Morgunblaðið - 29.09.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
35
á Isafirði, Akranesi, í Keflavík og
víðar.
Eflinjí sýslumannsembætt-
anna er raunhæfasta leið-
in til stofnanaflutnings
Eg tel mig hér að framan hafa
leitt rök að því, sem raunar er ekki
vandaverk, að það sé annaðhvort
misskilningur eða rangfærsla,
hvort orðið sem menn vilja heldur
nota, að halda því fram að með
lögréttufrumvarpinu sé stefnt að
því að svipta menn varnarþingi
sínu og skerða dómstólaþjónustu
við þann helming þjóðarinnar sem
býr á landsbyggðinni. Þvert á móti
munu allir þjóðfélagsþegnar, hvar
svo sem þeir búa, njóta góðs af
hraðari gangi dómsmála. En þá
stendur eitt eftir og því get ég ekki
mótmælt: Afleiðing af lögréttu-
skipaninni yrði sú að dómsvald
sýslumanna yrði skert, a.m.k. að
formi til. Það er út af fyrir sig
slæmt. Ekki þó svo slæmt sem
virðast kynni við fyrstu sýn. Ein-
mitt sú breyting að losa sýslu-
menn við viðkvæmustu dómsstörf-
in gefur möguleika á að efla emb-
ætti þeirra á sviði framkvæmda-
valdsins og snúa við þeirri öfug-
þróun sem viðgengist hefur á und-
anförnum áratugum, að hver
fjöðrin eftir aðra sé úr hatti
þeirra reytt. Eg vil leyfa mér að
skýra þetta nánar: Á undanförn-
um árum hafa sýslumenn þurft að
þola það af löggjafanum, áhrifa-
mönnum í sveitarstjórnamálum
og fleirum, að gengið væri út frá
að embætti þeirra væru úreltar
stofnanir, myndu með tímanum
víkja. Eg vil hinsvegar fullyrða, að
án hæfra umboðsmanna í héruð-
um landsins sé enginn vegur að
halda uppi virkri stjórnsýslu hér á
landi. Til þess að sýslumenn geti
gegnt því hlutverki að færa út í
lífið þær ákvarðanir, sem teknar
eru af Alþingi og ríkisstjórn,
þurfa þeir að geta einbeitt sér að
stjórnsýslustörfum. Að þessu mið-
ar frumvarpið með því að leysa
sýslumannsembættin undan við-
kvæmustu dómstörfunum.
Lösréttumálið er mjög
jákvætt bygKðamál
Engin von er til að þau um-
boðsstörf, sem sýslumenn fara
með fyrir ríkisvaldið verði falin
öðrum svo vel fari, t.d. sveitar-
stjórnum eða samtökum þeirra, en
aftur er mikil von til, að með
minni dómstörfum geti sýslumenn
tekið við ýmsum störfum, sem nú
eru unnin í ráðuneytunum eða
öðrum miðstjórnarstofnunum og
sparað með því mörgum mannin-
um sporin suður. Efling sýslu-
mannsemba'ttanna stjórnsýslu-
lega séð og tilfærsla verkefna frá
miðstjórnarvaldinu til þeirra er
sú skynsamlegasta leið til stofn-
anaflutnings. sem nú er unnt að
henda á. Ég vil þannig halda því
fram að lögréttufrumvarpið sé
hyggðamál. einnig að því leyti að
það auðveldi nýja s<)kn til efl-
ingar sýslumannsembættanna.
eflingar sem sé langtum mikil-
va'gari en nemur þeirri skerð-
ingu á veg þeirra og virðingu
sem af eitthvað minnkandi
dómstörfum kann að leiða.
Már Pétursson.
héraðsdómari i Hafnarfirði.
Frá verslunarnámskeiði Samvinnuskólans.
Ný verslunarnámskeið
Samvinnuskólans
SAMVINNUSKÓLINN hóf ný-
lega sitt 64. skólaár, en skólinn
starfar sem kunnugt er í þremur
deildum. sem eru Samvinnuskól-
inn að Bifröst. framhaldsdeildir í
Iteykjavík og námskeiðahald í
þágu samvinnuhreyfingarinnar
og samvinnustarfsmanna víðs
vegar um land.
