Morgunblaðið - 29.09.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
37
Hjúkrunarfræðing-
ar lifa ekki á hugsjón-
inni einni saman
eftir Sveinbjörgu Ein-N
arsdóttur hjúkrunar-
frœðing
Undanfarnar vikur hefur mikið
verið rætt og ritað í fjölmiðlum
um hjúkrunarfræðingaskort.
Hvað veldur þessum skorti? Þar
kemur ýmislegt til greina, en þá
fyrst og fremst lág laun. Byrjun-
arlaunin eru 11.1. fl. 2. þrep kr.
6.425.- og hækkar ekki fyrr en eft-
ir 4 ára starf um 1 launaflokk.
12.1.fl. 2. þrep er kr. 6.701.
Laun B.S. hjúkrunarfræðinga
eru litlu meiri en þeirra sem
semja við BHM.
Þið sjáið að af þessum launum
lifir engin mannsæmandi lífi. Hér
á ég ekki við neinn lúxus, heldur
„Þrátt fyrir auknar
kröfur og álag, hefur
forráöamönnum ekki
fundist ástæða til að
fjölga stöðum hjúkrun-
arfræðinga ...“
laun til að borga skatta og skyld-
ur, húsnæði og fæði. Ekki mun
vera mikill afgangur til að veita
sér neitt þar fram yfir.
Með aukinni tækni og fram-
þróun í vísindum, hefur starfsemi
heilbrigðisstofnana stóraukist.
Fleiri og stærri skurðaðgerðir eru
framkvæmdar, meðferð við ill-
kynja sjúkdómum hefur stórauk-
Alþýðusamband
Suðurlands varar
við atvinnuleysi
Á FUNDI stjórnar Alþýðusam-
bands Suðurlands hinn 20. sept-
ember 1981 var eftirfarandi sam-
þykkt gerð:
„Stjórn Alþýðusambands Suð-
urlands bendir á þá alvarlegu^
þróun, sem átt hefur sér stað við
atvinnuuppbyggingu á Suður-
landi, þar sem möguleikar aukinn-
ar orkuframleiðslu sunnlenskra
fallvatna hafa að engu verið nýttir
til sérstakrar iðnaðar- eða iðju-
uppbyggingar í sunnlenskum
byggðum.
Nú benda líkur til, að lokið sé
byggingu stórra orkuvera á Suður-
landi a.m.k. um sinn, og hundruð
sérhæfðra verka- og iðnaðar-
manna missi atvinnu sína.
Stjórn Alþýðusambands Suður-
lands hvetur viðkomandi stofnan-
ir og stjórnvöld til þess, að leita
allra leiða sem forðað geta því, að
til atvinnuleysis komi í kjölfar
þeirrar nýlendustefnu sem rekin
hefur verið gagnvart Sunnlend-
ingum.“
(FréttatilkynninK)
ist, og með betri heilbrigðisþjón-
ustu og betri kjörum almennings,
er meðalaldur hærri en áður. Allt
þetta hefur aukið mjög vinnuálag
og krefst meiri kunnáttu og sjálf-
stæðis hjúkrunarfræðinga.
Það er ekki nóg að vera bara góð
kona í hvítum slopp með geislandi
bros, þó það þurfi að vera til stað-
ar.
Mismunandi vinnuálag er á
deildum spítalanna, en víðast hvar
er það mjög mikið. Sumstaðar er
algengt, að hjúkrunarfræðingar
standi tvær vaktir samfellt þ.e. 16
klst. og jafnvel lengur. Hver þolir
slíkt til lengdar? Þrátt fyrir aukn-
ar kröfur og álag, hefur forráða-
mönnum ekki fundist ástæða til
að fjölga stöðum hjúkrunarfræð-
inga, þrátt fyrir ítrekaðar óskir.
Þó vilja þessir sömu menn að
stofnunin veiti fyrsta flokks þjón-
ustu. Fólk, sem vinnur undir
miklu álagi, krefjandi vinnu og
fær smánarlaun fyrir, hlýtur að
finna til innri óánægju og leysa
störf sín verr af hendi en ella. Á
öllum hjúkrunarvörum og hjálp-
artækjum, sem flutt eru inn, eru
lúxustollar. Þannig að tæki sem
létta okkur vinnuna eru af skorn-
um skammti. Margir hjúkrunar-
fræðingar hafa leitað út fyrir
landsteinana gegnum árin og held
ég að ævintýraþráin hafi ráðið þar
mestu hjá flestum. Margar koma
þó heim aftur, en nú virðist að
fleiri og fleiri ílengist eða setjist
að erlendis. Fleiri og fleiri hugsa
„get ég fengið léttari og betur
borgaða reglubundna vinnu".
T.d. veit maður um skrifstofu-
stúlkur, sem ekki eru með við-
skiptamenntun, sem hafa meira
kaup en deildarstjóri. Vaktavinna
er mjög slítandi og mætti borga
mun betur fyrir svona óreglulega
vinnu.
Nei. við lifum ckki á hugsjón-
inni einni saman.
Við berum þá von í brjósti, að
ráðamenn leiðrétti okkar mál í
næstu kjarasamningum og að
menntun og ábyrgð okkar í starfi
verði metin sem skyldi.
Það er nauðsynlegt, ef halda á
uppi fyrsta flokks heilbrigðisþjón-
ustu í landinu.
GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR
Lítum bara á hurðina: Færanleg fyrlr
hægri eða vinstri opnun, frauðfyllt og
níðsterk - og i stað fastra hillna og
hólfa, brothættra stoða og loka eru
færanlegar fernu- og flöskuhillur úr
málmi og laus box fyrir smjör, ost, egg,
álegg og afganga, sem bera má beint
Dönsk gæðl með VAREFAKTA, vottorði
dönsku neytendastofnunarinnar DVN
um rúmmál, einangrunargildi, kæll-
svið, frystigetu, orkunotkun og
aðra eiginleika.
GRAM BYDUR EINNIG 10 GERÐIR AF
FRYSTISKÁPUM OG FRYSTIKISTUM
^onix
HÁTUNI 6A ♦ SÍMI 24420
★ VERÐ AÐEINS ca Kr. 66.990 - RYÐVÖRN ★
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38-600