Morgunblaðið - 29.09.1981, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
Fróðir menn í Bretlandi fullyrða að tvö
ráðherraembætti séu óvinsaelust þar ytra.
Emhætti fjármálaráðherra og embætti
varnarmálaráðherra. Svo einkennilega
vill til að þetta eru einu ráðherraembætt-
in, sem nýkjörinn varaformaður Denis
Healey hefur gegnt á stjórnmálaferli sín-
um. Maður getur af þessum ástæðum vel
leyft sér að undrast það að þessi sami
Healey hafi nú verið kosinn varaformaður
Verkamannaflokksins.
Hvernig getur á því staðið að Healey
varð hlutskarpastur og lagði af velli garpa
tvo, John Silkin og Tony Benn, yndi og
eftirlæti róttæklinganna. Til þess að
svara þessari spurningu er nauðsynlegt að
átta sig á bakgrunni valdabaráttunnar
sem nú er háð í Verkamannaflokknum og
átta sig á þeim meginatriðum sem máli
skipta þar.
Fyrir um það bil ári börðust fjórir
menn af hörku um sæti leiðtoga Verka-
mannaflokksins. Þeir voru Michael Foot,
þá varaformaður flokksins, Denis Healey,
fyrrum fjármálaráðherra, Peter Shore
skuggautanríkisráðherra og John Silkin,
þingmaður og kunnur baráttumaður gegn
veru Bretlands í Efnahagsbandalaginu.
Leikar fóru þannig að Foot sigraði, en
næstur honum kom Denis Healey.
Til sátta
Að loknum atkvæðagreiðslunum var
ljóstað mikil hætta var á klofningi innan
hins stóra flokks. Foot var fulltrúi hinna
vinstri sinnaðri innan flokks síns, en
Healey hinna hófsamari. Þó Foot sigraði
var ljóst að minnihluti sá sem studdi He-
aley gegn Foot var stór og kröftugur og
undi ekki því að fá ekki einhver valdaemb-
ætti í sinn hlut. Michael Foot skildi þetta
vel og beitti sér fyrir því að Healey yrði
kosinn varaformaður án mótatkvæða.
Flestir eru sammála um að þetta hafi ver-
eftir Einar
K. Guöfinnsson
En þrátt fyrir áhuga sinn á heimspeki
er Healey enginn hugmyndafræðingur.
Hugmyndafræði hans er bersýnilega
fremur einföld. Hann tjáir hugmyndir
sínar með nokkrum almennum orðum,
sem segja engin ósköp. „Ég lít ekki á sósí-
alismann sem trúarbrögð, eða að hann
komi í stað mannkærleika. Slíkt verður
fólk að áskapa sér sjálft," sagði hann eitt
sinn. Og öllu ítarlegri er hans hugmynda-
fræði ekki.
Alþjóðlegur
Healey er þó alþjóðlegur í hugmyndum.
Hann heldur uppi góðu sambandi við
Skandinavíska krata og skoðanabræður
sína í Vestur-Þýzkalandi. Þannig er
Helmut Schmidt kanslari góðkunningi
hans. Það er líka áberandi að Healey vísar
oft til þessara landa og Austurríkis, þegar
talið berst að stefnu þeirri sem hann vill
fylgja. Skandinavía, Austurríki og Þýska-
land eru fyrirmyndarríki jafnaðarstefn-
unnar, að dómi hans.
Það kemur sennilega fáum á óvart eftir
þennan lestur að Healey er ötull talsmað-
ur og baráttumaður fyrir samvinnu vest-
rænna lýðræðisríkja. Hann hefur boðað
að Vesturlönd eigi að vera á varðbergi
gagnvart útþenslustefnu Sovétríkjanna. í
þessum efnum er hann á öndverðum meiði
við leiðtoga sinn Michael Foot.
Er Healey í rauninni harðjaxl?
ið snjallt af Foot og nauðsynlegt til að
sætta stóran hóp fiokksmanna. Trúlega
hefðu þó sættirnar orðið skammlífar,
nema vegna þess að Healey varaformað-
ur, var leiðtoga sínum trúr og dyggur í
hvívetna og studdi alltaf við bak hans.
Núna er því málum þannig háttað að
Healey nýtur ekki bara stuðnings sinna
gömlu fylgismanna, heldur ennfremur
margra þeirra sem fyrrum börðust gegn
honum. I nafni einingar og sátta ganga
þeir nú fram með foringja sínum og
styðja við bak Denis Heaieys.
