Morgunblaðið - 29.09.1981, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
41
fclk í
fréttum
Á hjólaskautum
+ Það var fyrir nokkrum árum sem bandarísk
ungmenni hófu að fara á hjólaskautum út um allar
trissur og þetta breiddist eins og sinueldur út um
allan hinn vestræna heim, fullorðnu fólki til hrell-
ingar. Stúlkan þessi er þýsk og heitir Gabis. Hún
rennir sér á hjólaskautum um strætin eins og ekk-
ert sé, og þar að auki er hún mjög kná í leikfimi og
því til áréttingar færði hún sig í þessar stellingar
fyrir ljósmyndarann ...
+ Þannig verður til skopmynd. Franski teiknarinn Jean Mulatier gerði þessar myndir af Helmut Schmidt.
kanslara Vestur-býskalands, og eru þær meðal fjölmargra snjallra teikninga i nýútkomnu úrvali skop-
mynda sem William Feaver hefur tekið saman um snillingana frá Hogarth og Gillray til Scarfe og Levine.
Fassbinder gerist leikari
+ Rainer Werner Fassbinder, vestur-þýski leikstjórinn, er
orðinn frægur maður, þó ungur sé. Hann er ekki nema 35
ára. Fassbinder er frjálslyndur maður og trúir á sjálfan sig,
og finnst hann kannski hafa nóg afrekað sem leikstjóri,
nema hann ákvað nýlega að gerast leikari. Ilann hefur þegið
aðalhlutverkið í nýrri þýskri mynd eftir einni glæpasögu
Pers Wahlöös, Morð á 31stu hæð ...
Karpov og Kortsnoj við upphaf einvigisins á Filippseyjum og dulsálar-
fræðingurinn yfir þeim með iskyggilegt augnaráð.
Skothelt gler á
dulsálarfrœðinginn
+ Ileimsmeistaraeinvígið í
skák hefst í Merano á ít-
alíu 1. október. Þeir Anat-
oly Karpov og Viktor
Kortsnoj eru íyrir nokkru
mættir á keppnisstað með
aðstoðarmenn sína. Það
voru tíu manns í fylgdarl-
iði Karpovs og von á fleir-
um. þar á meðal dulsálar-
fra'ðingnum Suchar. Kar-
pov hrosti til fréttamanna
við komuna til Ítalíu, enda
var konan hans með hon-
um og hann sagðist vera
vel undirbúinn og ætlaði
sér ekkert nema sigur.
Karpov sigraði, eins og
kunnugt er, í síðasta ein-
vígi 6—5 á Filippseyjum. —
21 skák lauk með jafntefli.
Þar lék dulsálarfræðingur-
inn Suchar stórt hlutverk,
eftir því sem Kortsnoj bar,
og nú hefur hann krafist
skothelds glerbúrs um-
hverfis taflborðið í Merano,
til að bægja skotum dulsál-
arfræðingsins frá sér. Kar-
pov og hans lið brást illa
við þeirri tillögu — og
fyrsta stóra vandamálið er
nú komið upp í hendurnar á
mótshöidurunum að ráða
fram úr ...
DeDbie Harry, söngkona hljómsveitarinnar Blondie, nýtur
dyggrar aöstoðar höfuðpaura Chic, Rogers og Edwards, á
sinni fyrstu sólóplötu KooKoo. Þaö verður allt að gulli
sem þessir þektu upptökustjórar snerta á og
Debbie hefur aldrei verið betri! Lagið
Backfired nýtur vinsælda um alla jarð-
arkringluna og ekkert virðist geta
stöðvað sigurgöngu Debbie
Harry. Platan KooKoo
er framleidd hér á
landi
v m
ÉÍM