því óhappi að meiðast í annað
sinn á skömmum tíma og missti því tvo leiki og nokkrar
æfingar. En án efa fær Ásgeir fljótt annaö tækifæri. Þeir
sem til þekkja eru allir sammála um að lið Bayern
Munchen er gífurlega sterkt sem knattspyrnulið og fé-
lagið er það peningasterkasta í Vestur-Þýskalandi. Það
er því meira en að segja það að ná að festa sig í sessi í
keppnisliði félagsins. Einn íslensku leikmannanna sem
leikur sem atvinnumaður í V-Þýskalandi, Atli Eðvalds-
son, hafði þetta að segja um lið Bayern.
— Þetta er lið í sérflokki. Þar er valinn maður í hverri
stöðu. Liðið hefur sigrað í „Bundesligunni“ núna tvö ár í
röð. Liðið er því fullmótað og ekki á hvers manns færi að
fá tækifæri að spreyta sig með liðinu hvað þá að vinna
sér sæti sem fastur leikmaður. Það hafa margir mjög
góðir knattspyrnumenn fengið tækifæri en þurft að
sætta sig við að vera ekki nægilega góöir. Það er er því
stórkostlegt og segir meira en mörg orð að íslenskur
knattspyrnumaður, Ásgeir Sigurvinsson, skuli hafa
staðið sig jafn vel og raun ber vitni hjá liðinu.
• Ásgeir Sigurvinsson
Stend á tímamótum
Eftir að hafa drukkið nokkra
bolla af kaffi og rætt um heima og
geima, spurði ég Ásgeir að því í
hverju mestu viðbrigðin væru
fólgin að leika knattspyrnu í
Belgíu og V-Þýskalandi?
— Ég stend núna á tímamótum
í lífi mínu sem knattspyrnumaður.
Mig hafði alltaf langað til þess að
fá að leika hjá mjög góðu liði. Og
þegar ég fékk tilboð frá Bayern
Miinchen var ég ákveðinn í því að
taka því. En eins og kunnugt er
gekk mér illa að losna frá Stand-
ard. Það var ekki fyrr en ég var
búinn að tala tíu sinnum við fram-
kvæmdastjórann minn, Petit, að
hann gaf sig loks. Ég gerði mér
fullkomlega grein fyrir því að ég
þurfti að berjast fyrir sæti mínu
hjá Bayern, og ég var og er til-
búinn til þess. Það eru viðbrigði að
koma til félags og þurfa að setjast
á varamannabekkinn eftir að hafa
verið einn af máttarstólpunum í
góðu liði í átta ár.
Þetta er ekki síður sálrænt álag.
Maður er í raun að byrja upp á
nýtt.
Kemst varla lengra
— V-þýska „Bundesligan" er sú
besta og um leið sú erfiðasta sem
þekkist í veröldinni. Áður en tím-
abilið hefst eiga í það minnsta 10
lið góða möguleika á að hreppa
hinn eftirsótta meistaratitil. Én í
Belgíu voru þetta alltaf sömu fjög-
ur liðin. Hin börðust um að halda
sæti sínu í deildinni.
— Bayern hefur sigrað í 1.
deildinni síðustu tvö árin. Og er
eitt af þremur bestu liðum Evrópu
án efa. I fyrra voru það lið Liver-
pool og AZ-67 Hollandi sem voru í
svipuðum gæðaflokki. í liði Bay-
ern eru knattspyrnustjörnur á
heimsmælikvarða. Þjálfarinn
treystir sínum leikmönnum, veit
hverju þeir skila og er lítið fyrir
það að breyta liðinu. Það er því
erfitt að fá tækifæri til að leika
með.
— Ef ég næ því takmarki að
vinna mér fast sæti í þessu liði þá
kemst ég varla lengra. Ég get bætt
mig sem knattspyrnumaður, ég
hef mikla reynslu á bak við mig nú
orðið, og það er gott veganesti.
Mörg þekkt nöfn
snúiö til baka
— Það er kunnara en frá þurfi
að segja að mörg þekkt nöfn í
knattspyrnuheiminum hafa reynt
fyrir sér hjá Bayern en þurft að
snúa til baka til annarra félaga.
Það er sérstaklega erfitt að kom-
ast í lið hjá Bayern. Þú þarft að
sanna að þú sért mun þetri en
maðurinn sem fer út úr liðinu
fyrir þig.
— Þá er það erfitt að skapa sér
nafn í Þýskalandi, sem knatt-
spyrnumaður. Ég er til dæmis eini
Fyrsti sigur Fortuna Diisseldorf
ATLI Eðvaldsson lék sinn fyrsta
leik með Fortuna Dússeldorf í
þýsku deildakeppninni og stóð
sig vel. llann skoraði ekki mark
að vísu. en var nærri því oftar en
einu sinni. Thomas Allofs, yngri
hróðir stórstjörnunnar Klaus
Allofs. sem leikur nú með FC
Köln. skoraði sigurmark For-
tuna á 66. mínútu. með skalla eft-
ir fyrirgjöf frá Gerd Zewe. Ann-
ars hafði leikurinn ekki byrjað
gæfulega hjá Fortuna. þar sem
Bochum náði forystunni á 10.
mínútu úr vítaspyrnu. Weikl
jafnaði metin á 50. minútu með
þrumuskoti af 15 metra færi.