Þriðjudaginn 15. september sl.
voru framhaldsdeildir Samvinnu-
skólans settar í áttunda sinn í
húsakynnum skólans í Reykjavík.
I vetur stundar 21 nemandi nám í
framhaldsdeildum, en námi þar
lýkur með stúdentsprófi.
Samvinnuskólinn að Bifröst
verður settur í sextugasta og
fjórða sinn nk. þriðjudag, 22. sept-
ember kl. 18. í vetur munu 75
nemendur stunda nám í skólanum,
og verður starfsemin í sama horfi
og verið hefur undanfarin ár.
Sl. miðvikudag lauk að Bifröst
námskeiði fyrir samvinnustarfs-
menn, sem haldið var í tengslum
við Vinnumálasamband samvinn-
ufélaganna í samræmi við ákvæði
kjarasamninga. Stóð námskeið
þetta fimm daga, og voru þátttak-
endur 23 talsins. Á næstu vikum
verða fjögur slík námskeið haldin
á nokkrum stöðum á landsbyggð-
inni, en þessi námskeið marka þau
tímamót í námskeiðahaldi skólans
að nú hefur þessi fræðslustarf-
semi hlotið viðurkenningu í kjara-
samningum með því að launaþrep
verslunarfólks eru við þau miðið
að nokkru leyti.
Námskeiðsstjóri var Þórir Páll
Guðjónsson, en leiðbeinendur auk
hans þau Jóhanna Margrét Guð-
jónsdóttir, Níels Árni Lund og
Sigurður Sigfússon.
Á sl. sumri lét Haukur Ingi-
bergsson af starfi skólastjóra
Samvinnuskólans. Hefur hann
tekið að sér önnur störf á vegum
samvinnuhreyfingarinnar, en Jón
Sigurðsson B.A. verið ráðinn
skólastjóri. Nú hverfa einnig frá
störfum við skólann í Bifröst Níels
Árni Lund og Þórir Þorvarðarson,
sem verið hafa kennarar, en við
störfum þeirra taka þau ísólfur
Gylfi Pálmason og Sigrún Jóhann-
esdóttir.
oiyggi allan
mánuðinn
Ardita — fyrir blæðingarnar fyrstu dagana.
Ardita mini — fyrir minni blæðingar og til
notkunar með tappa.
Ardita miniem — fyrir alla hina dagana.
Ardita dömubindi eru með tvöfaldri límrönd.
Ardita fyrir öryggið.
Ardita fyrir hreinlætið.
Athugaðu verðið!
HEILDSÖLUDREIFING SÍMI 78555
Stundum er varla hægt aó
komast hjáþví aó detta í
lukkupottinn
Það er því miður ekki nógu oft, - en
kemur þó fyrir, að með útsjónarsemi
er hœgt að gera virkilega góð
kaup. Stundum er meira að segja
varla hœgt að komast hjá þvi að
detta í lukkupottinn og gera
sannkölluð reyfarakaup! Um
þessar mundir vitum við einmitt
um eitt slíkt tilfelli - þú getur neíni-
lega íengið sœnsku FACIT kúlurit-
vélina á aðeins kr. 13.800.-
Við getum lengi talið upp tœknilega
kosti FACIT kúluritvélarinnar. Við
nefnum t.d. dálkastilli með tvöföldu
minni, tvöíalda vinstri spássíu,
leiðréttingarlykil og innbyggðan
leiðréttingarborða, stillanlegt
stafabil, eldhraða pappírsíasrslu,
íœranlegan vals, fimm mismunandi
línubil o.fl. o.íl.
Síðast en ekki síst er Facit kúlurit-
vélin níðsterk og gullíalleg - sann-
kölluð snilldarhönnun!
Facit kúluritvélintostar
aóeins kr. 13.800
GÍSLI J. JOHNSEN HF.
| l~|~l h
Smidjuvegi 8 - Sími 73111
Umboðsmenn á Akmevri
Skrifstofuval hf. Kaupíingi v Mýraigötu sími (96) 25004
J