Sennilega hefði þessi mikla sáttargjörð
þó dugað skammt ef ekki hefði komið til
sá orðstír sem Healey hafði sjálfur skap-
að sér. Denis Healey er harðjax! í augum
flestra og andstæðingum hans þykir ekk-
ert spaug að lenda í honum í bardagaham.
Bölvaðir Trotskýistar
Healey lætur ævinlega sverfa til stáls,
segja menn. Hann stendur fast á sínu;
gefur ekkert eftir. Menn minnast hans
fyrir harðvítugar snerrurnar sem hann
hefur tekið við róttæklinganna í flokki
sínum. „Bölvaðir Trotskýistar í sand-
kassaleik,“ sagði hann einu sinni um unga
flokksbræður sína, sem honum líkaði ekki
alls kostar við. Hann hefur líka oft orðið
fyrir aðkasti róttækra flokksbræðra
sinna, enda er maðurinn verðugur and-
stæðingur.
íhaldsmenn eiga líka oft óskemmtilegar
minningar frá viðureignum sínum við
þetta hörkutól. Healey er kaldhæðinn og
höfundur margs konar fleygra setninga
sem hafa stungið óþægilega. Geoffrey
karlinn Howe, fjármálaráðherra íhalds-
flokksins reið oft ekki feitum hesti frá
viðureignunum við Healey. „Þegar Howe
stangar,“ sagði Healey eitt sinn, „er líkt
og dauð rolla hnibbi mann.“
Fjölbreytileg áhugamál
Þetta harðjaxlsyfirbragð Healeys hefur
orðið til þess að mörgum finnst hann
býsla billegur og að það sé fjarri því að
hann kafi djúpt til að skilja tilveruna.
Þessu fór þó víðs fjarri. Healey hefur hin
ótrúlegustu áhugamál og sinnir þeim af
kostgæfni. Hann er til að mynda snjall
áhugamaður um listasögu, vel frambæri-
legur tónlistarmaður og loks landsþekkt-
ur ljósmyndari. Sagt er að hann sé ljóð-
clskur og ágætlega að sér um heimspeki.
Hann er sagður aðdáandi Nietzches og vel
að sér um verk margra fagurfræðinga.
Hafði ekki trú á Kaldor
Meðan Healey var fjármálaráðherra
leitaði hann gjarnan til kunnra hagfræð-
inga utan hins hefðbundna ráðgjafahóps
og telja ýmsir hann hafa unnið brautryðj-
endastarf á því sviði. Hann tók ekki hvern
sem er. Margir íslendingar kannast við
Nicholas Kaldor, hagfræðinginn sem
hingað kom í boði Seðlabankans og Við-
skiptadeildar háskólans. Healey hafði
engan áhuga á samstarfi við hann.
„Kaldor er bölvaður byltingarsinni" og
þar með var því lokið.
En er hann nægilega
harðskeyttur?
En þó orð fari af Healey fyrir hrein-
skiptni og djörfung efast margir um
drengskap hans. Margir benda á að hann
verði oft að láta undan síga í baráttunni
við róttæklinga í eigin flokki. Sættir þær
sem hann kemur á, er sagt að séu oft dýru
verði keyptar.
Enn aðrir benda á að hann muni í fram-
tíðinni berjast fremur vonlítilli baráttu
við andstæðinga innan flokksins. Verka-
mannaflokkurinn hefur nú á stefnuskrá
sinni mál sem ganga í berhögg við yfir-
lýsta stefnu Healeys. Er það því ekki
skrípaleikur, spyrja menn, að starfa inn-
an flokks sem berst þvert gegn yfirlýstum
stefnumiðum manns?
Það er alveg ljóst að með sigri Healeys
í varaformannskjörinu, er kálið ekki sop-
ið. Hans bíður örlagaríkur vetur þar sem
vegið verður að persónu hans og stöðu. Og
þá fyrst fæst úr því skorið hvort Healey sé
slíkur harðjaxl og af er látið.
r
slátursalan hesfst í dag.
ss
í SS búðinni Glæsibæ og
Sparimarkaóinum Austurveri.
5 slátur ófrosin í pakka á kr. 211.
Aukavambir og fleira fáanlegt.
GERUM SIÁTURAÐ GÖMLUM S/Ð.
sýnum þannig hyggindi í heimilishaldi.