Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
27
Flestir tóku aukaæfingar
RON Saunders stoð á hliðarlín-
unni <>k (jaf leikmönnunum
ákveðnar fyrirskipanir. Hann
var einheittur á svipinn ojr leik-
menn voru fljótir að framfvÍKja
skipunum hans. Við vorum
nokkrir íslenskir blaóamenn
staddir á æfingu hjá Aston Villa.
EnKÍandsmeisturunum i knatt-
spyrnu. Það var athyKÍisvert að
fyÍKjast með morKuna'fingu lií>s-
ins <>k sjá hversu vel leikmennirn-
ir tóku á við æfinKarnar. Ekki
síður vakti það furðu þejíar Ron
Saunders flautaði <>k tilkynnti að
a-finKunni væri lokið að flestir
leikmannanna tóku þá aukaæf-
infrar. Það skildi því engan furða
þótt leikmenn Villa va'ru í (fóðri
æfinKU <>k kynnu ýmisleKt fyrir
sér í knattspyrnuíþróttinni.
Enda kom það í Ijós er lið Vals
ma-tti Aston Villa. að þar eru
snillinKar á ferðinni.
Æfingasvæði Aston Villa voru
mjög glæsileg. Hver grasvöllurinn
• Framkvæmdastjóri Aston
Willa. Ron Saunders stjórnar æf-
ingu liðsins. I,jo-.m i>r.
v'ið annan og ýmis æfingatæki
>>oru til staðar. Fullkomin lyft-
ingatæki o.fl. Maður gerir sér bet-
ur grein fyrir því hversu gífurleg-
ur aðstöðumunur er hjá atvinnu-
mönnum og áhugamönnum þegar
maður heimsækir erlend félög. Þó
ætla nú margir að aðstaðan hér
heima á Fróni sé góð.
Eftir að leikmenn höfðu lokið
við séræfingar sínar fengu þeir sér
að borða í matsalnum í æfinga-
búðunum. Meðan á máltíðinni stóð
var komið með póstinn til leik-
mannanna og var greinilegt á hon-
um að þeir eiga marga aðdáendur,
því að flestir fengu bunka að bréf-
um.
En þetta var aðeins fyrri æfing
dagsins, leikmenn þurftu að mæta
aftur klukkan fjögur og taka þá
þráðinn upp að nýju.
- ÞR.
t Knattspyrna ]
• Ilúsakynni Aston Villa eru engin smásmiði enda fer þar fram margvísleg starfsemi. Ljósm. þr
„Það verður
erfitt að
ver ja titilinn“
- sagdi Peter Withe miðherji Villa
EINN leikreyndasti og hesti
leikmaður Aston Villa er
enski landsliðsmiðherjinn
Peter Withe. Að lokinni æf-
ingu spjailaði Mbl. við kapp-
ann. Peter var spurður að
því hvort erfitt yrði að verja
meistaratitilinn og hvort lið
Aston Villa væri jafngott
núna og í fyrra.
— Lið Aston Villa er mjög
gott núna um þessar mundir.
Okkur hefur að vísu ekki
gengið mjög vel í fyrstu leikj-
um okkar en þetta á allt eftir
að koma. Okkur gekk ekki vel
í upphafi keppnistímabilsins
í fyrra, svo small allt saman.
Við erum með sama liðs-
kjarnann og þekkjum vel
hver annan.
— En okkur er það öllum
ljóst að það verður erfitt að
verja enska meistaratitilinn.
Það er nú einu sinni svo að
allir vilja sigra ensku meist-
arana. Og strax í fyrsta leik
okkar á keppnistímabilinu
urðum við að bíta í það súra
epli að tapa fyrir nýliðunum í
1. deild, Notts County.
Hvað með sjálfan þig, ertu
í góðri æfingu?
— Já, ég er mjög frískur
um þessar mundir. A síðasta
keppnistímabili skoraði ég 21
mark: Ég ætla mér að gera
mun betur núna. Ég er með
mikla reynslu. Mér líkar
mjög vel hjá Aston Villa og
þetta hjálpar manni mikið til
að allt gangi vel.
Nú ert þú kominn yfir þrí-
• Peter Withe, hinn frábæri
miðherji Aston Villa og
markakóngur liðsins. Einn
besti miðherji í enskri
knattspyrnu í dag.
Ljósm. I»R.
tugt. Attu langt eftir sem
knattspyrnumaður. og hvað
hyggstu fyrir þegar ferli
þínum lýkur?
— Sem betur fer á ég
nokkur ár eftir í eldlínunni,
og sjálfum finnst mér ég
núna vera á toppnum á ferli
mínum. Ég hef mikinn áhuga
á því að taka að mér þjálfun
eða framkvæmdastjórn þegar
ég hætti að leika knatt-
spyrnu. Ég hef leikið hjá 11
félögum og hef því mikla
reynslu, sagði Peter.
- ÞR
• Heimavöllur ensku meistaranna er mjög glæsilegur. Hér má sjá inn í eina stúkuna. Og að sjálfsögðu eru
upphafsstafir félagsins á henni.
• Knattspyrnuvöllurinn var rennisléttur. og engu likara en að aldrei væri leikin þar knattspyrna. svo vel
leit hann út.
• Það er afskaplega vinsælt að
láta mynda sig með verðlauna-
gripina. Hér er það Des Bremer
sem situr ásamt föður sínum og
syni með góðgerðarskjöldinn og
enska bikarinn. Ljósm. þr.
• Ein af stjörnum liðsins. Gary
Shaw. fékk að sjálfsögðu nýút-
komna plötu Valsliðsins Léttir í
lund. Gary þykir vera einn efni-
legasti knattspyrnumaður i
Englandi í dag. Ljósm. ÞR.