Morgunblaðið - 29.09.1981, Qupperneq 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1981
ást er...
... ai) hjálpasi ad vid haust-
verkin í i/ardinum.
TM Rm U.S. Pat Off.-íll rtghts rtserved
e 1981 Los Angetes Times Syndtcate
KÍÍtist mér til fjár!
Með
morgunkaffinu
GviHl hvað 'ann er sa-tur! Er
þetta tökuharn?
HÖGNI HREKKVÍSI
„Kalt er við kórbak...“
SÍKriður Rósa Kristinsdóttir,
Eskifirði, skrifar:
_Kalt rr virt kórhak
kúrir þar Jón hrak.—
Vtar snúa austur vcstur
allir ncma Jón hrak.“
Svo kvað draugurinn í þjóðsög-
unni.
Og enn höfum við draumfarir
þungar. Verðbólgubálið æðir eins
og sinueldur í þjóðfélaginu, allir
gera kröfur um réttmætar hækk-
anir á sínum hlut, til samræmis
við aðra, allir telja sig*þurfa að
gæta þess að dragast ekki aftur úr
í kapphlaupinu. Fáir voga sér í al-
vöru að minnast á niðurskurð,
enda er það óvinsælt orð og getur
eitt sér auk þess verið stórhættu-
legt.
Skera þarí nið-
ur misréttið
Mín skoðun er, að við þurfum að
leggja aukna áherslu á að skera
niður mismun á mannréttindun-
um í landinu (og stemma alger-
lega stigu við nýjum mismun).
Þessi niðurskurður verður að vera
alger svo að fullt jafnrétti náist og
jafnstaða kvenna og karla.
Skera þarf niður misréttið sem
ríkt hefur í áratugi í heilbrigðis-
málum. Dæmi: Ef karlmaður mis-
stígur sig og þarf á sjúkrahúsvist
að halda, þá er sú vist greidd af
sjúkrasamlagi, en ef kona misstíg-
ur sig og þarf á sjúkrahús, þá er
sú lega greidd af tryggingastofnun
ríkisins í formi fæðingarstyrks
(nokkurs konar ölmusugjöf).
Sjúkrasamlag greiðir að hluta ef
ölmusan hrekkur ekki til.
Rétt þegar þetta var skráð frétti
ég að þetta misrétti hefði verið
skorið niður um síðustu áramót.
Og er það vissulega gleðiefni.
Lífeyrisréttindi
falla niður
Ekki er vanþörf að skera niður
misréttið í nýútkominni löggjöf
um greiðslur í fæðingarorlofi. Þar
eru fæðingarorlofsgreiðslur flokk-
aðar eftir vinnustað og vinnu-
stundafjölda. Þar eru húsmóður-
störfin að venju lægst metin eða
'h af fullri orlofsgreiðslu. Já, „kalt
er við kórbak". Þarna var þó auð-
velt að halda jafnvæginu. Með-
ganga barns og fæðing er með-
ganga og fæðing hvorki meira né
Þessir hringdu . . .
Tók frakka í
misgripum
Viðskiptavinur veitingahúss-
ins Illíðarenda hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Ég borð-
aði ásamt eiginmanni mínum á
veitingahúsinu Hliðarenda á laug-
ardagskvöldið, og urðum við fyrir
því óhappi, að stúlka nokkur tók
frakka mannsins míns í misgrip-
um, en skildi eftir sinn eigin, sem
er svipaður að lit. Ég horfði á
stúlkuna ganga að fatahenginu,
leggja frakkann á handlegg sér og
labba út, en var ekki nógu vökul til
að átta mig á, að þessi mistök
höfðu orðið. Það eru vinsamleg til-
mæli okkar til stúlkunnar, að hún
hafi samband við okkur í síma
12733.
Kona við Brávallagötu hringdi
og sagði: — Fyrir skömmu bank-
aði ung stúlka hér upp á og spurði,
hvort hún mætti ekki leggja fyrir
mig fáeinar spurningar. Ég taldi
víst að hún væri frá því opinbera
og svaraði að það væri velkomið.
Þá spurði hún um, hvaða mánað-
ardag ég væri fædd, og þótti mér
undarlegt að hið opinbera þyrfti
að spyrja slíkrar spurningar, það
væri áreiðanlega bréfað niður frá
hjá þeim. Þá kom spurning um
það, hvort ég byggi ein, og nú fór
ég að fyllast grunsemdum, gaf lít-
ið út á það. Og þá kom rúsínan í
pylsuendanum: Hvað drakkstu í
dag??? Mér vafðist tunga um
tönn, en sagðist nú lítið drekka
annað en kaffi. Og nú var komið
að mér að spyrja, og sagði stúlkan
þá að hún væri á vegum einhverra
einkaaðila og að svörin ætti að
senda til útlanda í tölvuvinnslu.
Og svo var hún á bak og burt og ég
varð ekki vör við að hún kæmi á
aðrar hæðir í húsinu. Skrýtin
fyrirtekt fannst mér.
Leiðrétting
1 sunnudagsblaðinu víxluðust
dálkar hér í símahorninu, þannig
að Hlíðabúa var eignuð kvörtun
vegna tvítekningar á dagskrárlið-
um útvarpsins o.fl., en eigandi
þessara umkvörtunarorða var
„Kona í Kópavogi".