Góður sigur Fortuna Dusseldorf.
Annars urðu úrslit leikja sem hér
segir:
Kaiserslaut.—B. Leverkusen 5—2
Karlsruhe—Wreder Bremen 3—0
FC Nurnb.—Arm. Bielefeldt 1—0
Braunschweig—Darmstadt 983—0
Hamb. SV-MSV Duisburg 7-0
Frankfurt—Stuttgart 4—1
FC Köln—Bor. Mönchengl. 3—0
Bor.Dortmund—Bayern 2—0
Dússeldorf—Bochum 2—1
Dortmund vann sannarlega
óvæntan sigur gegn Bayern
Múnchen, þar sem Ásgeir Sigur-
vinsson kom inn á í hálfleik hjá
Bayern. Þá var staðan 1—0, eftir
að Klotz hafði skorað fyrir Dort-
mund með skalla. Það seig síðan
enn á ógæfuhliðina hjá Bayern í
síðari hálfleik, Manfred Burgs-
múller skoraði annað mark
Dortmund og fékk síðan úrvals
tækifæri til þess að bæta enn við
marki, er Dortmund fékk víti. En
Manni brenndi af.
Hamburger SV hristi heldur
betur af sér slen síðustu umferða
og tók MSV Duisburg til bæna.
Horst Hrubesch, miðherjinn risa-
vaxni hjá HSV, lék ekki með
vegna meiðsla, en hans var ekki
saknað, varamaðurinn Júrgen
Miljevski lék á als oddi. Miljevski
sem lék áður með Herthu Berlín,
skoraði tvívegis fyrir HSV og fisk-
aði auk þess vítaspyrnu sem
Manny Kaltz skoraði úr. Kaltz
skoraði reyndar úr tveimur víta-
spyrnum í leiknum og þeir Felix
Magath, Lars Baastrup og Von
Heesen komust einnig á blað í
stórsigri HSV. Staðan í hálfleik
var 3—0 og hinir 15.000 áhorfend-
ur voru afar ánægðir með leik
sinna manna.
Klaus Allofs skoraði fyrsta
mark Kölnar-liðsins gegn Bor-
ussia Mönchengladbach strax á 17.
mínútu leiksins. Síðan gekk á
ýmsu langt fram eftir öllum leik
og voru Kölnararnir meira að
segja stundum heppnir að halda
hreinu. En tvö mörk á þremur
mínútum nokkru fyrir leikslok
rotuðu BMG. Pierre Littbarski og
Klaus Fischer skoruðu mörkin.
Stuttgart hefur dalað geysilega
að undanförnu og liðið átti aldrei
hina minnstu möguleika gegn
Frankfurt. Ekkert mark var skor-
að í fyrri hálfleik, en snemma í
þeim síðari skoraði Neuberger
fyrir Frankfurt. Síðan bætti Lor-
ant tveimur við úr vítaspyrnum
áður en Didier Six svaraði fyrir
Stuttgart. Síðasta orðið átti hins
vegar heimaliðið, er Kóreumaður-
inn Bum Kun Tscha skoraði.
Eintrakt Braunschweig sigraði
Darmstadt 98 af miklu öryggi og
að sögn fréttaskeyta voru yfir-
burðir heimaliðsins með ólíkind-
um. Ronnie Worm, Kindermann
og Geiger skoruðu mörk liðsins.
Þá vann Núrnberg sinn fyrsta sig-
ur á keppnistímabilinu á kostnað
Armenía Bielefeldt, sem virðist
ætla að eiga í fallbaráttu rétt einu
sinni. Dressel skoraði sigurmark
Núrnberg og skrifuðu fréttaskeyti
markið að öllu leyti á reikning
markvarðarins Kneib, sem hreyfði
hvorki legg né lið þrátt fyrir að
knötturinn skoppaði letilega inn-
an seilingar á leið sinni í netið.
Staðan í deildinni er nú þessi:
Bavcrn Miinchon 8 fi 0 2 22:13 12
l.FC köln 8 5 12 15:8 11
llamhurKcr SV 8 1 2 2 23:11 10
VFL BtK-hum 8 5 0 3 15:11 10
Wordcr Bromcn 8 4 2 2 11:11 10
Borussia Mönchcn. 8 12 2 1 fi:l 5 10
I.FC Kaiscrslautcrn 8 3 3 2 20:lfi 9
Eintr. Frankíurt 8 4 13 18:15 9
Karlsruhcr SC 8 3 2 3 10:14 8
Borussia Dortmund 8 3 2 3 11:10 8
VFB StuttKart 8 3 2 3 11:12 8
Baycr Lcvcrkuscn 8 3 2 3 11:18 8
MSV Duishun? 8 3 14 13:20 7
Eintr. Braunschw. 8 3 0 5 11:12 fi
Fortuna Diisscldorí 8 13 4 10:10 5
Arminia Biclcfcld 8 13 4 fi:12 5
Darmstadt 98 8 13 4 11:18 5
I.FC NiirnbcrK 8 1 1 fi 7:18 3
• Jurgon Miljevski skoraði tvfvegis fyrir HSV.
• Ásgeir liggur óvígur á vellinum eftir
völlinn og gat ekki æft í 8 daga.
■
t «